Jökull


Jökull - 01.12.1962, Side 28

Jökull - 01.12.1962, Side 28
24. myncl. Sumarvatn í Þjórsá nálægt 500 kl/s. liiver Thjórsá at normal dicharge in summer apfrrox. 500 k^s' Plioto: S. Rist. 25. mynd. Þurrð í Þjórsá 11. apríl 1963. liiver Thjórsá running clry during the coldl spell on April 11, 1963. Photo: S. Rist. þámugur og leirborinn. Þótt ískekkirnir sýnist dökkir, er aurinn í þeim venjulegast óveruleg- ur í reynd. En þegar grunnstingull er lagztur í botninn þvert yfir ána, t. d. á sléttan klappar- botn, veiðir hann botnskriðið. Hann verður sléttfægður á efra borði og alþakinn leir og sandi, jafnvel smásteinum allt að fingurbjargar- stærð. Þeir, sem bera ekki kennsl á íyrirbærið, standa fastar á því en fótunum, að hinn aur- þakti ís sé árbotninn sjálfur. Nægir þá að fleygja hnullungsgrjóti út í ána til að setja göt á grunnstingulsflókann, straumurinn tekur þá við og flettir upp mórauðum íshnausum. I þessu sambandi er rétt að minnast á eitt fyrirbæri, sem algengt er inn við jökla snemma að liaustinu, þegar sól hefur skinið á vatnið eftir heiðríka frostnótt, en nálægt mánuði síð- ar má sjá sama fyrirbærið í Þjórsá niður í Flóa. Þetta eru svartir kollar, sem koma upp úr vatninu, líkt og selshausar, og steypast síðan yfir sig og hverfa næstum alveg undir vatns- borðið. Þarna er grunnstingull næturinnar að losna og tekur með sér efsta sandkornalagið úr botni. Gæta verður þess, að ofmeta ekki þennan þátt íssins í aurburðinum, siikum þess að verulegur hluti sandsins, sem svörtu koll- arnir skarta með, stafar frá botnskriði. Veigamesti þáttur íssins í aurburðinum er flutningsgeta jaka. Það er ekki einvörðuiigu magn aursins, sem skiptir máli, heldur fyrst og l'remst, hve gróft efni þeir geta flutt. Jakarnir ýta til eða sigla með steina, sem hið rennandi vatn fær ekki þokað tir stað án aðstoðar íssins. Höfuðísar og land frýs saman. í vatnavöxtum flýtur ísinn svo upp undan lyftikrafti vatnsins og átökum straumsins. Áður er hann venjuleg- ast meira eða minna sprunginn í fleka af völd- um þenslu eða missigs. Á grjót- og sandeyrum eru skilin að neðan, ekki á milli iss og aurs, heldur á milli hins frosna og ófrosna aurs. I brotsárinu við bakkana má fara nærri um þykkt aurlagsins í brottsigldum jaka. I möl er það sjaldan yfir 15 cm, en gjarnan 1/^ metri í sandi og vikurdyngjum. I fossum og flúðum stingast jakar á endum, svo að oft má sjá hnefastóra steina eða stærri sigla makindalega ofan á ís- jökunum. Sandbornir jakar mara í kafi, eru dökkir og sjást illa. Vatnamenn í Skaftafellssýslum kann- ast við þá í auravötnum þar og nefna þá sand- jaka. A þeim þarf að hafa íulla gát, þegar farið er yfir vötnin. 26 JÖKULL

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.