Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Blaðsíða 35
26.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
EDDA
HEILDVERSLUN
Stofnsett 1932
Heildverslun með lín fyrir:
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 525 8210
eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is
83
ÁRA
Rúmföt, handklæði, sængur, koddar
og annað lín fyrir ferðaþjónustuna
- hótelið
- gistiheimilið
- bændagistinguna
- heimagistinguna
- veitingasalinn
- heilsulindina
- þvottahúsið
- sérverslunina
Vilt þú vita hvers virði
eignin þín er í dag?
Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga!
HRINGDU NÚNA 820 8080
Sylvía
Löggiltur fasteignasali
sylvia@fr.is
Brynjólfur
brynjolfur@fr.is
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
„...en myndirðu í alvörunni setja
skærbleika húfu á nýfæddan son
þinn?“ spurði samstarfskona mín
þegar við ræddum efni þessa
pistils – bleika litinn. Sá litur er í
hugum flestra tengdur kvenleikan-
um nær órjúfanlegum böndum en
ég komst að því í vikunni að sú
hefur ekki alltaf verið raunin. Á
18. öld klæddust jafnt karlar sem
konur bleikum fötum. Ekkert
þótti heldur athugavert við að
karlmenn gengju í rósóttum föt-
um með blúndum og pífum og
bleiki liturinn var jafnvel tengdur
krafti og karlmennsku, enda
skyldur rauðum, sem var stríðs-
litur. Þekkt er að í dag eru bleik
og blá föt notuð til að greina kyn
nýbura í sundur en ef bleiki lit-
urinn var notaður til einhverrar
aðgreiningar fyrr á tímum, þá var
það til að greina yngra fólk frá
eldra – bleikur var litur hreysti
og æsku. Í bókinni In A Journey
Around My Room, sem gefin var
út árið 1794, ráðleggur höfundur
bókarinnar, hinn franski Xavier
de Maistre, karlmönnum að mála
svefnherbergi sín bleik og hvít til
að bæta skapið. Árið 1918 mælti
barnafatavörulisti með því að
klæða stúlkur í blátt – því blár
væri „fíngerður“ litur – en drengi
í bleikt því í bleikum byggi meiri
ástríða. Hvað svo sem fólki þykir
um þessa röksemdafærslu, er
greinilegt að bleika litnum hefur
ekki alltaf verið haldið að stúlk-
um í þeim mikla mæli sem nú er
gert. Svo enn eitt dæmið sé tek-
ið, má nefna bleik jakkaföt herra-
mannsins Gatsby, einnar söguhetj-
unnar úr bók F. Scott Fitzgerald,
The Great Gatsby, sem kom út
árið 1925. Þar bendir hinn kokk-
álaði eiginmaður, Tom Buchanan,
á fataval Gatsbys, ekki til að
vega að karlmennsku hans, heldur
til að draga gáfnafar hans og
æðri menntun í efa – bleikur
þótti litur verkamanna.
Af öllu ofantöldu má því ljóst
vera að sú bleika árátta sem
grípur mörg stúlkubörn um fjög-
urra ára aldur er ekki meðfædd
tilhneiging heldur lærð. Af því
leiðir að tilhneigingunni má
breyta með breyttu hugarfari.
Ekkert er að því að vera hrifin/n
af bleiku – en þegar gys er gert
að drengjum á barnsaldri fyrir að
langa að mæta í bleikum buxum í
leikskólann, þá þarf að athuga
hugsanaganginn. Góð byrjun er
að sleppa kynaðgreinandi fötum
fyrir ungbörn – og í leiðinni að
spyrja sig hver tilgangurinn með
slíkri aðgreiningu gæti eiginlega
verið.
Til að svara spurningu sam-
starfskonunnar, þá á sjálfskipuð,
barnlaus piparjónka, sem rétt er
skriðin yfir tvítugt dálítið erfitt
með að sjá fyrir sér hvers kyns
klæðnað hún veldi barni sínu, ef
til þess kæmi. Kettinum mínum
myndi ég hins vegar umhugs-
unarlaust skella í bleikt – eða
blátt – alls óháð kyni.
SAGA BLEIKA LITARINS
Bleikt er lært,
ekki meðfætt
KARLAR JAFNT SEM KONUR GENGU Í BLEIKUM FÖTUM
FYRR Á ÖLDUM OG VAR BLEIKUR JAFNVEL KARLMENNSKU-
LITUR. EINUNGIS NÝLEGA, Í SÖGULEGU TILLITI, HEFUR
BLEIKT VERIÐ SVO STERKLEGA TENGT KVENLEIKANUM.
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is
Bleikt er vinsælt þema í stúlkuaf-
mælum. Áhugavert er að velta fyrir
sér hvers vegna.
Leonardo Di-
Caprio leikur
herrann
Gatsby og
klæðist bleiku.