Skagfirðingabók - 01.01.1999, Page 204
SKAGFIRÐINGABÓK
á Þingeyrum, þess sem leikana hafði haldið er urðu hneykslun-
arhella sr. Þorsteins á Staðarbakka. Sr. Illugi var þar að auki
tengdasonur herra Steins sem Hólabiskup var. En allt kom
fyrir ekki, sr. Illuga var ekki viðbjargandi.
VI
Segir nú ekki hér stórtíðindi af biskupshjónum hinum nýju á
Hólum fyrr en á milli jóla og nýárs. Allir vissu að biskupsfrúin
vænti sín, enda hafa menn ekki dregið í efa bráðar samfarir
þeirra hjóna, loksins þegar herra Halldór kom frá Danmörku.
En mjög þótti það ótímabært, er frú Þóra lagðist á sæng
á þriðja í jólum og ól lifandi barn. Mun því ekki hafa verið
hugað líf, enda skírt jafnsnart og það var borið. Þetta var
mær og nefnd Margrét. I fátinu gleymdi Jón Þorleifsson dóm-
kirkjuprestur að geta þess í kirkjubók, hverjir væru foreldrar
barnsins.
Slúðrið lét nú ekki á sér standa, og vissulega var tímans vegna
ástæða til þess að draga í efa að Halldór biskup væri faðir barns-
ins. Var meðal annarra tilnefndur Skúli Magnússon sýslumaður
Skagfirðinga, seinna landfógeti, en menn gleymdu því í ákaf-
anum að barnið var getið meðan frú Þóra var vestur á Staðastað,
en Skúli kom ekki á Vesturland um þær mundir.
Fer orð og flýgur. I Grímsstaðaannál segir við árið 1746:
Biskupshústrúin Þóra Björnsdóttir á Hólum ól barn ann-
an dag jóla eða þriðja, var með fullu lífi, taldist um fimm
mánuði frá biskupinn kom til íslands. Þótti sumum
meðgöngutíminn stuttur.
Sveinn lögmaður Sölvason á Munkaþverá:
Um sumarið kom út herra Halldór Brynjólfsson með
biskupsembætti á Hólum, hafði verið vígður, ásamt bisk-
upi herra Harboe, á Maríumessu á langaföstu um vetur-
202