Skagfirðingabók - 01.01.1999, Page 209
ÞÁTTUR AF HERRA HALI.DÓRI BISKUPI OG FRÚ ÞÓRU
VIII
Þá er mál að hverfa aftur til Hóla eftir ótímabæran barnsburð í
skammdeginu 1746. Þrátt fyrir öll vottorð féll ekki niður kvitt-
ur og slúðurburður. Fáir vildu þó í alvöru rengja konur eins og
ljósmóðurina og þernuna. Þær vitnuðu til guðs síns um sann-
leika orða sinna, og það var þeim enginn hégómi. En fýsir eyru
illt að heyra. Halldóri biskupi var mjög í mun að gjörhreinsa
Þóru sína af öllu rykti um hórdóm. Skrifaði hann nú enn kon-
ungi, sem var þá Friðrik fimmti, misloflegrar minningar. Var
beiðni biskups um verndarbréf fyrir sig og sína samið með
miklum málskrúðshnykkjum og af ærinni undirgefni. Friðrik
fimmti hafði verið krýndur sama árið og sr. Halldór var vígður
til biskups. Leyfist mér að tilfæra á norsku það sem um hann
segir í góðri bók, Gyldendals store konversasjons leksion: „F. var elsk-
verdig, rettsindig og velmenende, men hadde en svak karakter
og fikk helsen nedbrutt av drikk og utskeielser". Hann réð víst
ekki mjög miklu, og líklega hefur honum verið þyrmt við leið-
inlegum bænarskjölum þrasgjarnra þegna úti á Islandi. Bréfi
Hólabiskups var aldrei svarað, enda áttu fyrr útgefin vottorð
lærðra og leikra að duga.
En Halldór Brynjólfsson bað til guðs og konungs með vitn-
un í Saltarann: „Menn ofsækja mig með lygum, veit þú mér
lið.“ Hann var talinn tiltakanlega bænheitur, en nú var svo að
sjá sem bænhiti biskups væri tekinn að dofna eða heyrn al-
mættisins að sljóvgast. Hann reyndi jafnframt undirgefni sinni
við konung að bera sig mannalega og sagði af nokkrum þótta
að „den gemene Mand intet uden gement sige kan“. Hann
segist í bréfinu til Friðriks fimmta hafa orðið fyrir miklum von-
brigðum og ekki hafa „getað ímyndað sér fólk svo illkvittið, að
það af þessum sökum vildi setja á hana (Þóru) smánarblett. „En
þar sem ég hef, mót von minni, komist að raun um að þetta
hefur átt sér stað, hef ég sagt konu minni frá því, en hún tjáir
sig fúsa til þess að hreinsa sig með eiði, ef þess yrði allranáðug-
ast krafist."
207