Skagfirðingabók - 01.01.1999, Page 130
SKAGFIRÐINGABÓK
og kom raunar í ljós síðar, sem fyrr segir. Þann 9- október átti
ég símtal við Kristján Karlsson skólastjóra á Hólum. Biður
hann mig þá að fara norður í Eyjafjörð og kaupa lömb fyrir
þessa fjóra bæi, sem skorið var niður á í þetta skipti. Eg féllst á
það og fór 11. október með rútu til Akureyrar og þaðan með
leigubíl fram í Saurbæ og gisti þar hjá Daníel Sveinbjarnarsyni
hreppstjóra. Sárafáir bílar voru þá til í Saurbæjarhreppi, enda
var bílvegur ekki kominn á alla bæi þar 1940. Ekki leist mér á
að labba á milli bæja og fékk því lánaðan hest hjá Daníel sem
var auðsótt mál og var síðan á ferðalagi í fjóra daga, bæði aust-
an og vestan Eyjafjarðarár, en gisti alltaf í Saurbæ.
Búið var að slátra á bæjum þarna og var fátt eftir af lömbum
annað en þau, sem menn ætluðu að láta lifa. Þar af leiðandi var
ég ekki með nema fáein lömb hjá hverjum bónda þó að sumir
seldu af því sem þeir ætluðu að setja á.
Þann 15. október var ég búinn að kaupa 162 lömb og fékk þá
bíla frá Akureyri til þess að flytja þau vestur í Bakkasel. Gekk
það greiðlega, og voru lömbin höfð þar í girðingarhólfi næstu
nótt. Akveðið var að reka lömbin frá Bakkaseli vestur í Skaga-
fjörð, því að of dýrt þótti að fá bíla til að flytja þau þangað.
Þegar ég kom í Bakkasel seint um kvöldið voru þar mættir
tveir menn mér til aðstoðar við reksturinn daginn eftir. Annar
þeirra var Baldvin bóndi í Dæli í Sæmundarhlíð, en hinn var
Baldur Jónsson frá Mel, bróðir Magnúsar Jónssonar ráðherra og
Halldórs sýslumanns, báðir harðduglegir menn. Við sváfum
allir í Bakkaseli um nóttina og lögðum af stað með lömbin upp
á Oxnadalsheiði um leið og sauðljóst var orðið.
Hlýtt var í veðri, sólskin og logn og voru lömbin latræk
vegna hitans og reksturinn því tafsamur. Engar kindur sáum
við á Öxnadalsheiði, enda búið að leita þar fyrir löngu, og ekki
fóru nema fjórir bílar þar um þennan dag og trufluðu rekstur-
inn lítils háttar.
Ekki höfðum við neina hesta til reiðar á þessu ferðalagi, og
urðum því að rölta á eftir rekstrinum alla leið niður að Sól-
128