Skagfirðingabók - 01.01.1999, Page 213
ÞÁTTUR AF HERRA HALLDÓRI BISKUPI OG FRÚ ÞÓRU
var, þegar Jón biskup helgi kom að góðum sveini, Klængi Þor-
steinssyni, með bók Ovids, Ars amatoria (Listin að elska) undir
öðrum latínubókum, og var Klængur þá barnungur, en hann
varð biskup síðar þótt ekki yrðu honum áfallalaus kvenna-
málin. Ars amatoria fjallar um það hvernig karlar skuli sækja
og rækja ástir kvenna.
Eins og fyrr segir og síðar mun ger sagt, voru börn biskups-
hjónanna á Hólum ærið sundurleit. Segir Jón Helgason rithöf-
undur að ekki sé laust við, „að í þessari minningu um gervileik
þeirra felist sá broddur, að þau hafí ef til vill ekki verið öll einn-
ar ættar. En menn geta eins vel reynt að spá í stjörnurnar og
geta í þær eyður", segir Jón með sanni. Og höfundur þessarar
greinar spyr: Hvernig voru Mýramenn? Voru Egill og Þórólfur
líkir? Var Helga fagra lík Agli Skallagrímssyni? Hafa menn ein-
hvern tíma efast um móðerni eða faðerni þessa fólks? Og Jón
Helgason klykkir út í stórgóðum þætti sínum um jólabarn á
biskupssetri, sem hér hefur óspart verið sótt í: „Sumir segja, að
það sé kvenleggurinn einn, sem sé öruggur. En jafnvel það
örugga akkeri ættfræðinnar hefur þjóðsagan viljað vefengja um
eitt af börnum Halldórs biskups. Og þá fer flest að verða valt í
þessum efnurn."
Eg vona að hér að framan hafi komið í ljós að faðerni barna
Þóru Björnsdóttur Thorlaciuss hafí ætíð verið eitt og samt. Því
til frekari styrkingar skal vitnað í Pál Eggert Olason: „Það
reynist þjóðsaga, að Skúli, svili hans [Halldórs] hafi átt barn
með konu hans í vígsluför hans, því að hún var þá á Staðastað.
En fleipur (leturbreyting höfundar) finnst um annað faðerni."
XI
„Sá famosus Spitzbub og Galgenvogel" Jón Marteinsson stærði
sig af því að hafa legið biskupsdóttur. Ekki þarf það að vera
sérstakur vandi. Lauslátar þóttu dætur herra Halldórs og frú Þóm
211