Jökull - 01.12.1957, Blaðsíða 54
JÓN EYÞÓRSSON:
Bccgisárjökull 1. ágúst 1939. J. Eyþórsson.
7. BÆGISÁRJÖKULL
Syðst á Þelamörk klofnar Öxnadalur urn
Staðartunguháls frá Hörgárdal og stefnir í SSV,
en Bægisárdalur klofnar frá Öxnadal um Bæg-
isárhnúk og stefnir í hásuður. Er dalur sá 8—10
km á lengd frá Bægisá (Ytri og Syðri) inn í
dalbotn, þröngur og brattlendur. Dalbotninn
er kringdur og girtur 1300—1400 metra háum
fjallseggjum. Norðan að dalbotninum stendur
Tröllafjall (1471), flughamrað og hvassbrýnt,
en austan þess er Glerárdalur.
I botni Bægisárdals er jökull nokkur um 1,5
km2 að stærð. Á Bægisá þar upptök sín. Jökul-
sporður er í 980 m hæð skv. uppdrætti Islands
(Bl. 63, 1930), en brúnin um 1300 m. Hvort
tveggja mun vera ofreiknað um 40—50 m sam-
kv. nýrri mælingum.
Jökul þennan kannaði ég lítillega 1. ágúst
1939. Veður var dumbungslegt mjög um morg-
uninn, er ég fór frá Akureyri, en heldur léttara
yfir í Öxnadal. Kom ég snemma morguns að
Syðri-Bægisá og spurði til vegar. Snorri Þórðar-
son bóndi bjóst ótilkvaddur til þess að fylgja
mér inn að jökli og lét þegar sækja hesta. Hef
ég sjaldan átt meiri höfðingsskap að mæta á
ferðum mínum. Vegna fjallaþoku varð tafsamt
að finna hestana, og komumst við ekki af stað
fyrr en um hádegi. Leiðin inn dal er allbrött
og seinfarin.
Kl. 14,30 vorum við komnir inn á efstu grös
í dalbotni, og taka þar við ógrónar jökulöldur.
Llefur jökull legið l'ram á þær fyrir allskömmu
síðan. Brattur hjalli er nú neðan við jökul-
sporðinn, en Snorri taldi, að jökullinn hefði
náð fram yfir þann hjalla árið 1925(?), er hann
fór þarna um í fylgd með Steingrími lækni
52
Frá Norðurlandsjöklum
Úr dagbókum 1939 og 1957
(Framhald)
On some alpine glaciers
in the Nortliland
(Continued)
Matthíassyni. Riðu þeir þá upp með austan-
verðum jökli upp í skarðið milli Bægisár- og
Glerárdals.
Sýndi Snorri mér, hvar hann minnti að
jökulendinn hefði þá legið, en það er á að
gizka 1000 m ofan við V-myndaðar jökulöldur,
sem ná upp eftir hliðunum, og hattar þar all-
mikið fyrir gróðri, en þó ekki eins greinilega
og við Barkárjökul.
Lítil varða (Bi) var sett á dálítinn melkoll
um það bil, sem Snorri telur jökulsporð hafa
verið um 1925.
B^ er varða á hjallabrún um 300 m ofan við
Ib. Með loftvog mældist hæð hennar 855 m
yfir sjávarmál.
B3 er varða á efri hjalla um 200 m frá B2.
Hæð um 900 m y. s.
Frá B3 að jökli mældust 40 m, en jaðarinn
óglöggur vegna grjótruðnings.
Rétt austan við B3 náði jökulsporðurinn
um 10 m fram fyrir vörðu, en merki varð ekki
sett þar vegna aurbleytu og vatnsaga.
Við Snorri riðum nú upp austanverðan jökul-
inn. Var þar bratt, en ekki vildi hann heyra
á það minnzt að fara af baki hestunum. Hvergi
vottaði fyrir teljandi sprungum.
Kl. 16,15 komum við upp í skarðið milli
(1435 og 1343 m tindanna) Bægisár- og Glerár-
dals. Var snjólaust á skarðinu, en grjót mjög
vatnsþvegið og gróður enginn. Hæðin mældist
mér 1227 m.
Skildum við Snorri á Skarðinu og báðum vel
hvor fyrir öðrum. Enga borgun vildi hann
þiggja fyrir fylgdina.
Ég hélt suður af skarðinu, og varð þá fyrir
djúpur dalbotn og brattur, en breiður, sléttur