Jökull - 01.12.1999, Síða 116
FRÉTTABRÉF
Oddur Sigurðsson, ritari félagsins, annaðist útgáfu
Fréttabréfsins sem flutti ítarlegar frásagnir af starfi
félagsins og atburðum í jöklum. Margir hafa nefnt það
við mig að fréttabréf félagsins sé mjög fróðlegt og
skemmtilegt.
SKÁLAMÁL OG HÚSNÆÐI í
REYKJAVÍK
Skálarnir félagsins í Jökulheimum, Grímsfjalli, Kverk-
fjöllum, Goðahnúkum, Esjufjöllum og Kirkjubóli eru
í mjög góðu lagi. Þessir skálar voru á sínum tíma
reistir til þess að auðvelda ferðalög og rannsóknir á
jöklum. Þannig hafa skálar á Grímsfjalli og í Jökul-
heimum reynst afar vel. Hins vegar hefur nýting
annarra skála verið lítil.
Húsnæðismál félagsins í Reykjavík eru nú í sama
lagi og fyrr í húsi Ferðafélags Islands. Þar leigjum við
fundarherbergi á efstu hæð og í geymslu í kjallara eru
birgðir okkar af Jökli og ýmis gömul skjöl félagsins.
Auk þess höfum við aðgang að 60 manna sal með
eldhúsi í risi hússins. Alexander Ingimarsson er
fulltrúi félagsins í húsnefnd og eru félagar sem hafa
áhuga á að nýta sér húsnæði þar hvattir til þess að hafa
samband við hann.
JÖKLARANNSÓKNASTÖÐ Á
KVÍSKERJUM
Nú hefur náðst samkomulag um að reist skuli á Kví-
skerjum náttúrufræðistöð í tengslum við Háskóla
íslands. Þar sem jöklarannsóknir gætu orðið mikil-
vægur þáttur í starfi slíkrar stöðvar óskaði háskóla-
rektor, Sveinbjörn Björnsson, eftir samstarfi við
Jöklarannsóknafélagið um uppbyggingu stöðvarinnar
og aðalstjórn félagsins samþykkti á fundi með honum
að beita sér fyrir því innan félagsins, í stað þess að
byggja upp að Breiðá. Við sjáum fyrir okkur að á Kví-
skerjum geti risið þriðja meginstöð okkar félags, auk
Jökulheima og Grímsfjalls. Þegar hefur verið sam-
þykkt skipulag lóðar þar sem félaginu hefur verið
afmarkaður staður fyrir byggingar. Fjárhagur félags-
ins leyfir okkur hins vegar ekki að ráðast í nýbygging-
ar en félagar gætu lagt til vinnu og í stjóm félagsins
höfum við rætt um að nýta mætti þá skála, sem þegar
hafa verið byggðir en nær ekkert em notaðir af okkar
félagi, og flytja þá til Kvískerja. Þar myndu þeir þegar
nýtast vel til jöklarannsókna. Ég tel afar brýnt að
Jöklarannsóknafélagið þekki nú sinn vitjunartíma,
taki vel málaleitan Háskólans, hasli sér völl á Kví-
skerjum og vinni með skólanum að því að koma þar
upp bækistöð sem yrði miðstöð rannsókna í glímunni
við þá hlið Vatnajökuls, sem hann snýr í suður; barátt-
unni við skaftfellsku jökulfljótin, jökulhlaupin, jökul-
sandana, þá félagana Skeiðarárjökul og Breiðamerk-
urjökul, áhrif þeirra á samgöngur hvort sem er við
Jökulsárlón, Skeiðará eða Sandgígjukvísl. Samvinna
um það við Háskóla íslands yrði þessu félagi til ævar-
andi sóma.
BÍLAMÁL OG FARARTÆKI
A árinu 1996 nýttist snjóbíll félagsins, Canadair
Flextrac CF 20 árgerð 1975, allvel þótt nokkrar
bilanir hafi orðið og erfitt væri að finna varahluti enda
bíllinn kominn yfir tvítugt. Stöðugar umræður fóm
fram á árinu um hvernig unnt væri að bæta bílakost
félagsins og snemma á árinu 1997 var ráðist í að
kaupa jöklajeppa, Dodge Ram af árgerð 1990 og
vinnur nú bflanefndin að því að gera hann jökulkláran
fyrir vorferðina, einkum til fólksflutninga þótt einnig
sé búist við að hann geti dregið allhlaðnar kerrur.
SUMARFERÐ
í framhaldi af fræðslufundum um Kötlu og Mýrdals-
jökul efndi félagið til skoðunarferðar umhverfis
jökulinn helgina 6.-7. júlí í fullskipaðri rútu. Farar-
stjóri var Oddur Sigurðsson. Valur Jóhannesson lýsti
breytingum á sporði Sólheimajökuls sem gengið hefur
fram síðastliðinn aldarfjórðung. I heiðinni ofan við
Sólheimakot sýndi Haukur Jóhannesson ummerki
eftir stórgos í Mýrdalsjökli fyrir 12.000 árum, en það
er talið eitt mesta gos, sem orðið hefur við Norður
Atlantshaf síðastliðin 100.000 ár. Haukur Tómasson
sagði frá Kötluhlaupinu 1918 og sýndi ummerki þess
m. a. við Hafursey, Selfjall, Hjörleifshöfða og í Alfta-
veri. Gist var í skála í Hólaskjóli og tjöldum í Lamba-
114
JÖKULL, No. 47, 1999