Jökull


Jökull - 01.12.1962, Page 4

Jökull - 01.12.1962, Page 4
Efni greinarinnar Contents of Article Inngangur Bls. 1. SKILGREINING ORÐA OG HUGTAKA 2 2. VARMABÚSKAPUR 4 2.1. Tveir sérkennilegir eiginleikar 2.2. Varmajöfnuður 2.21. Geislun og uppgufun 2.22. Varmi frá árbotni 2.23. Fallorka breytist i hitaorku 2.24. Snjókoma og lindir 3. ÍSALAGNIR ALMENNT 7 3.1. ísalagnir straumvatna 3.11. Straumharðar ár 3.12. Lygnar og djúpar ár 3.2. Isalagnir stöðuvatna 4. EINKENNI ÞJÓRSÁR 8 4.1. Jökulár 4.2. Dragár 4.3. Lindár 5. ÍSALAGNIR ÞJÓRSÁR 10 5.1. Frá upptökum við jökla að fall- og lindasveeðinu 5.11. Tungnaá að Hófsvaði 5.12. Kaldakvisl að Sauðafelli 5.13. Þjórsá að Eyvafeni 5.2. Fall- og lindasveeðið að ármót- um Þjórsár og Tungnaár 5.21. Tungnaá frá Hófsvaði 5.22. Kaldakvísl frá Sauðafelli 5.23. Þjórsá frá Eyvafeni 5.3. Þjórsá frá ármótunum við Tungnaá og til hafs 5.31. Hvaða ísspangir stöðva skriðið? 5.32. Urriðafosshrönn 5.33. Búrfellshrönn 5.34. Búðahrönn 5.35. Þjórsá austan Búrfells 6. MIÐSVETRARÍS 23 7. AURBURÐUR ÍSS 25 8. VORÍS 27 9. LOKAORÐ 28 English Summary 28 ♦----------------------------- an, heldur eins og hann birtist í öllu sínu veldi. Markmiðið er þríþætt: 1. Veita lesendum Jökuls almenna íræðslu um ísa. 2. Birta athugasemdir, sem vænta má að komi þeirn að góðu haldi, sem leggja leið sína um vatnasvið Þjórsár að vetrarlagi. 3. Vatnamælingar raforkumálastjóra gera fyrir hvern stað, sem ráðgert er að virkja, svonefnda isaspá, en með því er átt við, hvernig ætla megi, að ísalög yrðu eftir að virkjun væri komin. Hér verða engar ísa- spár gerðar. En eftir lestur um gang ísa- lagna Þjórsár í heild getur hver og einn gert sínar eigin ísaspár og á jafnframt auðveldara með að meta ísaspár einstakra staða. Áður en lengra er lialdið, er í fyrsta lagi nauðsynlegt að skilgreina nokkur orð og liug- tök, í öðru lagi að lýsa hitabúskap og ísalögum vatna almennt og í þriðja lagi að gera grein fyrir vatnafræðilegum og landfræðilegum ein- kennum árinnar. 1. SKILGREINING ORÐA OG HUGTAKA. I Jöklaritinu 1794 leggur Sveinn Pálsson [1] grundvöllinn að nafnakerfi íss í straumvötnum sem hér segir: Krapaför1) eða skrið, sem sumir kalla svo, er ekkert annað en ísnálar eða fleinar, er setjast á yfirborð vatnsins alls staðar þar, sem straumur er minnstur, einkum í kyrru frostveðri, og berst í stórum kögglum niður eftir ánni, eins og feiknum af lausasnjó hafi verið dyngt í hana. Grunnstingull er eins konar íshröngl, sem sezt fyrir á sjálfum árbotninum í miklu frosti. Grunnstingullinn byrjar þannig, að misstórar isþynnur setjast hlið við hlið í straumstefnuna á sérlivern stein í botninum í lóðréttum röðum, líkt og skegg, er fleiri og fleiri ísþynnur setjast utan í og ofan á, unz botninn er alsettur íshröngli, og getur 1) Kvenkynsorð eint. (fem. sing.), sbr. jaka- íerð.. Ranglega talið hvorugkyn flt. í orðabók Sigfúsar Blöndals. 2 JÖKULL

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.