Skagfirðingabók - 01.01.1999, Side 140
SKAGFIRÐINGABÓK
Ekkert er vitað um viðtökurnar. Ráða má af líkum, að hon-
um hafi verið vel tekið, því að ekki leið á löngu, unz hann var
farinn að taka þátt í leiklist á Króknum. Þar voru tvö leikfélög
um þessar mundir: Leikfélag Sauðárkróks, stofnað 13. apríl
1888, og „Sjónleikanefnd" stúkunnar Gleym mér eigi, sem var
ársgömul, stofnuð 7. október 1897. Hún hafði komið sér upp
ágætu húsi á fyrsta starfsári (1897).
Fremur kalt reyndist milli félaganna og metingur mikill. I
þeirri viðureign beið Leikfélag Sauðárkróks ósigur og lá við
borð, að það legði upp laupana. Ymsir snjöllustu leikarar stað-
arins gengu í stúkuna og hugðu gott til að starfa í nýju hús-
næði.
Leikfélagið var á hrakhólum og hafði alltaf verið, átti sér eng-
an samastað. Laust fyrir jól 1897 tókst því að fá leigt húsnæði
fyrir ærið gjald, og æfingar hófust. Sýningar fóru fram í febrú-
ar og marz árið eftir. Ovíst er, hvaða leikrit var tekið til sýning-
ar. En nú gerðist það, sem var einsdæmi í sögu leikfélagsins:
Það varð stórtap á sýningunum.
Fjárhagurinn var ekki beysinn fyrir, og beið félagið mikinn
hnekki. Framtíðarhorfur þóttu slæmar. Samt var ákveðið að
gera tilraun til að rétta þess hag haustið eftir. Þá keypti félagið
leikritið Frænka Charley's í skuld og fékk Magnús lækni til að
annast leikstjórn og annan undirbúning. Var honum það mik-
il aufúsa. Sýningar fóru fram í „sýslufundarviku" 1899 við frá-
bæra aðsókn. Um þá sýningu fórust Haraldi Björnssyni leikara
svo orð:
Ennþá stendur sú leiksýning ljóslifandi fyrir mér. Þá
fannst mér, að ekkert gæti verið skemmtilegra til. Frá
þeirri stund, held ég, að leikhúsið eða leiklistin hafi átt
hug minn allan.
A stúkufundi síðla í nóvember 1898, meðan á æfingum stóð
hjá Leikfélaginu, bar Erlendur Pálsson verzlunarmaður, sem
138