Jökull - 01.12.1977, Side 3
JOKULL
27. Ár 1977 No. 27
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG ÍSLANDS JARÐFRÆÐAFÉLAG ÍSLANDS
Með þessum árgangi Jökuls verður sú breyt-
ing á, að liér eftir standa að tímaritinu tvö
lélög: Jöklarannsóknafélag íslands og Jarðfræða-
félag íslands. Tímaritinu er ætlað að taka til
rannsóknasviða beggja félaganna og rnunu því,
auk greina er teljast til jöklafræði, birtast í jrví
greinar margvíslegs efnis bæði jarðfræðilegar og
jarðeðlisfræðilegar. Hefur raunar þannig verið
um Jökul í allmörg ár og breytingin frá því er
verið hefur því næsta lítil, en þetta víðara verk-
svið Jökuls er nú formlega staðfest. Eins og ver-
ið hefur verða vísindalegar ritgerðir í Jökli ein-
vörðungu á erlendum málum, en með útdrátt-
um á íslensku. Efni varðandi félagsmál beggja
félaganna, svo og ýmislegur jarðvísindalegur
fróðleikur af alþýðlegu tagi, verða á íslensku,
með enskum útdrætti, ef Jmrfa þykir.
Það kann að virðast öfugþróun á tímum vax-
andi sérhæfingar tímarita, að breikka vettvang
tímarits. En íslenskar aðstæður eru nokkuð sér-
stæðar. Við höfum blátt áfram ekki efni á að
gefa út tvö jarðvísindaleg tímarit og með vax-
andi jtörf á tímariti, er birt gæti niðurstöður
af íslenskum jarðfræðirannsóknum, þótti for-
svarsmönnum beggja áðurnéfndra félaga að all-
vel rannsökuðu máli vænlegast að fara þá leið,
er að ofan greinir, og var hún samþykkt af
félagsmönnum beggja félaganna. Segja má, að
Jökull sé með nokkrum hætti sérhæft tímarit
vegna þess að ekki verða birtar í ritinu aðrar
staðbundnar greinar en þær, sem varða Island.
Þar eð ekki eru mörg svæði á jörðunni athyglis-
verðari en ísland frá jarðvísindalegu sjónarmiði
er vonandi, að hægt verði að vanda svo efni í
Jökul, að tímaritið verði nauðsynlegt sérhverj-
um þeim jarðvísindamanni, innlendum sem er-
lendum, er sinna ætlar rannsóknum á íslandi,
og æskileg lesning mörgum öðrum. Vonandi
verður einnig hægt að gera tímaritið þannig úr
garði, að íslenskir lesendur utan hins litla hóps
vísindamanna megi sæmilega við una.
Ritstjórar Jökuls.
Jökull was founded in 1951, and lias been
published for 26 years by the Iceland Glacio-
logical Society. Starting with this issue the
journal will be the joint publication of the Ice-
land Glaciological Society and the Geoscience
Society of Iceland.
In recent years scientific journals have tend-
ed towards increased specialization, and this
change in the editorial policy of Jökull might
be construed as going contrary to that trend.
However, from the beginning Jökull has carried
articles on the Earth Sciences other than glacio-
logy, ancl the specialization of the journal is
geographical rather than witli regard to discip-
line. Jökull aims to be an international forum
lör geoscience research in Iceland, presenting
results of original scientilic research. Specific
areas of coverage include glaciology, glacial geo-
logy, physical geography, general geology, petro-
Iogy, volcanology, geothermal research, geophys-
ics, meteorology, hydrology, and oceanography.
Generally papers are published in English,
but occasionally manuscripts in German and
French are published. Papers in Icelandic cover
topics of interest for the members of the Soci-
eties.
The Editors.
UOt3átö«l JÖKULL 27. ÁR 1
333708
isunos