Jökull


Jökull - 01.12.1962, Síða 10

Jökull - 01.12.1962, Síða 10
Þegar það hefur brotnað, tekur hrönn úr skelja- ís að hlaðast upp. I djúpum og straumhægum ám er grunnstingull og reyndar líka skeljaís undantekning, því að fárviðri eða algjör ládeyða einmitt á þeirri stundu, sem allt vatnið hefur kólnað niður í 0°, er fremur fátítt. Skeljaís er þó til muna algengari, venjulegast er eitthvert golugjáifur eða snjókoma, sem ýfir vatnsflötinn, svifísmyndun á sér þá stað nálægt vatnsskorp- unni, og fyrr en varir eru hinar hljóðlátu, krapkenndu flygsur farnar að skríða niður ána sem krapaför. Haldi varmatapið stöðugt áfram hækkar ís- breiðustigið jafnt og þétt og liggja til þess tvær ástæður. I fyrsta lagi eykst krapaförin, en jafn- framt vaxa höfuðisar frá bökkum og þrengja álinn, sem krapaförin hefur til umráða. I bugð- um og þrengslum vex ísbreiðustigið hratt. Þar verður ísbreiðustigið fyrr einn heldur en á hinum breiðu og reglulegu köflum. Þegar því marki er náð, stöðvast allt skrið. Isalögnunum fylgir óveruleg vatnsborðshækkun, en vatnsborð- ið heldur áfram að stíga meðan ísinn þykknar. Truflun á vatnshæðinni varir meðan ís er á ánni. 3.2. Isalagnir stööuvatna. Vatn er þyngst við -f 4° C, eins og áður er sagt. Allt vatn stöðuvatna, sem er hlýrra, liggur því nær yfirborðinu og það heitasta efst. Tök- um sem dæmi stöðuvatn með 8—12° C yfirborðs- liita, sem er nokkuð algengt í stöðuvötnum hér á landi að haustinu: Yfirborðsvatnið kólnar, þéttist og sekkur undir hlýrra vatn, sem streym- ir stöðugt úr djúpinu til yfirborðsins. Þetta heldur áfram þar til allt vatnið hefur kólnað niður í 4° C. Grunn vötn hafa lítinn varma og kólna á skömmum tíma, en þau djúpu luma á varma fram á vetur. Þegar hinu margumtal- aða 4 stiga marki er náð, verður skyndileg breyt- ing. Yfirborðsvatnið heldur að vísu áfram að kólna, en sekkur nú ekki, því að það verður stöðugt eðlisléttara. Ismyndun er ekki langt undan. Ein stillt frostnótt nægir til að setja hem á allt vatnið. Rétt er að veita því athygli, að í kyrru veðri myndast ískristallarnir sem nálar og spjót einmitt þar, sem kælingin á sér stað, þ. e. a. s. á yfirborðinu, og þar fá þeir að vera i friði og vaxa saman. Varmatapið heldur áfram með leiðslu gegnum íshemið, sem vex á neðra borði. A vatnið kemur lagnaðarís, glœra- svell, sem lofað er af skautamönnum. Sé veður ókyrrt, þegar ýfirborðsvatnið liefur kólnað niður að 0° C, verður annað uppi á teningnum. Stöðugur öldugangur hrærir vatn- ið, sem næst er yfirborðinu, hve langt niður er liáð ölduhæðinni. Vatn, sem snöggvast er á yfirborðinu og verður fyrir kælingu, er andar- taki síðar komið i nokkurra sentímetra dvpi. Kristallamýndun hefst, og hvílir hún á sömu fjórurn þáttunum, sem greint var frá í sambandi við ísalagnir straumvatna. En framhaldið verð- ur ólíkt, því að hér nær hún ekki til botns, og svifísinn, sem myndast, færist lítið úr stað. Hann sveiflast til með öldunni og hrekst lítið eitt undan vindi og fyrir honum liggur fátt, ef frost haldast, annað en stíga til yfirborðsins og lægja ölduna. Yfirborð vatnsins verður alsett krapagraut, gráhvítum af loftögnum. Ef snjó- koma er, bætist snjórinn við krapann, en snjó- koman dregur jafnframt úr varmatapi yfir- borðsins. Vindur nær taki á krapabreiðunni, slítur hana iðulega í sundur og skrúfar upp í rastir og aðrar ójöfnur, svo frýs allt saman í hrufóttan lagnaðarís, gráis. A auðu blettina, sem mynduðust þegar krapabreiðan slitnaði, kemur glærís. Það er fátítt. að tala megi um grunnstingul í sambandi við ísalagnir stöðuvatna. Sé ofsarok, þegar komið er að ísalögnum, er möguleiki á myndun hans. Álandsvindur kemur á hring- streymi, þannig að yfirborðsvatn, sem hann hrekur upp að ströndinni, sekkur og streymir svo frá landi með botni. Sé engin eða nær engin svifísmyndun komin af stað, er hættan á grunnstingli hvað mest, því að þá er mestur möguleikinn á undirkælingu. Eftir að ískristall- ar eru teknir að myndast, verka þeir sem kím eða hvetjarar fyrir frekari kristöllun, eins og áður hefur verið bent á. Ef vatnið, sem sekkur undirkælt, er tært og rykkornalaust, kemst kristöllunin ekki af stað, fyrr en það rekst á botninn. Þetta getur komið fyrir allt niður á 20 metra dýpi. 4. EINKENNI ÞJÓRSÁR Þjórsá er í senn dragá, jökulá og lindá. Sam- spil þessara ólíku þátta ásamt hviklyndu veður- fari ræður mestu um, hve ísalagnir Þjórsár verða sérkennilegar og ólíkar á mismunandi stöðum liennar. Urn lengd Þjórsár og þveráa hennar, hæðum yfir sjó og stærðum vatnasviða og rennslis, vísast til meðfylgjandi töflu. 8 JÖKULL
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.