Skagfirðingabók - 01.01.1999, Blaðsíða 32
SKAGFIRÐINGABÓK
ur suður allt hraun í stórum loftbogum eins langt og til sást.
Skemmtu þeir sér vel á kostnað kisa. Eftir nokkra daga sást
hann aftur á gangi og búinn að ná sér eftir sprenginguna.
I Keflavík fékk Þorbergur þak yfir höfuðið hjá Sigtryggi
Árnasyni yfirlögregluþjóni þar. Hjá honum leigðu fleiri Skag-
firðingar. Hann var mörgum kunnugur fyrir norðan, var þaðan
ættaður, fjórði maður frá Bólu-Hjálmari. Sigtryggur sagði mér,
að Þorbergur hefði verið vel liðinn í Keflavík, þrátt fyrir synd-
andi fyllerí meðan nokkur eyrir var til, og jafnvel oftar. Bæði
Sigtryggur og aðrir vildu allt fyrir skáldið gera. I eitt skipti
sem Beggi kom til Sigtryggs, þurfti Sigtryggur að fara til Vík-
ur í Mýrdal, en þá var Þorbergur vinnandi þar. Sigtryggur bauð
honum með austur og spurði tíðinda á leiðinni. Lét Beggi vel
af sér, nema hvað skuldir hefðu safnast á sig víða, sem ekki voru
þó hættulegar utan ein upp á 30.000 hjá kaupmanni einum.
Þar blasti við sér gjaldþrot. Sigtryggur fór með honum á fund
kaupmanns. Hann var í góðu meðallagi á vöxt, í fullum skrúða
með gyllta hnappa. Þegar kaupmaður sá, að Þorbergur átti vörð
laganna sér að vin, varð hann samningalipur og seldi Sigtryggi
kröfuna á 15.000, sem hann síðan gaf skjólstæðingi sínum.
Þetta fréttist um Vík og nágrenni, og aldrei var Þorbergur
rukkaður um skuldir þar, er á honum hvíldu.
Þegar Þorbergur fór frá Sauðá, átti hann fjórar þykkar og
spjaldbundnar stílabækur með leðri á hornum og kili. Þetta
hafði hann með sér í tösku er hann fór og skildi helst aldrei við
sig. Tryggvi sonur hans hefur greint frá því að hann hafi skoð-
að þessar bækur hjá pabba sínum suður í Keflavík. I þeim var
bæði kveðskapur og leikrit og snyrtilega skrifað inn í bækurn-
ar.
Svo var það einhverju sinni, að Þorbergi var boðið í hús þar í
bænum. Þar var óskapleg veisla, brennivín eins og hver vildi og
Þorbergur undraðist hvað bláókunnugt fólkið var greiðvikið
við hann, bæði í brennivíni og mat, en vissi ekki, að hann borg-
aði þetta allt sjálfur. Morguninn eftir vaknaði hann úti í
30