Jökull


Jökull - 01.12.1999, Page 110

Jökull - 01.12.1999, Page 110
Vorferð JORFI 6.-21. júní 1997 Magnús Tumi Guðmundsson Raunvísindastofiiun Háskólans, Hofsvallagötu 53, 107 Reykjavík Vorferðin nú var ein sú viðamesta og lengsta sem Jöklarannsóknafélagið hefur staðið fyrir. Ferðin var tvískipt og stóð hvor hluti yíir í viku. Nokkrir þátttak- enda voru allan tímann en flestir voru aðra hvora vik- una. Ástæða þess að ferðin nú var svo löng og viða- mikil voru verkefni sem vinna þurfi í Grímsvötnum og í Gjálp, gosstöðvunum norðan þeirra. Orðið hafa miklar breytingar á yfirborði jökulsins og legu vatna- sviða. Þá hefur hlaðist upp nýtt fjall á botninum auk þess sem kanna þurfti hvort breytingar hefðu orðið á botni Grímsvatna vegna ösku sem barst með bræðsluvatni frá gosstöðvunum. Því var þörf á um- fangsmiklum mælingum svo hægt verði að meta áhrif gossins á vatnsrennsli undir jöklinum, hugsanlegar rennslisleiðir jökulhlaupa og rúmtak Grímsvatna. Fyrri hópurinn lagði af stað föstudagskvöldið 6. júní frá Raunvísindastofnun Háskólans. Þegar búið var að hlaða bfla var lagt af stað áleiðis í Freysnes í Ör- æfum. Ekki var veðurútlit gott, norðaustan hvassviðri og kuldi. Fór líka svo að hópnum var ráðið frá því að fara yfir Skeiðarársand um kvöldið vegna sand- foks og því gist í Syðri Vík við Kirkjubæjarklaustur. Daginn eftir var ekið í Freysnes. Veður austan Öræfa- jökuls var hið versta og alls ekki ferðaveður á jökl- inum. Því var ákveðið að halda kyrru fyrir í Freys- nesi og fara á jökul daginn eftir en þá var veðurspá betri. Gekk þetta eftir og kom hópurinn á Grímsfjall síðla kvölds sunnudaginn 8. júní. Farartæki voru snjó- bfll Landsvirkjunar, jeppar og vélsleðar. Á mánudeg- inum var svæðið kannað og hafist handa við mælingar. Viðamesta verkið fyrri vikuna var endurkastsmæling á Grímsvötnum og unnu lengst af sex til átta manns við það verk. Seinni hópurinn lagði af stað föstudags- kvöldið 13. júní og var sú ferð samkvæmt áætlun og tíðindalítil enda birtist hópurinn á fjallinu síðdegis á laugardeginum. Viðamesta verkið seinni vikuna var borun holu gegnum íshellu Grímsvatna. Afkomumœling með kjarnabor í Grímsvötnum. Dodge bíll JÖRFI reyndist vel í þessari fyrstu ferð sinni á Vatnajökul. Þátttakendur fyrri vikuna voru 24 en 30 þá seinni. Að auki dvöldu með okkur í þrjá daga fimm manna hópur á vegum Saga film en fyrirtækið vinnur nú að gerð heimildarmyndar um gosið og hlaupið. Tíu manna hópur var á jöklinum báðar vikurnar. Farar- stjóri var Magnús Tumi Guðmundsson. RANNSÓKNIR Helstu verkefni leiðangursins voru sem hér segir: 1. Issjármælingar Mælingar voru gerðar á þykkt íshellu Grímsvatna til að meta breytingar vegna bráðnunar við botn hennar samfara gosinu. Þá var mælt landslag í rennunni yfir ísstífluna austan Grímsvatna. Eftir athugun tókst að finna færa leið með íssjánna niður í sigketilinn í norðurhluta gosstöðvanna. Tókst að fá grófa mynd af lögun og stærð nýja fjallsins undir jöklinum. 2. Endurkastsmœlingar Til að kanna hugsanlegar breytingar sem orðið hafa 108 JÖKULL, No. 47
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.