Jökull - 01.12.1976, Síða 100
gefa út sitthvað af þeim kveðskap núverandi
formanns félagsins, sem kyrjaður hefur verið á
skemmtunum þess undanfarinn aldarfjórðung.
Var félagsmönnum gefinn kostur á að eignast
þetta kvæðakver, Grímsvatnagrallarann, fyrir
1800 krónur gegn pöntun fyrir ákveðinn tíma.
Bæði prentsmiðjan Oddi og prentsmiðjan Lit-
brá létu okkur hafa efni og vinnu á kostnaðar-
verði og eiga þakkir okkar fyrir. Halldór Péturs-
son, listmálari, tók að sér að teikna mynd við
hvert kvæði fyrir miklu minna gjald en hann
gæti hafa tekið og auka teikningar hans mjög
á verðmæti kversins. Um 230 skráðu sig sem
kaupendur. Ágóðinn af kverinu, sem ég vona
að verði um 200 þúsund krónur, mun að mestu
renna með einu eða öðru móti til skálanna
okkar, einkum aðalskálans í Jökulheimum. Þar
vantar lampa og sitthvað fleira til að auka á
huggulegheitin í þessari aðalstöð okkar. Auk
þess þarf skemmtinefnd að hafa eitthvað fé til
umráða til að bera hugsanlegan halla af árs-
hátíðum, sem ætíð getur orðið. Kann ég þeim
þakkir, sem lagt hafa fram vinnu í sambandi
við þetta kver.
Fræðsluferðir voru fjórar á árinu og bið ég
formann fræðslunefndar að gera grein fyrir
þeim. Samanlagt voru þátttakendur 123 og er
það mun meira en áður hefur verið. Hafa Valur
og hans nefnd rækt sitt starf með mikilli prýði.
24. árgangur Jökuls kom út nú í haust og 25.
árgangurinn er kominn vel á veg. Prentun og
pappír hafa hækkað mjög, ekki síst pappír, og
kostaði 24. árgangur Jökuls rtimar 700 þúsund
krónur. En Jökull er einnig farinn að gefa tals-
vert í aðra hönd eins og fram kemur af reikn-
ingum. Sveinbjörn Björnsson var aðalritstjóri
sem áður, en mun nú láta af ritstjórn eftir
næsta árgang. Kunnum við honum miklar þakk-
ir fyrir ágætt starf. Um Jökul er það annars að
segja, að skv. samþykkt síðasta aðalfundar liefur
félagsstjórnin rætt á stjórnarfundum og við
stjórn Jarðfræðafélagsins um að þessi félög
standi bæði saman að tímaritinu, en væru óháð
að öðru leyti. Verður þetta rætt nánar undir
Onnur mál.
Farin var ein rannsóknarferð á Vatnajökul
síðastliðið vor og mun fararstjóri, Jón ísdal,
skipasmiður, gera grein fyrir henni. Auk venju-
legra mælinga í Grímsvötnum var mælt snið
milli Pálsfjalls og Kerlinga og voru mælinga-
menn Ragna Karlsdóttir frá Orkustofnun og
Elías Elíasson frá Landsvirkjun og þakka ég
Tískusýning vakti mikla hrifningu á árshátíð.
báðum þessum stofnunum beina og óbeina að-
stoð við Vatnajökulsferðina. Með tilliti til þess,
að líkur eru á því að Tungnárjökull geti farið
að hlaupa hvað af hverju, eru sniðmælingar
þvers og kruss um jökulinn mjög þýðingarmikl-
ar og nauðsynlegt að halda þeim áfram á sumri
komanda.
Skylt er að þakka að fjárframlag ríkisins til
félagsins hefur nú verið hækkað upp í 200 þús-
und krónur.
Mælingar á hopun og framskriði jökulsporða
voru með svipuðum hætti og undanfarin ár og
hafði Sigurjón Rist yfirumsjón með þeim sem
áður.
Af skálum félagsins er það að segja, að skál-
inn á Grímsfjalli var einangraður s.l. vor. Þörf
mun á að sinna eitthvað skálanum í Jökulheim-
um á sumri komanda.
Á einum stjórnarfunda var samþykkt að gera
teikningu að litlum skála í Esjufjöllum. Er ætl-
unin að sá skáli hafi sex 2 manna kojur og sé
um 12 fermetrar. Hefur skálanefnd í huga að
þessi skáli verði, með samþykki stjórnar og vænt-
98 JÖKULL 26. ÁR