Jökull - 01.12.1977, Blaðsíða 113
yfir Grímsvötn til að varpa þar niður rauðum
belgjum, sem nota átti sem mælipunkta.
Dvöl þeirra Helga og Magnúsar á Svíahnúk
eystri varð ærið löng. Hörður, Magnús Eyjólfs-
son og Olafur Nielsen, sem sendir voru til að
sækja þá, voru veðurtepptir í allmarga daga við
Háubungu, en sama dag og Guðmundur Jónas-
son nálgaðist Grímsfjall við 6. mann mætti hann
hópunum báðum á heimleið.
Það hefur sýnt sig á síðastliðnu ári, eins og
oft áður, að forsenda vísindarannsókna á Vatna-
jökli og öðrum stórjöklum landsins er að Jökla-
rannsóknafélagið hafi ætíð á að skipa niönnum,
er kunna vel til ferðalaga á jöklum, því án að-
stoðar þeirra kemur sérþekking vísindamanna að
litlu gagni.
Sigurjón Rist sá um jökulsporðamælingar sem
undanfarin ár og nýtur enn aðstoðar ötulla
sjálfboðaliða úr hópi félagsmanna.
Um aðrar ferðir er það að segja, að farin var
hressingarferð á Tindfjallajökul og önnur i
Jökulheima. Voru þátttakendur um 40. Veðrið
hér á Suðurlandi s.l. sumar var jú ekki sérlega
lokkandi til hressingarferða, en Valur spáir góðu
á sumri komanda og hefur sitthvað á prjón-
unum.
Farartœki
Um bílakostinn er Jrað að segja eftir formanni
bílanefndar, að víslarnir gömlu eru í sama
ástandi og áður, bilaður mótor í öðrum og brot-
ið drif í hinum, en bombardierinn Jökull I er
nú endurhæfður, svo notað sér móðins orð. Lögð
var drjúg vinna í að breikka beltin á honum
og er álitið, að hann hafi batnað við þetta, þótt
enn sé ekki allt færi við hans hæfi.
Skdlar
Skálinn á Grímsfjalli var bikaöur og Jökul-
heimahúsin eru í allgóðu standi. I fyrra var
ákveðið að koma upp tveimur litlum skálum,
öðrum í Esjufjöllum, hinum í Kverkfjöllum, og
var kvæðakverið litla, Grímsvatnagrallari, gefið
út m. a. í þeim tilgangi að afla nokkurs fjár til
þessara framkvæmcla. Stefán Bjarnason, Jón Is-
dal, Valur Jóhannesson og Pétur Þorleifsson
eru að vinna af kappi að Jjessum skálum. Það
var ekki hvað síst fyrir þakkarverðan áhuga
Jóns ísdals á skálabyggingu beggja félaga, að
stjórn Ferðafélags íslands samþykkti nýlega að
leggja af mörkum 100 Ju'tsund krónur í hvorn
skála. Ekki má heldur gleyma Þórarni Björns-
syni, þegar fjallað er um skálana. Það ltefur
reynst eins og áður svo sannarlega betra en ekki
að eiga þann mann að. I ráði er að reyna að
koma Esjufjallaskálanum á sinn stað nú um
páskana. Mér er Jrað persónulega mikil ánægja,
að komist hafði á Jtessi samvinna milli þeirra
tveggja félaga, sem ég met öðrum félögum frem-
ur, áður en ég hætti störfum í öðru Jreirra. Eg
sé í anda þann tíma nú í nálægri framtíð, að
hraustir menn og konur fara í skíðagöngu þvert
yfir Vatnajökul, leggja upp frá Sigurðarskála
norðan Kverkfjalla og ljúka ferðinni í bragga-
skála Jöklarannsóknafélagsins á Hálfdanaröldu
á Breiðamerkursandi. Um þann skála er það að
segja, að einnig er í ráði að dytta að honum.
Breskir vísindamenn æskja þess að hafa afnot
af honum á sumri komanda, eins og oft áður,
og fá Jretta með því fororði, að Jteir verði að
víkja þegar okkar fólk þarf að nota hann.
Fundir
Auk aðalfundar 10. febrúar, Jtar sem Gutt-
ormur Sigbjarnarson sýndi litmyndir frá jöðr-
um Vatnajökuls, voru haldnir tveir fræðslu-
fundir á s.l. starfsári og svo auðvitað árshátíð.
Arshátíðin, Jörfagleðin, var haldin í Atthagasal
Hótel Sögu og sóttu hana um 100 rnanns. Veislu-
stjóri var Magnús Hallgrímsson, sem notaði
tækifærið til að veita nokkra undirstöðutilsögn
í borðsiðum og má vænta þess, að Jressarar upp-
fræðslu muni sjá merki við máltíðir í leiðöngr-
um félagsins á komandi árurn. Sveinbjörn
Bjiirnsson flutti ræðu kvöldsins og mæltist hon-
um prýðilega. Árshátíðir okkar hækka óneitan-
lega nokkuð hraðar í verði en laun jöklamanna
almennt. Var nokkuð rætt um Jtað af skemmti-
nefnd fyrir síðustu árshátíð, að hún yrði sú
síðasta í Jtessu formi, en eftir hátíðina virtust
flestir þátttakendur á því máli, að samkoman
hefði verið svo ánægjuleg, að halda ætti áfram
í svipuðu formi.
Á vorfundinum 18. maí fræddu Leifur læknir
Jónsson og Magnús Hallgrímsson okkur með
frásiígn al frækilegri skíðagöngu þeirra og fjög-
JÖKULL 27. ÁR 111