Jökull - 01.12.1976, Blaðsíða 53
Jökulsárgljúfur á ný. Hagafellsjökull eystri
þyrfti einnig að skríða fram um 1 km til þess að
stífla Hagavatn.
En vaxi jöklar, þykkna einnig ísstíflur við lón
í þverdölum og þá dregur úr tíðni jökulhlaupa,
en rúmmál þeirra vex. Hlaup úr Grænalóni og
Vatnsdalslóni myndu valda miklu tjóni, áður en
ísstíflan næði að þykkna svo, að stöðugt rennsli
fengist yfir bergþröskuld eins og var fram að
1898. Hins vegar má koma í veg fyrir hlaup úr
þverdölum með því að bora rennslisgöng gegn-
um bergþröskuld eða lækka hann með spreng-
ingum. Þannig má koma á stöðugu rennsli úr
lónunum.
Mynd 2 sýnir einnig helstu jaðarlón við jökul-
sporða. Fjöldi og stærð sporðalóna breytist ár
frá ári. Jökulsárlón á Breiðamerkursandi er
þeirra þekktast. Nú rennur úr öllum slíkum lón-
um yfir bergþröskuld. Hins vegar eru dæmi þess,
að útrás sporöalóna stíflist af jökli og hlaupi úr
þeim, t. d. Hagavatni, Hamarslóni og Hvítalóni.
Mynd lf sýnir þversnið af lóni í dæld á yfir-
borði jökuls. Tvær gerðir slíkra lóna finnast á
íslandi. í fyrsta lagi eru smálón, sem finnast
víða á leysingarsvæði yfir grunnum hægfara
jökli. Þekktust eru smálónin við Esjufjöll, sjá
Mynd 5. Hins vegar eru lón í botni sigkatla,
sem myndast við jökulhlaup frá jarðhitasvæðum
í jökli. Slík lón hafa sést í sigkatlinum, sem
hleypir vatni í Skaftá og á Kötlusvæðinu, Mynd-
ir 6 og 7. Þessi lón myndast, þegar yfirborð
jökulsins fellur niður fyrir vatnsborð í jöklinum.
Jökulhlaup og jarðskjálftar í Mýrdalsjökli í nóvember 1975
Um miðjan nóvember 1975 urðu Helgi Björns-
son og Valur Jóhannesson varir við nýleg um-
merki eftir jökulhlaup við Sólheimajökul. Aust-
an við Jökulhaus hafði vatn grafið allt að mann-
hæðar djúpan farveg. Akvegurinn inn að jökli
var víða skorinn sundur.
Erlingur Sigurðsson, bóndi í Sólheimakoti,
kom að Jökulsá á Sólheimasandi að morgni
föstudags 7. nóvember. Ain hafði vaxið um nótt-
ina, vatnsmagn orðið um fimmfalt meðalrennsli,
og hélst svo þann dag. Að morgni laugardags
8. nóv. hafði áin rénað og rennsli í meðallagi.
Hlaupið stóð því í um einn sólarhring. Engin
óvenjuleg jökulfýla var af hlaupinu.
Samtímis hlaupinu í Jökulsá varð Erlingur
var við hlaup í Hólsá. Einnig var honum sagt,
að vaxið hafi í Klifandi á sama tíma. Erlingur
gat þess, að miklar rigningar hefðu verið þessa
daga.
Hugsanlegt er, að jaðarlón hafi tæmst. Ef
upptök hlaupanna í Jökulsá, Hólsá og Klifandi
eru hin sömu, yrðu þau að koma úr vatnsgeymi
undir Mýrdalsjökli.
Hinn 7. og 8. nóvember stóð jarðskjálftahrina
með upptök undir vestanverðum Mýrdalsjökli.
Hrinan hófst síðdegis á föstudag og stóð í sólar-
hring. Ljóst er, að jökulhlaupið hófst um hálf-
um sólarhring áður en jarðskjálftahrinan byrj-
aði. Stærð skjálftanna var allt að M = 3 skv.
Skjálftabréfi, des. 1975.
Helgi Björnsson.
JÖKULL 26. ÁR 51