Jökull - 01.12.1962, Page 48
þess, að Eyvindur hafi farið nærri um tilvist
Grímsvatna.
En um ferðir manna um Vatnajökul fyrr á
öldum eru engar skráðar heimildir til.
Fyrstu Islendingar, sem lögðu feið sína þvert
yfir Vatnajökul, svo skjalfest sé, voru förunaut-
ar Williams L. Watts hins enska, árið 1875.
Einn þeirra og hinn atkvæðamesti var Páll Páls-
son frá Hörgsdal á Síðu, er síðar gekk undir
nafninu Páll jökull, og af honum er myndin
hér að ofan. Hinir voru Kristófer Þorvaldsson
frá Fossi á Síðu, Olgeir Þorsteinsson frá Króki
i Meðallandi, Eyjólfur Bjarnason frá Hörgsdal
og Sigurfinnur Ketilsson frá Bólstað í Mýrdal.
Páll jöktdl Pálsson var fæddur 17. ágúst 1848
í Hörgsdal á Síðu. Foreldrar hans voru Páll
snikkari Pálsson, prófasts á Prestsbakka, og kona
hans, Guðrún Guðjónsdóttir. Hún var eyfirzk
að ætt, systir Péturs Guðjohnsens tónskálds.
Föðurbróðir Páls var séra Páll Pálsson á Prests-
bakka og síðar í Þingmúla, kunnur gáfu og
mælskumaður. Hafa margir þessara frænda ver-
ið orðlagðir hæfileikamenn, en sumir vínhneigð-
ir um of.
Sumarið 1874 hittust þeir af tilviljun á Prests-
bakka, W. L. Watts og Páll Pálsson. Watts
ætlaði sér þá norður yfir Vatnajökul, og réðst
Páll til ferðar með honum og útvegaði aðra
tvo Skaftfellinga til fylgdar. Þeir lögðu upp á
jökulinn 12. ágúst, og daginn eftir bar þá að
jökulskeri nokkru úr hrafntinnu, sem Watts
skírði þegar Pálsfjall „eftir Páli Pálssyni, sem
bezt hafði gengið fram í því að greiða för
mína,“ segir Watts í ferðabók sinni. Um mið-
nætti voru þeir komnir á sléttuna norðvestur
af Grímsvötnum og sáu báða Svíahnúka. Þeir
höfðu líka fundið brennisteinsfnyk annað slag-
ið um daginn, efalaust úr Grfmsvötnum, en
þar hafði orðið gos veturinn 1872/73.
Daginn eftir var komið hríðarveður, og treyst-
ust þeir ekki að halda áfram eða biða sakir
vistaskorts, en sneru við til Núpsstaðar.
Sumarið 1875 kom Watts aftur til íslands.
Þá komst hann norður yfir Vatnajökul með
förunautum þeim, sem ofan greinir.
I bréfi til ritstjóra Þjóðólfs, Matthíasar Jocli-
umssonar, dags. 1. sept. 1875, segir Watts m. a.:
„Með ánægju tek ég pennann til þess að efna
orð mitt og gefa yður stutta skýrslu uni ferð
vora yfir Vatnajökul. Og þar sem ég segi vora,
en ekki rnína, þá mæli ég af heilum hug,-------
— því að ég tala um mína fimm islenzku
félaga eins og sjáifan mig. — Því bið ég alla
að gæta þess, að hvernig sem þeir meta för
vora, ber mér ekki meiri orðstír en þeim, hin-
um hraustu drengjum, sem fylgdu mér og
reyndu með mér háska og mannraunir."
I annan stað orðlögðu fylgdarmennirnir vask-
leik Watts og hugrekki.
Páll jökull lærði undir skóla hjá séra Páli,
föðurbróður sínurn, og var tekinn í lærða skól-
ann 1866, en hætti námi eftir fjögur ár. Næstu
íjögur ár stundaði hann barnakennslu í Vest-
mannaeyjum. Haustið 1876 kvæntist hann Onnu
Ingibjörgu Sigurbjarnardóttur prests að Kálfa-
l’ellsstað og Oddnýjar Friðriku Pálsdóttur prests
í Sandfelli Thorarensens. Næstu sex ár eftir
voru þau hjónin við búskap í Suðursveit og
víðar, en Ilytjast til Seyðisfjarðar árið 1882. Þar
eiga þau heimili, unz Anna deyr 25. nóv. 1897.
Eftir það leystist heimilið upp, börnin voru
tekin 1 fóstur af vandamonnum og vinum, en
Páll hvarf heim á æskustöðvar sínar. Arin 1905
— 1908 er hann sýsluskrifari hjá Björgvin sýsfu-
manni Vigfússyni að Höfðabrekku. Þaðan flyzt
hann að Pllíð undir Eyjafjöllum til Páls, hálf-
bróður síns, og andast þar 21. dag júlímánaðar
1912.
Þegar þeir Watts komu yfir Vatnajökul til
Mývatnssveitar sumarið 1875, liittu þeir þar fyrir
margt Englendinga, sem stóðu að rannsóknum
og vinnslu á brennisteini. Nú var Páll vel ensku-
mælandi, og mun hann næstu sumur hafa starf-
að senr fylgdarmaður og aðstoðarmaður ýmissa
Englendinga. A vetrurn stundaði hann barna-
kennslu og verzlunarstörf, eftir að hann brá
búi.
Þeim sem muna Pál jökul ber saman um
það, að hann hafi verið kempulegur á velli,
svarthærður og rnikill yíir sig, greindur, marg-
fróður og léttur í máli, en vínhneigður og lét
oft vaða á súðum.
Páll mun hafa víða farið um fjöll og byggðir,
en varla lagt leið sína á jökla eftir ferðir sínar
með Watts. Þær ferðir voru afreksverk á sínum
tíma, og ber því jafnan að minnast Páls jfikuls
og félaga hans með heiðri.
Jón Eyþórsson.
46 JÖKULL