Skagfirðingabók - 01.01.1999, Page 156
SKAGFIRÐINGABÓK
Neðraási og Sigurður í Hofsós og einhver en [svo]. Raun-
ar fengum við nú þann vitnisburð, að það hefði verið
leikið yfirleitt ljómandi vel, að fáum persónum undan-
teknum, og var það allra dómur sem það sá [svo]. Við
höfðum líka mann til leiðbeiningar, sem við máttum
treysta, sem var Magnús Jóhannsson læknir, sem þótti
einhver sá bezti í Reykjavík, og honum eigum við sann-
arlega mikið að þakka.
í bréfi frá Guðjóni Jónatanssyni í Framnesi, sem ritað var 28.
janúar sama ár, kveður við líkan tón, og er vikið að stúkufélög-
unum í Hofsósi. Kveðst bréfritari hafa frétt
af fjelagssystkinum okkar, að þau hafi verið að leika
komedíur fyrir stúkuna, og eru það leikendur hennar
bræður okkar Franz og Björn og Jóhann og Sigurlína
Gísladóttir og Jón Konráðsson í Bæ, og hef jeg heyrt, að
það hafi góðan ágóða af því. — Eitt kvöld hafi það inntek-
ið um 60—70 kr., og var það ekki svo lítið.
Guðjón kembdi ekki hærurnar: Hann drukknaði í Vindá
8. júlí sama ár.
Franz nefnir það ekki í bréfi sínu, að hann þótti einna færast-
ur allra leikaranna.
Nú hefði mátt ætla, að einhver samvinna hefði verið höfð við
leikflokkana á Sauðárkróki, en til þess mun aldrei hafa komið.
Þó má vera, að leiktjöld hafi stundum verið fengin að láni, því
að dæmi eru um, að Sauðárkróksbúar lánuðu leikbúnað jafnvel
í aðrar sýslur.
Það er líklega rangt, að Magnús læknir hafi leikið að þessu
sinni í einhverju leikritanna. Hann hefur þá blótað á laun,
því að Guðmundur Björnsson landlæknir taldi „skrípalæti" af
þessu tagi ekki hæfa lækni, eins og áður er vikið að. Um hlut-
verkaskiptingu er annars ekkert vitað.
154