Jökull


Jökull - 01.12.1999, Side 106

Jökull - 01.12.1999, Side 106
1. mynd. Bægisárjökull. Ljósm./Photo Jónas Helgason 7. september 1996. grettistökum. Við austurtungunahefur hann gengið 24 m lengra fram en mældist nú. Við Jökulhaus hefur jökullinn nú lækkað. Austurtungan er há að framan, sandorpin og ávöl. Jökullinn hefur verið þverhníptur undanfarin ár. Hluti af vatninu kemur eftir farvegi austar en áður og sam- anlagt vatn meira en áður. Vatnajökull Síðujökull- Björn Indriðason sá að töluvert vatn hafði fallið til Djúpár úr austustu kvíslum Brunnár í leysing- um. Guðlaugur Gunnarsson mældi nú jöklana í fimm- tugasta skipti og hefur enginn áður náð því marki. í bréfi frá Helga Bjömssyni á Kvískerjum seg- ir m.a.: „Breiðamerkurjökull hefur haldið áfram að hopa, enda sýnist hann hafa minnkað hvar sem á hann er litið, nema vestast við Breiðárlón. Þar hefur sein- ustu árin sést á klettahamar neðst og hef ég ekki séð breytingu þar í sumar. En á Fjallsjökli hefur verið framskrið vestur af Fjallsárlóni, en við Breiðamerkurfjallhefurhann sýni- lega minnkað og líka við Ærfjall. Hrútárjökull hefur gengið til baka, þó hefur hann hækkað lítilsháttar á kafla neðan við Ærfjall. Kvíárjökull hefur færst í aukana á mælingastaðn- um. Hvort hái grjótjökulbunkinn hefur þar áhrif er óvíst en hann er kominn mjög nærri jaðrinum þarna. Mest áberandi breytingin síðan í fyrra er af völd- um Breiðár, því snemma í desember, líklega 4. eða 5., hætti hún að renna undan jöklinum ofan við Breiðár- lón, um 1 km vestur af Máfabyggðarönd, þar sem hún hafði lengi runnið, og braust út undan Máfabyggða- rönd með miklum látum og rennur svo vestur í Breið- árlón. Þá náði lónið fast að röndinni og var um 5 m djúpt þar. Framan við röndina var botnurð allt að 20 m hærri en yfirborð lónsins. Þegar Breiðá braust þarna fram, gróf hún sér farveg þvert vestur úr þessari urð allt að 15 m djúpan og 90 m breiðan og sópaði þessu efni vestur í Breiðárlónið og gerði þar árkeilu, sem hún hefur verið að bæta við síðan. Þegar þetta er talið hafa gerst, rigndi hér á Kvískerjum yfir 100 mm á 10 klukkustundum. Við sáum Hrútá daginn eftir þennan rigningarskvett, þann 5. desember. Hún náði þá upp í hæstu flóðmörk sem vitað er um. Við skoðuðum Kvíá líka sama dag. Hún var þá mjög mikil og kom undan jöklinum á nýjum stað, norðan við mælingastaðinn. Áberandi var þá hvað hún var dökk og leirborin. Kvíá hafði þarna útfall fram á sumar, en færði sig þá aftur suður fyrir mælingastaðinn." 104 JÖKULL, No. 47
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.