Jökull - 01.12.1957, Síða 42
TAFLA I. HITI OG SELTA í JÖKULSÁRLÓNI
Table I. Temperature and salinit.y in Jökulsárlón1)
Sýnishorn tekið Daie of sample Staður, vatnsdýpt m Location, total depth Dýpi m Sample depth Fliti °C T emperature Selta %a Salinity
1957
20. IV. Jökulsporður, 77 0 0.2 10.82
>> 70 1.8 12.97
„ „ Inntaksós Jökulsár 0 0.35 10.72
„ „ Ferjustaður á Jökulsá 0 10.95
30. VI. Jökulsporður, 90 0 0.7 1.08
40 0.2 1.37
„ 80 0.4 1.94
„ >> Ferjustaður á Jökulsá 0 1.0 1.78
4. VIII. Jökulsporður, 70 1 0.4 0.25
65 0.2 0.25
21. IX. „ 87 0 1.10 0.45
1 0.85 0.38
45 0.20 1.94
80 0.86 4.32
29. „ Jökulsá, efst 0 1.78
22. XI. Lónið, 10 1 h-0.25 12.01
„ „ 8.5 -^0.20 12.17
1958
2. I. Jökulsporður, 95 80 0.01 12.07
1) Sounding, sampling and measurements of temperature by Sigurdur Björnsson, deter-
mination of salinity by the University Research Institute, Dep. of Fisheries.
Þó að seltumælingarnar í Jökulsárlóni nái
ekki enn yfir heilt ár, sýna þær þó þegar i
aðaldráttum, hvernig seltan breytist eltir árs-
tíðum. En þær breytingar stafa vitanlega af
því, hve mismikið leysingarvatn kemur úr jökl-
inum: í apríl, áður en vorleysingar byrja, er
seltan því sem næst þriðjungur af seltu úthafs-
ins. Þá eru y3 lónsvatnsins jökulvatn, i/s sjór.
í júnílok er örlítið eftir af þessari seltu, en þó
vottur, helzt við botn, og í ágústbyrjun er
lónið ósalt að kalla. Má því telja, að í júlí og
ágúst sé leysing úr jöklinum nægilega ör til
að bægja sjónum alveg frá lóninu. Seint í sept-
ember er lónið aftur orðið ísalt við botninn,
en er enn ferskt á yfirborði. Seint í nóvember
er komin sarna selta og var í apríl. í janúar-
byrjun er hún óbreytt að kalla, og er þess nú
helzt að vænta, að hún rninnki ekki aftur fyrr
en í vorleysingum, og reynist um þriðjungur af
úthafsseltu sex mánuði ársins, en það er líkt
og þar sem saltast er í dönsku sundunum við
Sjáland og Fjón. Eflaust eru breytingarnar á
seltu Jökulsárslóns áþekkar frá ári til árs í
meginatriðum. Þó hlýtur tíðarfar hverju sinni
að hafa nokkur áhrif á þær, og enn fremur er
þess að vænta, að seltan fari yfirleitt vaxandi,
eftir því sem lónið stækkar.
Nú má heita svo komið, að Jökulsárlón sé
orðið að sjávarlóni og Breiðamerkurjökull
gangi í sjó fram (a. m. k. hálft árið). Áður
hefur enginn jökull hér á landi náð fyllilega
til sjávar, síðan sögur hófust, og sennilega ekki
um allmargar þúsundir ára. Það er nokkuð kyn-
legt afspurnar, að þá fyrst, er jökullinn styttist
sem óðast, tekur hann að enda í sjó. En raun-
ar er það sjórinn, sem eltir jökulinn uppi. Sarnt
er það afleiðing af styttingu jökulsins.
Varla fer hjá því, að hlýja og selta sjávarins
40