Jökull


Jökull - 01.12.1977, Page 106

Jökull - 01.12.1977, Page 106
MánucLaginn 19. júlí var heiðskírt, en æði hvasst á suðvestan, svo að við lá, að sandur ryki. Engu nærðust þeir, áður en þeir lögðu af stað, en dreyptu nú í fyrsta sinn lítillega á ferðapel- anum. Þeir leggja af stað kl. 7 og eru komnir að Dyngjuvatni kl. 9 og tjalda við norðvestur- horn vatnsins. Á þeirri leið sáu þeir eitt punt- strá og eitt háfjallablóm, og var það eini gróð- urvotturinn, sem þcir höfðu séð frá því á Háls- um. Við Dyngjuvatn neyttu þeir morgunverðar, þar sem nú höfðu þeir gnægðir vatns til kaffi- gerðar, en |>að þótti Jieim undarlegt, er þeir þurftu að ýta frá grjóti, sem maraði í miðju kafi, þegar þeir tóku vatnið í ketilinn, Jjví að slíku léttagrjóti voru þeir óvanir í Hornafirði. Frá Dyngjuvatni fóru þeir félagar kl. hálf- ellefu. Tóku þeir stefnu i hánorður, stefndu þá á Oskjuvatn eftir korti því að dæma, sem [>eir voru með, og bjuggust við að koma að Jjví innan skamms. En Jieir voru austan við Öskju- skálina, og fóru þvert yfir rana í austur af fjallinu. Undan fjallinu kom á, sem þeir stukku yfir og héldu síðan áfram, [>ar til þeir komu á hraunbreiðu, sem lá alla leið til Herðubreiðar- tagla. I þessu hrauni tjölduðu þeir, }>ví að nú var komin áköf rigning. Er þeir höfðu gætt sér á kaffi, tóku þeir að athuga matarbirgðir sínar og sáu þá, að ekki var eftir meira en sem svar- aði eins dags forða, Jjegar hafragrjónin voru frá skilin. Varð þeim þetta alvarlegt íhugunarefni. Eftir korti að dæma var hörkudagleið frá Öskju- vatni til byggða, og Öskjuvatn enn ófundið og ekkert vitað, hvar [>að var að finna. I gaman- sömum tón er látið í það skína á minniblöðum, að nú hafi þeim allur kjarkur verið brostinn frammi fyrir erfiðleikum lífsins, því að svo var rigning áköf, að ekki áræddu þeir að lialda göngunni áfram. Þá rauf óp eitt mikið dauða- kyrrðina og þytur, sem væri hér á ferð heilagur andi hinnar hvítu sunnu. Við nánari athugun kom í ljós, að fyrir utan tjaldið hafði flogið hin hversdagslegasta sólskríkja og hafði sungið sinni hversdagslegu röddu, en svo afvanir voru þeir orðnir ómi lífsins eftir klakaþögn undan- genginna daga, að þeir ætluðu ekki að átta sig á hinum hversdaglegasta ómi þess. En þessi lífs- ins rödd kallaði þá til lífsins og áræðisins á ný. Þeir rifu niður tjaldið og trítluðu af stað, enda var rigningu þá að létta, en hvass var hann af suðvestri. Tóku þeir nú að leita Öskjuvatns af mikilli 104 JÖKULL 27. ÁR áfergju. Þeir héldu enn til norðurs og norð- austurs, en hvergi sást vatn. Kl. varð hálffjögur, og það var prílað upp á hvern liraunhólinn af öðrurn, og klukkan gekk í fimm, en hvergi sást vatn. Öskjuhraunið tætti í sundur skótau þeirra, en ekki sást Öskjuvatn. Þeir settust nið- ur og fengu sér sína hálfa kökuna hver. Af hlífð við skótauið var nú einn sendur af stað, og skyldi hann klífa alla hæstu hraunhnúka nær- liggjandi, fyrst til norðurs og síðan vesturs. Sá kom auga á Kollóttudyngju og þótti hún grun- samlega nærri og einnig Herðubreið. En til suðurs yfir hraunsútfallið sást loks hið lang- þreyða vatn. Lá leiðin þá í suður og blasti við Öskjuopið. Þegar þar var komið, sáust reykir á nokkrum stöðum í fjallinu austan vatnsins, og úti í vatninu var liólmi, og rauk svo mikið úr honum, að stundum hvarf hann með öllu í reykjarmökkinn. Kom það síðar í ljós, að hólma þcnnan höfðu þeir félagar fyrstir manna aug- um Iitið, og er talið fullvíst, að honurn hafi skotið upp við eldsumbrot, sem vart hafði orðið á þessum slóðum um vorið og sumarið. Efir þriggja tíma leit sáu þeir félagar nii inn í Öskju, liéldu gegnum Öskjuop. Vestur yfir nýrunnin hraun var þriggja tíma gangur. Þá fundu þeir loks fyrstu verksummerki mannlegr- ar nálægðar, síðan þeir lögðu upp á Vatnajökul af Viðborðshálsum. Þar var bréfblað í hraun- jaðri, og á mel var varða og tjaldstæði. Þar slógu þeir tjaldi sínu kl. liálfellefu, elduðu sér graut og átu. Þá var allhvasst suðvestan og mjög kalt. Þá nótt var lítið sofið. „Við lágum til kl. hálfþrjú um nóttina, en sváfum lítið vegna kulda,“ segja þeir. Svefnpoka og fleira, sem til skjóls mátti verða, liöfðu þeir látið eftir liggja uppi á jökli, eins og áður getur, en frost var, svo að pollar voru lagðir um morguninn. Þeir kveiktu á prímusnum til að hita upp tjaldið og hituðu sér jafnframt kaffi og borðuðu graut- arafgang frá kvöldinu. Kl. hálffimm lögðu þeir af stað eftir gaumgæfilega yfirvegun frammi fyrir kortinu. Veður var heiðskírt, nærri logn og þoka hvergi sjáanleg. Eftir tveggja tíma göngu komu þeir í skarð, þar sem stóð gríðarstór mó- bergsdrangur, og sáust þess merki, að þar höfðu liestar farið. Þar var komið Jónsskarð, og sann- færðust þeir félagar brátt um, að hér voru þeir á réttri leið. Kl. 8 tóku þeir árbít á stað, þar sem þeir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.