Jökull - 01.12.1976, Síða 74
ATHUGASEMDIR OG VIÐAUKAR
ABSTRACT
Glacier variations were recorded at 40 loca-
tions. The retreat 1975/76 is 20 meters on the
average. This figure is, however, of little signi-
ficance as the interval is too short. No glacier
was surging this year, but one surging glacier
can completely distort the average figure. The
average for the last 12 years yields a more de-
pendable average value of 9 to 10 meters re-
treat per year.
Haustið 1976 voru lengdarbreytingar mældar
á 40 stöðum. Á 27 stöðum hopaði jökuljaðar,
en gekk fram á 13 stöðum. Samtals sýndu fram-
skriðsstaðirnir 223 m framskrið, en hopstaðir
1038 m hop, eða 815 m hop umfram framskrið.
Það svarar til 20 m hops að meðaltali við hverja
mælistöð. Taka ber niðurstöðu þessa eina árs
með varúð, t. d. gæti framhlaup (surge) einnar
jökultungu snúið dæminu við, sbr. Jökul 24. ár,
bls. 80. Ef litið er yfir síðastliðin 12 ár má full-
yrða: Jöklar eru á undanhaldi hér á landi. Hop
jökuljaðars er 9 til 10 metrar að meðaltali á ári.
Rýrnunin er ólíkt hægari en hún var á árabil-
inu 1931/1964, þá var hopið 27 m á ári, reikn-
að með sömu aðferð.
Veturinn 1975/76 var vestanátt ríkjandi og
stöðugir umhleypingar. Veturinn var snjóþung-
ur suðvestanlands, en snjóléttur norðanlands og
austan. Skil milli hins snjóþunga og snjólétta
liluta landsins lágu um Isafjarðardjúp og nálægt
vatnaskilum Norður- og Suðurlands. Um allt
land lagðst snjór i hlíðar mót norðaustri, jafn-
vel var berangur mót suðvestri, einmitt þar sem
að jafnaði er stórfenni á vetrum, þ. e. a. s. eftir
norðaustanátt. Vart féllu snjóflóð í hlíðum
mót vestri. Sumarið 1976 var hlýtt, vott suð-
vestanlands og þurrt norðaustanlands. Mikið
vatn í jökulám einkum nálægt 10. júlí. Hinn 9.
júlí var hitamet i Reykjavík 24,2° C. í lok sum-
ars voru fornar fannir orðnar litlar í fjöllum.
Það vakti því nokkra eftirtekt, að í dölum norð-
anlands og víðar lifðu af sumarið fannadílar
úr snævi síðasta vetrar, þar sem um áraraðir
allan snjó liefur tekið upp. Kom þarna skýrt
fram, hvernig snjór hafði lagst 1 fjöll á síðast-
liðnum vetri, því að þessir nýju fannadílar voru
allir í hlíðum mót norðaustri, þ. e. a. s. í skjóli
undan suðvestan-skafrenningsáttinni.
Framhlaup Hagafellsjökuls eystri, sem rætt
72 JÖKULL 26. ÁR
var um í skýrslu s.l. árs, er nú skráð. Enn held-
ur Tungnaárjökull hjá Jökulheimum áfram að
hopa. Vert er að veita því athygli, að smájökl-
arnir vestan Oræfajökuls allt frá Svínafellsjökli
og austur að Kvíárjökli skríða fram á sama tíma
og stóru jöklarnir, Skeiðarárjökull og Breiða-
merkurjökull, styttast.
Athugasemdir Guðlaugs í Svínafelli varðandi
Skaftafellsjökul og athugasemdir Flosa á Ivví-
skerjum um Hrútárjökul og Fjallsjökul og at-
hugasemd Gunnsteins á Egilsstöðum varðandi
Kverkjökul gefa til kynna, að búast megi við,
að þessir jöklar skríði fram á næsta ári (1976/
1977).
Snæfellsjökull
I bréfi með mæliskýrslunni segir Hallsteinn,
að enn hafi ekki tekist að finna merkin við
Jökulháls. Það var 1973, sem jökullinn lengdist
um 320 metra, að mestu sökum þess, að þykkur
hjarnskafl lagðist við jökuljaðar.
Kaldalónsjökull
Á mæliskýrslunni tekur Aðalsteinn fram, að
jökullinn hafi þynnst mikið í sumar og Borgin
hækkað. Nú er þröngt sund á milli Jökulholta
og Borgarinnar. Allbreitt sund er sunnan Borg-
arinnar og yfir að Votubjörgum. Niður frá Borg-
inni liggur mjó jökulræma yfir farvegi árinnar.
Jökultanginn er sléttur og sprungulaus. Nú er
hvergi eftir nýsnævi á jöklinum, hvorki á skrið-
jöklinum eða upp á aðaljöklinum. Aðalsteinn
telur allan snjó horfinn, sem safnast hafði frá
því 1966.
Um árferðið skrifar Aðalsteinn: „Síðastliðinn
vetur er sá snjóléttasti, sem ég man, var aðeins
þræsingur frá jólum og fram á þorrann, eftir
það ríkjandi vestanátt að mestu og úrkomulítið.
Gróður kom seint, þó vorið væri góðviðrasamt,
mun hafa vantað úrkomu. Veruleg úrkoma kom
ekki hér fyrr en í byrjuðum júlí, þá fóru tún
að spretta. Þegar sláttur hófst, komu óþurrk-
arnir. Þriðja ágúst var skínandi þurrkur, svo
ekki þurrkur úr því út mánuðinn, fyrr en á
liöfuðdag, en svo rakinn þurrkur eftir það að
mestu fram að veturnóttum. Fram að desember
gerði hér aðeins tvisvar hvíta jörð, og stóð það
í sólarhring í hvort skipti. Hér þroskuðust eng-
in ber í sumar. Úthagi var mjög vel sprottinn
og blómgaður í sumar. Snjó leysti snemma, eftir
það var enginn nýgræðingur, öfugt við það sem
var í fyrra. Dilkar rýrari en í fyrra. Fornar