Jökull - 01.12.1962, Blaðsíða 25
tímum saman á vetrum. Hinn breiði og grunni,
staksteinótti hraunklappafarvegur vestan Klofa-
eyjar, bæði ofan og neðan eyjarinnar, er al-
settur hvítum íshöttum. Yfir að líta er hann
sem brokflói í fullum skrúða. Sumir íshattarnir
eru sullslettur, sem frosið hafa á steinum, er
standa upp úr vatni, og svo hafa skarir vaxið
út yfir það svæði, sem brirnar frá steinunum.
Aðrir íshattar, og þeir eru fleiri, þegar flóinn
blómstrar, eru þannig til orðnir, að hörð grunn-
stingulsbörð hafa vaxið upp úr vatni frá stein-
um skáhallt móti straumi. Þeir eru því eigin-
lega grunnstingulseyjar. En áin lokast ekki.
Elöfuðástæðan eða sú, sem mestu ræður, er
straumhraðinn. Vatnshraðinn er þarna 1 — 1,5
m/sek. Önnur veigamikií ástæða er, hve farveg-
urinn er beinn og reglulegur. Lindavatn
Tungnaár og íshellan undan Fitjaskógum og
annað þvíumlíkt skiptir sáralitlu. I ósviknum
norðangarra megnar varmi slíkra þátta lítils
á móti kælingunni. Mikil ísmyndun á sér stað
í þessum breiða farvegi, og 5—15% af rennsl-
inu um Tröllkonuhlaup í slíkum veðrunr er ís.
í raun og veru eykur lindavatn Tungnaár og
varminn, sem fæst úr fallorkunni, stórum á ís-
myndunina. Það gerist á þann hátt, að þegar
frostið linar takið, ná varmagjafir þessar að
stækka hinn auða vatnsflöt langt út yfir þau
mörk, sem straumvakir einar myndu megna, og
sköpuð eru á þann hátt ákjósanleg skilyrði fyrir
mikla ísmyndun, þegar kólnar aftur í veðri.
Að því er til varmans tekur, 'gildir einu, hvort
hann kemur með lindavatni eða miðlunarvatni
úr uppistöðu. Lindavatnið sýnir aðeins, hvers
vænta megi, þegar miðlunarvatni er hleypt
óbeizluðu langan veg.
6. MIÐSVETRARÍS
Miðsvetrarís Þjórsár er hæpið hugtak, svo
hviklynd er veðráttan. Eitt árið á miðjum vetri
er Þjórsá auð upp í 600 m hæð og jafnvel allt
til jökla. Jakahrannir eru á bökkum hér og
hvar og landfastar leifar Búrfells- og Urriða-
fosshranna skaga út í ána, sem slútandi íshamr-
ar. Ari síðar er Þjórsá máske allt önnur, undir
þykkum klakafeldi með nokkrar linda- og
straumvakir.
Helztu vakir eru:
1) a. Straum- og lindavök í Tungnaá og Þjórsá,
Hðfsvað— Þjófafoss, slitin sundur af
nokkrum ísbrúm á hyljum.
21. mynd. Höfundur kannar hörð grunnstingulsbörð,
sem vaxa á steinum móti straumi, á hraunklappa-botninum
neðan við Klofaey.
Thjórsá river below Klofaey Islahd. The author is studying
dense, hard anchor ice format.ions on the upstream sicle of
boulclers lying on a jlat lava bottom.
Photo: E. Elefsen.
22. mynd. Straum- og lindavök Tungnaár.
Tungnaá river near Hald. Channel kept open by combined
effects of ground-water inflow and high flow veloci.ly.
Photo: S. Rist.
JÖKULL 23