Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 26
Helgarblað 10.–13. október 201426 Umræða Umsjón: Henry Þór Baldursson Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni Ógjaldfærir Ö gmundur Jónasson, alþingis­ maður, hefur lagt hressi­ leg orð í belg í opinberri umræðu um samkeppnis­ mál á liðnum dögum, m.a. í kjallaragrein í DV þann 7. október sl. Málflutningur Ögmundar er af­ dráttarlaus og skapar þannig grund­ völl undir umræður um samkeppn­ islög og beitingu þeirra. Sjálfsagt er að nýta það tækifæri. Af kreddufestu og kapítalisma Ögmundur líkir Samkeppnis­ eftirlitinu við varðstöðumenn kommúnískrar rétthugsunar í Sovét­ ríkjum síðustu aldar. Með líkum hætti fylgi Samkeppniseftirlitið nú kenningum markaðshyggjunnar eftir af mikilli kreddufestu. Þarna örlar á þeim gamla misskilningi að Samkeppniseftirlitið sé boðberi tiltekinnar stjórnmála­ stefnu, þ.e. kapítalisma eða frjáls­ hyggju. Ekkert er fjær sanni. Samkeppnisreglur eru einmitt settar vegna þess að reynslan sýn­ ir að hætta er á því að fyrirtæki skaði almannahagsmuni með hátt­ semi sinni. Samráð fyrirtækja eða misnotkun á markaðsráðandi stöðu leiðir til þess að viðskiptavin­ ir og neytendur skaðast og keppi­ nautar hrökklast út af markaði. Samkeppnis reglur gera hvort tveggja í senn; þær setja óheftri markaðs­ hyggju skorður og tryggja um leið að ný og smærri fyrirtæki geti þrifist og neytendur þurfi ekki að sæta yfir­ gangi öflugra fyrirtækja. Af þessum sökum hafa yfir 120 ríki í heiminum sett sér samkeppnis­ reglur sem hafa sömu markmið og geyma hliðstæðar efnisreglur, óháð stjórnmálastefnu í hverju landi. Þannig gilda í aðalatriðum sam­ bærilegar samkeppnisreglur víð­ ast hvar um hnöttinn; frá Kanada til Kína, Grænlandi til Grænhöfða­ eyja, Brasilíu to Botsvana og Úkraínu til Ástralíu. Hvarvetna hafa menn þannig komist að sömu niðurstöðu: Samkeppnisreglur eru nauðsynlegar til að stuðla að þróttmikilli atvinnu­ starfsemi og bæta hag almennings. Stórfenglega dæmið „Stórfenglegt dæmi um kreddufestu Samkeppniseftirlitsins“ telur Ög­ mundur vera „þegar Bændasamtök Íslands voru látin greiða háa sekt fyrir að ræða verðlagsmál landbún­ aðarafurða á þingi samtaka sinna.“ Þarna er vísað til 10 m.kr. sektar sem Samkeppniseftirlitið lagði á Bænda­ samtökin á árinu 2009. Rannsókn eftirlitsins hafði leitt í ljós að fram­ leiðendur kjúklinga, eggja, græn­ metis og svínakjöts, sem ekki lúta opinberri verðlagningu, notuðu vett­ vang búnaðarþings til verðsamráðs. Umræður bænda um verð á afurð­ um sem lúta opinberri verðlagningu voru hins vegar ekki taldar fela í sér ólögmætt samráð. Ákvörðunin var kærð til áfrýj­ unarnefndar samkeppnismála. Nefndin staðfesti ákvörðunina og taldi að samráðið hefði miðað að því að hækka verð á þessum búvör­ um, neytendum til tjóns. Hins vegar lækkaði nefndin sektirnar úr 10 í 7,5 m.kr. Bændasamtökin ákváðu að una úrskurðinum og báru hann ekki undir dómstóla. Ætli neytendur telji umrætt mál vera dæmi um „kreddufestu“ Samkeppniseftirlitsins? Mannréttindi fyrirtækja Ögmundur virðist skipa sér í lið með stórfyrirtækjum, hér á landi og er­ lendis, sem lengi hafa barist fyrir því að þau njóti sömu mannréttinda og manneskjur. Af þessum meiði eru margvíslegar áhyggjur af réttar­ öryggi, s.s. því að rannsókn máls, ákvörðun um brot og fyrirmæli um úrbætur séu á hendi sömu stofnunar. Sömuleiðis halda fyrirtæki sem brot­ ið hafa á almannahagsmunum því oft fram að samkeppnislög séu of óskýr til að hægt sé að fara að þeim. Það er sjálfsagður réttur fyrir­ tækja að láta reyna á úrlausnir samkeppnismála og samkeppnis­ reglur. Kjarni málsins er einmitt sá að til þess hafa fyrirtæki alla möguleika. Þannig býðst þeim að kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjun­ arnefndar samkeppnis mála og fá þaðan úrskurð innan fárra vikna. Þá geta fyrir tæki leitað úrlausnar dóm­ stóla um gildi úrskurðar nefndarinn­ ar. Stjórnsýsla og skipulag samkeppnismála hér á landi er áþekkt því sem þekkist í öðrum ríkj­ um. Nefna má að Mannréttindadóm­ stóll Evrópu hefur hafnað því sjónar­ miði að sams konar skipulag í Ítalíu brjóti gegn grundvallarréttindum. Réttaröryggi fyrirtækja á þessu sviði er því tryggt til hins ítrasta. Í umræðu um réttindi fyrirtækja mega hins vegar ekki gleymast þeir al­ mannahagsmunir sem samkeppnis­ reglum er ætlað að tryggja. Má ráðleggja Alþingi? Ögmundur finnur líka að því að Samkeppniseftirlitið vilji segja Al­ þingi fyrir um hvernig lög eigi að vera. Hér er rétt að minna á að samkvæmt samkeppnislögum ber Samkeppnis­ eftirlitinu að benda stjórnvöldum á leiðir til að gera samkeppni virkari. Eftirlitinu ber einnig að vekja athygli ráðherra á því ef það telur að ákvæði laga eða stjórnvaldsfyrirmæla stríði gegn markmiði laganna eða torveldi samkeppni. Kveðið er sérstaklega á um þetta í 8. og 18. gr. laganna. Hér er Samkeppniseftirlitið því að rækja það hlutverk sem löggjafinn sjálfur hefur falið því með lögum. Að tala niður lögin og eftirlitið Á meðal þess sem hrunið kenndi okkur öllum var að við ættum að leggja áherslu á festu við lagafram­ kvæmd, bera virðingu fyrir lögum og tryggja að eftirlitsstofnanir hefðu úr nægu fjármagni að moða. Nú tíðkast það hins vegar, líkt og fyrir hrun, að tala niður til eftirlits­ stofnana. Í vandlætingartón er talað um að koma þurfi böndum á „eftir­ litsiðnaðinn“ og draga úr „eftirlits­ byrði“. Einhverra hluta vegna fennir hratt yfir sporin og lærdómurinn af hruninu virðist gleymdur. Sárast er að hagsmunir almennings gleymast í þessari orðræðu. Það er sjálfsagður réttur allra að hafa skoðun á ákvörðunum og áherslum Samkeppniseftirlitsins á hverjum tíma. Niðurstöður Samkeppniseftirlitsins eru ekki óskeikular frekar en önnur mannanna verk. Það er hins vegar alvarlegt mál þegar ráðamenn sjálf­ ir tala niður það regluverk og eftir­ litsskipulag sem löggjafinn hefur ákveðið. Þá skulum við ekki reikna með því að fyrirtæki og einstaklingar telji sig þurfa að fara að lögum. n Samkeppni og kreddur Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins Aðsent „Hér er Samkeppn- iseftirlitið því að rækja það hlutverk sem löggjafinn sjálfur hefur falið því með lögum. „tikk … takk … tikk … takk allt mun hrynja aftur sorry :(“ segir Guðlaugur Guð- mundsson í athugasemd við frétt sem fjallar um gamla Landsbankann. DV sagði frá því í vikunni að gengi íslensku krónunnar myndi falla ef ekki tækist að semja um svokallað Landsbankabréf, 230 milljarða króna skuldabréf Landsbankans gagnvart búi gamla Landsbankans (LBI), um átta ár. 6 „Meginatriði þessa máls er ekki persóna doktorsnemans heldur stjórnsýsla Viðskiptafræðideildar, Félagsvísindasviðs og Háskóla Íslands. Allir þessir aðilar þurfa að gera fulla grein fyrir málsmeðferð innan Háskólans allt frá því doktorsneminn sótti um inntöku í doktorsnám og þar til honum var vikið úr Háskóla Íslands. Fróðlegt væri síðan að gera samanburð á þessari málsmeðferð og viðbrögðum Háskólayfirvalda eftir að háskólaprófessor var dæmdur í Hæstarétti fyrir stórfellt brot á höfundarréttarlögum (ritstuld).“ Þetta segir Svanur Kristjáns- son, en DV greindi frá því í vikunni að í febrúar síðast- liðnum hefði Linjie Chou, kínverskum doktorsnema við Háskóla Íslands verið vísað formlega úr Háskóla Íslands. 25 „Þau verða varla svona glöð á svipinn þegar þau fá sektina og ekki heldur þyrlufyrirtækið, þeim hefði ekki veitt af smá gasi.“ segir Héðinn Ó. Skjaldarson, en auðuga tískudrottningin Goga Ashkenazi setti mynd- band af sér á netið á dögunum þar sem hún sást vera í óleyfi við Holuhraun. 9 „Hvað nákvæmlega kemur það málinu við hvort embættismaðurinn tekur strætó á morgnana í vinnuna eða ekki?“ spyr Ásthildur Cesil Þórðardóttir. 10 „Upplýsingafull- trúi ráðuneytis ákveður bara að hún nenni ekki að tala við einn fjölmiðlanna? Seems legit...“ Tinnu Gígju fannst heldur óeðlilegt að Þórey Vilhjálms- dóttir hafi vísvitandi kosið að svara ekki blaðamönnum DV, líkt og kom fram í stefnu hennar á blaðamönnum DV. 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.