Jökull


Jökull - 01.12.1976, Side 100

Jökull - 01.12.1976, Side 100
gefa út sitthvað af þeim kveðskap núverandi formanns félagsins, sem kyrjaður hefur verið á skemmtunum þess undanfarinn aldarfjórðung. Var félagsmönnum gefinn kostur á að eignast þetta kvæðakver, Grímsvatnagrallarann, fyrir 1800 krónur gegn pöntun fyrir ákveðinn tíma. Bæði prentsmiðjan Oddi og prentsmiðjan Lit- brá létu okkur hafa efni og vinnu á kostnaðar- verði og eiga þakkir okkar fyrir. Halldór Péturs- son, listmálari, tók að sér að teikna mynd við hvert kvæði fyrir miklu minna gjald en hann gæti hafa tekið og auka teikningar hans mjög á verðmæti kversins. Um 230 skráðu sig sem kaupendur. Ágóðinn af kverinu, sem ég vona að verði um 200 þúsund krónur, mun að mestu renna með einu eða öðru móti til skálanna okkar, einkum aðalskálans í Jökulheimum. Þar vantar lampa og sitthvað fleira til að auka á huggulegheitin í þessari aðalstöð okkar. Auk þess þarf skemmtinefnd að hafa eitthvað fé til umráða til að bera hugsanlegan halla af árs- hátíðum, sem ætíð getur orðið. Kann ég þeim þakkir, sem lagt hafa fram vinnu í sambandi við þetta kver. Fræðsluferðir voru fjórar á árinu og bið ég formann fræðslunefndar að gera grein fyrir þeim. Samanlagt voru þátttakendur 123 og er það mun meira en áður hefur verið. Hafa Valur og hans nefnd rækt sitt starf með mikilli prýði. 24. árgangur Jökuls kom út nú í haust og 25. árgangurinn er kominn vel á veg. Prentun og pappír hafa hækkað mjög, ekki síst pappír, og kostaði 24. árgangur Jökuls rtimar 700 þúsund krónur. En Jökull er einnig farinn að gefa tals- vert í aðra hönd eins og fram kemur af reikn- ingum. Sveinbjörn Björnsson var aðalritstjóri sem áður, en mun nú láta af ritstjórn eftir næsta árgang. Kunnum við honum miklar þakk- ir fyrir ágætt starf. Um Jökul er það annars að segja, að skv. samþykkt síðasta aðalfundar liefur félagsstjórnin rætt á stjórnarfundum og við stjórn Jarðfræðafélagsins um að þessi félög standi bæði saman að tímaritinu, en væru óháð að öðru leyti. Verður þetta rætt nánar undir Onnur mál. Farin var ein rannsóknarferð á Vatnajökul síðastliðið vor og mun fararstjóri, Jón ísdal, skipasmiður, gera grein fyrir henni. Auk venju- legra mælinga í Grímsvötnum var mælt snið milli Pálsfjalls og Kerlinga og voru mælinga- menn Ragna Karlsdóttir frá Orkustofnun og Elías Elíasson frá Landsvirkjun og þakka ég Tískusýning vakti mikla hrifningu á árshátíð. báðum þessum stofnunum beina og óbeina að- stoð við Vatnajökulsferðina. Með tilliti til þess, að líkur eru á því að Tungnárjökull geti farið að hlaupa hvað af hverju, eru sniðmælingar þvers og kruss um jökulinn mjög þýðingarmikl- ar og nauðsynlegt að halda þeim áfram á sumri komanda. Skylt er að þakka að fjárframlag ríkisins til félagsins hefur nú verið hækkað upp í 200 þús- und krónur. Mælingar á hopun og framskriði jökulsporða voru með svipuðum hætti og undanfarin ár og hafði Sigurjón Rist yfirumsjón með þeim sem áður. Af skálum félagsins er það að segja, að skál- inn á Grímsfjalli var einangraður s.l. vor. Þörf mun á að sinna eitthvað skálanum í Jökulheim- um á sumri komanda. Á einum stjórnarfunda var samþykkt að gera teikningu að litlum skála í Esjufjöllum. Er ætl- unin að sá skáli hafi sex 2 manna kojur og sé um 12 fermetrar. Hefur skálanefnd í huga að þessi skáli verði, með samþykki stjórnar og vænt- 98 JÖKULL 26. ÁR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.