Skagfirðingabók - 01.01.1999, Qupperneq 69
MINNINGAR FRÁ ÁRDÖGUM ÚTVARPS
ust við að Ijúka útistörfum fyrir þann tíma til að missa ekki af
neinu. Þetta olli auðvitað mikilli röskun á hefðbundnu lífi í
sveitunum, sem varð jafnframt mun tilbreytingarríkara. Maður
varð að miða allt við að vera búinn með útiverkin til að geta
hlustað. Yfirleitt var þá hlustað á allt í útvarpinu, flestir held
ég hafi ekki viljað missa af neinu.
Til marks um áhuga manns á þessum árum má nefna eina
sögu. Eg var að koma frá Siglufirði, fór oft þangað vegna þess
að kona mín var þaðan og einnig þurfti stundum að fá meðul
frá lækni. Þá liggur á borðinu, þegar ég kom heim, bréf frá út-
varpinu um að kjósa þrjá menn í útvarpsráð, og ég hugsaði mig
ekki lengi um, tók hest og reið ofan í Fell og sendi skeyti um
hæl, hverja ég kysi, og það voru Jón Eyþórsson fyrsti maður,
Friðrik Hallgrímsson og Helgi Hjörvar.
Fyrstu útvarpsviðtækin í Fellshreppi voru, eins og áður sagði,
á Skálá og hjá mér. Síðan liðu eitt eða tvö ár áður en þau komu
á fleiri bæi. Eg man það kom fljótt tæki á Heiði og síðan í Mið-
hól, en fyrstu árin var þetta ekki nema á fjórum eða fimm bæj-
um, það var svo erfitt með hleðslu á rafgeymunum. Það var
mikil fyrirhöfn með þessa geyma. Rafstöð kom í Hofsós 1930,
og átti Páll læknir hlutdeild í því. Hann var umboðsmaður út-
varpsins og sá um hleðslu geymanna. Fyrst voru tveggja volta
geymar, og þeir entust ekki nokkurn skapaðan hlut. Síðar
komu fjögurra volta geymar, trékassi með sink- eða blýsettum
í sýru. Þeir dugðu í 2-3 ár. Þá var sýran búin að gegnsósa við-
inn og eyðileggja geyminn og þurfti að fá nýjan. Maður átti tvo
geyma, var alltaf með annan inni í Hofsós í hleðslu, fór svo þeg-
ar ekki var lengur hægt að hlusta með tóma geyminn ríðandi
inn í Hofsós og reyndi gjarnan að binda hann á bak sér, en tók
fullhlaðinn geymi til baka. Þetta var vondur farmur og urðu
stundum skakkaföll í flutningum á þeim.
Ef notkun var mikil á útvarpinu, mátti reikna með, að raf-
magnið entist ekki nema svo sem hálfan mánuð. Þá þurfti inn
í Hofsós, 15-20 km leið, til að endurnýja orkuna. Svona gekk
67