Jökull - 01.12.1976, Qupperneq 81
Mynd 8. Jökulhlaup úr Háöldulóni í Jökulsá
í Fljótsdal.
Fig. 8. Jökulhlaup from Háöldulón to Jökulsa
river in Fljótsdalur.
meiri jökulbunki að horni Eystrafjalls (Eggja)
heldur en á undanförnum árum. Þessi aukni
ísmassi einmitt á „stíflustaðnum'” gæti jafnvel
leitt til þess að Grænalón næði hærri stöðu,
áður en það hleypur næst. Það veldur mestu
um ris flóðtoppsins, á hve skömmum tíma hlaup-
vatnið brýst fram. Tökum sem dæmi, að nefnd
275 gígalítra vatnsfylla flæddi fram á einum
sólarhring, þá yrði meðalrennsli sólarhringsins
3200 m3/s, en hæsti rennslistoppur þrisvar sinn-
um stærri eða vel það, raunar hver veit hvað?
Grimsvatnahlaup j Skeiðarárhlaup
Grímsvötn lilupu í september 1976, sjá grein-
ina Grímsvatnahlaupið 1976 hér í blaðinu.
Vatnsdalsh laup / Kolgrímuhlaup
Nr. 23
1974 17.-23. maí Nr. 24 Hámark 20. maí kl. 22
1974 24.-30. júní Nr. 25 Hámark 27. júní kl. 24
1975 21.-24. júlí Nr. 26 Hámark 23. júlí kl. 11
1975 6.—11. ágúst Hámark 8. ágúst kl. 4
Sumarið 1976 hagaði Vatnsdalur sér nokkuð
öðru vísi en undanfarið. Hlaupgusa kom 24,—
27. maí og svo 4. júní, e. t. v. einnig 10. júní,
dagana 24.-27. júní tæmdist Vatnsdalslón. Það
er álit kunnugra, að sírennsli hafi verið úr
Vatnsdal fram eftir sumri. Undir haust tók vatn
að safnast á ný. Stórflóð kom 20. og 21. septem-
ber í allar jökulsár, sem falla undan austan-
verðum Vatnajökli. Helst lítur út fyrir, að ský-
fall liafi orðið á jöklinum, eða eitthvað því um
líkt. í þessu vatnskasti hreinsaðist út löggin,
sem komin var í Vatnsdalinn.
Gjávatn I Austurfljót
Gjávatn var tómt um árabil, þar til á útmán-
uðum 1973 að safnast tók í það. Gjávatn hljóp
í maí þá um vorið. Síðan var sírennsli úr því
þar til síðla sumars 1975, að útrennslið lokaðist.
Það hljóp fyrrihluta árs 1976, stóð svo þurrt út
sumarið.
HáöldulónjJökulsá í Fljótsdal
Háöldulón hljóp 13.—15. júlí 1975. Rennslið
hjá vatnshæðarmælistöðinni að Hóli í Fljótsdal
fór upp í 428 m3/s. Magn hlaupvatns var 26 Gl.
Háöldulón hljóp 25.-26. júní 1976. Rennslið
lijá Hóli fór upp í 285 m3/s. Magn lilaupvatns
var 14 Gl.
Jökulsá á Fjöllum
Eins og áður er sagt kom ofsavöxtur dagana
20.—21. sept. 1976 í allar jökulsár, sem falla
undan austanverðum Vatnajökli. Hornafjarðar-
fljót og Hólmsá á Mýrum hafa t. d. ekki orðið
vatnsmeiri s.l. 15 ár.
Kreppa tók að vaxa hjá vatnshæðarmælistöð-
inni við Kreppubrú hinn 20. september og óx
dag frá degi í vikutíma, en klykkti svo út með
snöggu 30 G1 jökulhlaupi hinn 27. september.
Þegar rennslið var í liámarki flæddi Kreppa
vestur yfir Krepputungu og til Jökulsár á móts
við Hlaupfell. Hlaupið tók vegarfyllinguna við
Kreppubrú, svo að vegurinn í Krepputungu
lokaðist. Vatnavaxtanna dagana 20. og 21. sept-
ember gætti óverulega í Jökulsá á Fjöllum hjá
Upptyppingum. Og eftir 22. september minnk-
aði rennsli Jökulsár dag frá degi, einmitt á sama
tíma og Kreppa óx.
Ekki er Ijóst úr hvaða lóni eða vatnsgeymi
hlaupvatnið kom, en eitt er þó vitað, það var
Kverká, sem flutti það til Kreppu.
JÖKULL 26. ÁR 79