Skagfirðingabók - 01.01.1999, Page 49
ÞORBERGUR ÞORSTEINSSON FRÁ SAUÐÁ
Oft þó finnist meyja mæt,
mun ég á það gleyminn.
Mér finnst Eygló alltof sæt
að eiga mök við heiminn.
Alveg ofbauð Þorbergi að sjá allar þær milljónir af kartöflum,
sem upp komu um haustið, og orti:
Mér finnst áþekkt eins og stendur,
ætti að telja dropa í sæ,
Abrahams gamla afkomendur
og uppskeran í Þykkvabæ.
Þorbergur sagði, að hjá einum kartöflubóndanum hefði Auð-
unn Bragi Sveinsson unnið og einnig þótt nóg um uppskeruna
og kveðið:
Átjánföld er uppskeran hjá Agli á Skarði.
Sá held ég að safni arði;
sætt er allt í heimagarði.
Þegar Þorbergur var í Keflavík, kynntist hann Danival Dani-
valssyni bónda frá Litla-Vatnsskarði, sem þá var orðinn kaup-
maður í Keflavík og rak verslun í húsi sínu við Hafnargötu þar
í bæ. Danival var bróðir Brynjólfs, Binna Dan., í Árbæ á Sauð-
árkróki og Kristínar konu Péturs Lárussonar bónda á Steini á
Reykjaströnd, síðar í Keflavík. Danival vildi halda Þorbergi frá
Bakkusi og í því augnamiði lagði hann að honum að koma í
vinnu hjá sér um helgar, en Þorbergur tók dauflega í það.
I þann tíð var ekki búið að opna áfengisútsölu í Keflavík, en
leynivínsala mjög stunduð af leigubílstjórum sem aukabú-
grein. Nú háttaði svo til, að leigubílastöð, sem Þorbergur átti
mikil viðskipti við um helgar, var við Hafnargötu, nokkurn
veginn andspænis húsi Danivals kaupmanns. Því var það, að
47