Jökull - 01.06.2000, Side 85
Skýrsla formanns Jarðfrœðafélags Islands
sem hún nefndi Volcanic Crustal Accretion at Mid-
Ocean Ridges at Fast and Slow-Spreading Rates. Em-
ilie sýndi mismunandi skorpustrúktúra annars veg-
ar á Austur Kyrrahafshryggnum sem er "fast sprea-
ding"og hins vegar á Mið Atlantshafshryggnum, sem
er "slow spreading", sem hún túlkaði sem mismuna-
andi skorpumyndum á þessum stöðum. Kvikuhólf
hafa fundist með skjálfta gögnum undir Kyrrahafs-
hryggnum, en ekki undir M-Atlantshafshryggnum þar
sem skorpumyndun virðist meira misleit.
Á fræðslufundi félagsins í mars talaði Kristín Vog-
fjörð jarðeðlisfræðingur á Orkustofnun um P og S
bylgjulestir í skorpu. Kristín fjallaði um bylgjuút-
breiðslu í skorpu frá smáskjálftum og sprengjum, og
sýndi hvemig samsetning (character) P og S bylgju-
lesta úr skorpu ræðst af dýpi upptaka, hraðastrúktúr
og þykkt skorpunnar. Hún sýndi dæmi frá smánetum í
Evrópu og Norður- Ameríku, þar sem aðgreina mátti
dýptarfasa, fyrsta og annað Móhó endurkast, bylgj-
ur sem beygja í skorpunni, Rayleigh bylgjur, möttul-
bylgjur og P-SV umbreyttar bylgjur. Einnig sýndi hún
gögn frá SIL netinu en í sumurn tilvikum er þar hægt
að nota millifasana til að ákvarða dýpi skjálfta.
Á fræðslufundi félagsins í apríl talaði Maryam
Khodayar jarðfræðingur, sem nú hefur aðsetur á
Orkustofnun, um Structural analysis of fractured oce-
anic cmst: Methods, objectives and field examples
from Borgarfjörður, W-Iceland. Maryam Khodayar
hefur starfað við rannsóknir á tektónik Borgarfjarð-
arsvæðisins síðan 1995, fyrst í samvinnu við Norrænu
Eldfjallastöðina, en árið 1996 var verkefnið útvíkk-
að í samvinnu við Hauk Jóhannesson og Páll Ein-
arsson. Hún sýndi sprungukort af Borgarfjarðarsvæð-
inu og undirstrikaði að tektónísk saga þess væri mjög
flókin. Maryam sýndi myndir úr feltinu af göngum,
misgengjum, misgengisbreksíum, míkró-strúktúrum,
sprungufyllingum og sýndi hvernig hægt er að nota
"cross-cutting"sprungna til að spá í aldur og tektón-
íska sögu svæðisins.
Á fræðslufundi félagsins í maí talaði Anne Jenn-
ings, götungafræðingur og rannsóknarprófessor við
INSTAAR og háskólann í Colorado um: A compari-
son of Late Weichselian ice extent and deglaciation
on the western Iceland and East Greenland shelves.
Hún sýndi gögn um útbreiðslu jökla og hörfun þeirra
á svæðunum beggja vegna Danmerkur sundsins, þ.e. í
Kangerlussuaq troginu á Austur Grænlandi og í Jök-
uldjúpi.
JÖKULL
Áslaug Geirsdóttir, dósent við jarðfræðaskor H.I., er
ritstjóri Jökuls fyrir hönd Jarðfræðafélagsins, en aðrir
ritstjórar eru Bryndís Brandsdóttir, jarðeðlisfræðing-
ur á RH og Halldór Gíslason arkitekt, sem er ritstjóri
íslensks almenns efnis. I ritnefnd sitja Leó Kristjáns-
son, Helgi Torfason, Kristján Sæmundsson, Haukur
Jóhannesson, Karl Grönvold og Tómas Jóhannesson.
Nú eru þrjú þemahefti af Jökli í vinnslu - eitt um Kötlu
undir ritstjórn Áslaugar og Bryndísar annað um jökla-
rannsóknir, en gestaritstjóri þess heftis er Tómas Jó-
hannesson. Þriðja þemaheftið er undir ritstjórn Helga
Torfasonar, en það er helgað gosinu í Vatnajökli 1996
og hlaupinu í kjölfar þess.
STJÓRN JFÍ
Stjórn félagsins er þannig skipuð: Árný E. Svein-
björnsdóttir, formaður, Edda Lilja Sveinsdóttir, ritari,
Hjálmar Eysteinsson, gjaldkeri, og meðstjórnendurn-
ir Georg Douglas, Helgi Torfason, Kristján Ágústsson
og Magnús Tumi Guðmundsson. Nú ganga úr stjórn
þau Georg Douglas, Helgi Torfason, Magnús Tumi
Guðmundsson auk formanns. Ég vil nota þetta tæki-
færi til að þakka meðstjórnendum sem nú ganga úr
stjórn fyrir góð störf í þágu félagsins.
Endurskoðendur félagsins voru á síðasta ári þeir
Ásgrímur Guðmundsson og Skúli Víkingsson, báðir á
Orkustofnun.
NEFNDIR OG RÁÐ Á VEGUM
FÉLAGSINS
Orðanefnd var endurskipuð til tveggja ára frá og með
1. maí 1997. í henni eiga sæti Jón Eiríksson (formað-
ur), Barði Þorkelsson, Freysteinn Sigurðsson, Guðrún
Þ. Larsen, Haukur Jóhannesson, Leó Kristjánsson og
Sigurður Steinþórsson. Aðalverkefni nefndarinnar er
gerð jarðfræðilegrar orðaskrár með það að markmiði
að skilgreina jarðfræðileg hugtök á íslensku, finna ís-
lensk heiti og skrá þau ásamt sambærilegum erlendum
orðum. Stjórn JFÍ telur einnig brýnt að nefndin safni
JÖKULL No. 48 83