Skagfirðingabók - 01.01.1999, Blaðsíða 200
SKAGFIRÐINGABÓK
móðerni, þar sem var Þóra Björnsdóttir. En þá er þess og að
gæta, að Páll bróðir Gróu var tiltakanlega ófríður, og ekkert
fremur að marka þó Þrúður systir þeirra væri kvenna vænst
álitum. En þeim orðrómi sem kviknaði á Snæfellsnesi um fals-
að móðerni Gróu Halldórsdóttur, er í engu trúandi. Eða myndi
Ludvig Harboe hafa mælt með Halldóri prófasti til biskups ef
hann hefði vitað upp á hann hórdómssök með vinnukonu og
þar á ofan, að maddaman hefði tekið á sig móðerni frillubarns-
ins með svikum?
Steinn Jónsson Hólabiskup andaðist á jólaföstu 1739- Dróst
um sinn að nefna til eftirmann hans, enda voru nú mikil tíð-
indi að gerast í kirkjum og skólum þessa lands. Ludvig Harboe
er maður nefndur og hafði verið prestur í Kaupmannahöfn,
lærður ágætlega og góðviljaður. Hann var um þessar mundir til
kvaddur ásamt Jóni Þorkelssyni rektor (Thorkillius) að hyggja
að úrbótum á Islandi, blása í glæður trúarlífs og bæta menntun
alþýðu. Þá mun ekki hafa þótt vanþörf á nýjungum í lærðu
skólunum. Ástandið telst hafa verið sýnu verra á Hólum, enda
hafði þangað valist til skólameistaraembættis óheppilegur mað-
ur, Sigurður Vigfússon Islandströll. Er best að hafa hér sem fæst
orð um störf hans og siði. Páll Eggert Olason segir ekki fagrar
sögur af ástandi hins lærða skóla á Hólum, þegar Harboe fór
þar hvössum augum um skóla og kirkju:
Á sjálfu byskupssetrinu var aumlegt umhorfs, hús nálega
kolfallin, vegna vanhirðu, og innstæða staðarins úr sér geng-
in, bæði kvikfé og húsbúnaður... Skjalasafn stólsins var í
óhirðu, og varði Harboe löngum tíma til þessa að koma
reglu á það. ... Ekki fundust skjöl ýmis, er þar áttu að
vera. ... Latínuskólinn þar var og báglega staddur.
Kennsluaðferðir voru úreltar, ... kennslubækur fornar
og úr sér gengnar, en skólaagi horfinn.
198