Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.7. 2015
Tíska
B
logg er miklu meira en bara áhugamál. Stórir
bloggarar eru ekki bara að græða á því að
fá ókeypis „tískugóss“ heldur ná þeir oft að
skapa sér tækifæri með skrifum sínum og
verða ákveðnar stjörnur eða tískufyrirmyndir. Þá
hafa bloggarar aflað sér tekna og tækifæra sem fel-
ast meðal annars í því að sitja fyrir í auglýsinga-
herferðum, gefa út bækur, stjórna sjónvarpsþáttum og
jafnvel hanna eigin tískulínur. Vaxandi fjöldi lesenda
skapar tækifæri fyrir bloggara til þess að afla tekna
af bloggum sínum og eru blogg að verða sífellt vin-
sælli vettvangur fyrir fyrirtæki til þess að kynna
vörur sínar.
Með því að auglýsa á bloggum eru fyrirtæki ekki
eingöngu að vekja athygli á sér heldur geta þau selt
beint af síðunum og fylgst vel með umferðinni í gegn-
um bloggin. Og allir græða.
Smáforritin skila sínu
Í viðtali við Harpers Bazaar greindi hin 22 ára Dani-
elle Bernstein, hjá Who Wore What, frá því að ein
mynd af vöru á smáforritinu Instagram kostaði 5.000
til 15.000 dollara, eða frá 600.000 upp í tvær milljónir
íslenskra króna. Þá er fjöldi fylgjenda afar mikilvægur
og hækkar verð á myndum í samræmi við hann.
Verðið fer þá eftir samkomulagi, hvort viðkomandi
fyrirtæki verður á ákveðnum samningi hjá blogg-
aranum eða hvort um eitt skipti er að ræða. Þó senda
tískuhúsin gjarnan varning til bloggara með kross-
lagða fingur um að vörurnar verði birtar á samfélags-
miðlum.
Skapa augnablik
Þá er gríðarlega mikilvægt að góð framsetning og
áhugi sé fyrir hendi, enda snúast bloggin ekki um
tískuþætti heldur að skapa ákveðin augnablik sem fá
fólk til þess að dreyma um hönnunarvörur og fram-
andi lífsstíl. Þá gera ekki einungis tískuhúsin samning
við bloggarana heldur einnig heilu fyrirtækin, svo sem
hótel og skemmtistaðir.
Mikilvægi þess að tengja
Ýmsar leiðir hafa verið gerðar til þess að efla sam-
vinnu bloggara við fyrirtækin sem auglýsa hjá þeim
og þar eru tenglar afskaplega mikilvægir.
Ef bloggari mælir með ákveðinni vöru og tengir
sölusíðu vörunnar inn á bloggið græðir bloggarinn í
hvert skipti sem kúnni fer inn á síðuna og kaupir eitt-
hvað, þótt það sé ekki endilega sama varan og blogg-
arinn mælti með. Að sjálfsögðu mala ekki allir blogg-
arar gull með skrifum sínum. Þetta snýst allt um
fylgjendur og tölur og hvort bloggarinn hefur nægi-
lega áhugaverða sýn og skarar fram úr í framsetn-
ingu.
Bloggarinn vinsæli Hanneli Mustaparta í opnun í New York fyrr á árinu.
Vörum stillt fallega upp á smáforritinu Instagram.
ALLT SNÝST UM FYLGJENDUR OG TÖLUR
Bylting
tískubloggara
Á SÍÐASTLIÐNUM ÁRUM HAFA TÍSKUBLOGGARAR GJÖRBYLT TÍSKUHEIMINUM EINS OG
HANN LEGGUR SIG. UMFJALLANIR OG AUGLÝSINGAR Á TÍSKUBLOGGUM VERÐA SÍFELLT
VINSÆLLI OG MEÐ VAXANDI HÓPI FYLGJENDA Á SAMFÉLAGSMIÐLUM HAFA BLOGGARAR
YFIR MILLJÓN DOLLARA Í ÁRSLAUN FYRIR ÞAÐ EITT AÐ BLOGGA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Einn vinsælasti tískubloggari heims, Chiara Ferragni, heldur úti tískublogginu
The Blonde Salad.
Óbein auglýsing á skópari.
Öfundsverður lífsstíll er vinsælt myndefni bloggara á Instagram.