Skagfirðingabók - 01.01.1999, Page 87
TIL SMJÖRS ER AÐ VINNA EN EI TIL FLAUTA
meðan verið væri að koma því á. Svo þegar menn væru
farnir að reyna það, bjóst jeg við að samkomulag fengist
um að flytja það á hentugri stað, en litlu kostað til þótt
afþiljað væri fyrir það horn af kjallarnum í Holti.
Annarsstaðar en hér á Ríp eða í Holti var ekki um að
gjöra að byrja með því, þótt ýmsir létu líklega, þá vor-
um við Sigurjón þó þeir einu, sem eindregið vorum á því
að byrja strax, en þar þurfti ekki beinlínis að byggja fyr-
ir það, sem hér hefði þurft.26
Bústýra í Holti var Pálína Jónsdóttir frá Egg. Hún hafði verið
á Kvennaskólanum á Ytri-Ey 1895.271 sóknarmannatali Rípur-
prestakalls 1902 er Pálína talin til heimilis í Holti og kölluð
mjólkurbústýra. Um Pálínu segir Jón í bréfi sínu:
Bústýra okkar var ungfrú Pálína Jónsdóttir frá Egg. Ekki
fráfældust menn búið af því, að allir bæru ekki besta
traust til hennar, enda mátti það.
Um búreksturinn þetta síðara ár segir Jón:
Hvernig búið gekk fram að næsta nýári, mun formaður
þess hafa skýrt yður frá. Eptir nýárið tók það á ný til
starfa og fór jeg þá (að) láta flytja þangað og einn bóndi
til úr sveitinni, Þorkell Jónsson á Egg. Fleiri voru þeir
ekki. Gekk svo í fyrra vetur og í vor skrykkja lítið.
Fyrra árið eru innleggjendur fimm, en Jón segir þá hafa verið
þrjá þetta ár. Hér hefur þess ekki verið getið að í Eyhildarholti
var tvíbýli á þessum tíma. Þar bjuggu einnig Markús Arason,
faðir Sigurjóns bónda og síðari kona hans Ragnheiður Eggerts-
dóttir. Trúlega hafa bæði heimilin verið með í samlaginu.
Um smjörsöluna segir Jón að í apríl hafi verið send út um
900 pund eða 8 kvartel. Fimm þeirra hafi verið send „Zöllner í
85