Skagfirðingabók - 01.01.1999, Síða 151
Á FJÖLUNUM AUSTAN FJARÐAR
Sigurlína ólst að mestu upp í Staðar- og Sauðárhreppum og
kynntist barnung leiklist á Sauðárkróki og hreifst af henni.
Hún var félagslynd mjög, tók virkan þátt í leiklistarstarfi þar
eftir aldamót að minnsta kosti, hvað sem fyrr hefur verið, og
þótti takast með ágætum. Þau Magnús læknir áttu því margt
sameiginlegt. Af greinargerð þeirra Elínar og Björns í Bæ verð-
ur vart annað ráðið en Sigurlína og Magnús hafi fyrst kynnzt í
Hofsósi aldamótaárið. Ef svo hefur verið, hafa ástir, sem með
þeim tókust, aðeins staðið nokkra mánuði, að því er ætla má,
því að ári síðar er Sigurlína heitbundin Kristni Erlendssyni
(1873—1951) smið og kennara, sem einnig átti að sögn Björns
um sárt að binda í ástamálum. Þau urðu tengdaforeldrar Björns
í Bæ.
Höfundur getur þess til án þess að staðhæfa nokkuð, að ástir
hafi tekizt með þeim Magnúsi veturinn 1898-1899, er hann
var millibilslæknir á Sauðárkróki. Sigurlína hafi verið þar þann
vetur, trúlega við nám. Fyrir þessu er þó engin vissa. Ef svo hef-
ur verið, mætti þá ekki rekja það til Sigurlínu, að hvort tveggja
leikritið, Astardrykkurinn og Maurapúkinn, var sýnt í Hofsósi
þenna vetur, sennilega undir stjórn Magnúsar?
Sigurlína átti heima í foreldrahúsum að Neðra-Ási í Hjalta-
dal, eftir að foreldrar hennar fluttust austur yfir fjörð. Skýrir
það ekki, að Magnús skyldi þegar að námi loknu gerast læknir
í Hofsósi, einu elzta og leiðinlegasta verzlunarplássi landsins,
að hans sögn, þar sem alvara lífsins blasti við augum, þrotlaust
basl og bágindi? Eða, eins og áður var drepið á, varð slíkt hon-
um hvatning til að reyna að gera hlutskipti þessa fólks skap-
legra? Hvað sem um þetta er, vann Sigurlína við sauma í Hofs-
ósi sumarið 1900.
Aldamótaárið voru íbúar Hofsóss 37 að tölu, 16 konur, 21
karl. Á Grafarósi eru 15 manns, 9 konur, 6 karlar. Þar var
Gránufélagsverzlun. Verzlunarstjóri var Hallgrímur Tómasson
(1877-1932); tók við af tengdaföður sínum Carl Holm, en
„Holmarar" höfðu tengzt íslenzkri verzlunarsögu frá því á 18.
149