Skagfirðingabók - 01.01.1999, Síða 166
SKAGFIRÐINGABÓK
Með þeim Magnúsi lækni tókst vinátta, enda fóru skoðanir
þeirra mjög saman í þjóðmálum, og varð Hermann heimagang-
ur í Læknishúsi.
Nærri má geta, að Magnús læknir hafi fagnað komu Her-
manns í hið litla samfélag á Hofsósi og hugsað gott til glóðar-
innar að fá hann til leikstarfa. Það virðist hafa reynzt auðvelt,
því að hann varð Magnúsi brátt önnur hönd í leiklistarmálum.
Það hafði staðið leikstarfsemi á Hofsósi fyrir þrifum, hversu
illa gekk að fá fólk til starfa í stað þeirra, sem horfið höfðu burt
úr þorpinu, eins og áður er getið.
Ekki verður séð nákvæmlega, hvenær næsti fundur var bók-
aður. Fundargerðin hljóðar svo orðrétt og stafrétt:
Gjörðir félagsins eftir 1. fund
Stjórn félagsins afréð að láta leika stykkið „Föðursystir
Charleys", og eftir mikla örðugleika fékst fólk til að leika
það.
Hlutverkunum var deilt þannig:
Jack
Charley
Babbs
Spittigve
Franscis
Brasset
Lucia
Ella
Kitty
Anny
Jón Björnsson, Hofsós
Jónas Guðmundsson, Hofsós
Hermann Jónsson, Hofsós
Stefán Lárusson, Grafarós
Astvaldur Björnsson, Hofsós
Páll Þorgrímsson, Grafargerði
Frú Rannveig Tómasdóttir, Hofsós
Frk. Ríkey Sigurðardóttir, Hofsós
Frú Lilja Haraldsdóttir, Hofsós
Frk. Elín Lárusdóttir, Hofsós
Stykkið var leikið sex sinnum í febrúar, þ. 11., 12., 17.,
18., 19- og 25. Aðgöngumiðar voru seldir á 75 aura betri
sæti, 60 aura alm. sæti og 35 aura barnasæti. Fyrir
þessi sex kvöld kom inn, eins og sjá má af reikn. þ. árs
kr. 163, 21.
164