Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 44
Helgarblað 10.–13. október 201444 Menning Þ að er engum ofsögum sagt að FIFA-tölvuleikirnir hafa fyr- ir löngu skipað sér sess með- al allra bestu íþróttatölvuleikja sögunnar. Allt síðan FIFA reykspólaði fram úr Pro Evolution-leikjunum fyrir um það bil fjórum árum hafa leikirnir orðið betri og betri. Á dögunum kom FIFA 15 í versl- anir og er óhætt að segja að leikurinn haldi heiðri FIFA- seríunnar á lofti. Það skal strax tekið fram að engar brjálæðislegar breytingar hafa verið gerð- ar milli leikja og er FIFA 15 í mjög stuttu máli aðeins fínpússuð og uppfærð út- gáfa af FIFA 14. Ýmis at- riði hafa þó verið bætt og eru það fyrst og fremst at- riði sem snúa að sjálfri spiluninni; það er til dæm- is orðið raunverulegra að tækla, sóla og skjóta. FIFA 15 er raunverulegasti fót- boltatölvuleikur sem gefinn hefur verið út og er það ekki síst nýjustu kynslóð leikjatölva að þakka, Playsta- tion 4 og Xbox One. Leikurinn lítur fáránlega vel út og loksins eru áhorf- endur eitthvað annað en gervileg pappaspjöld. Mikil vinna hefur ver- ið lögð í sjálfa vellina sem spilað er á og alla umgjörð í kringum leikina. Þetta er nánast eins og að horfa á fót- boltaleik í sjónvarpinu. Það vantar bara Gumma Ben í lýsinguna. Þó að leikurinn sé í alla staði frábær þá er hér ekki um neina byltingar- kennda útgáfu að ræða. Til dæm- is hafa litlar breytingar verið gerð- ar á öðrum þáttum leiksins sem ekki snúa beint að sjálfri spilun- inni. Þú getur enn byrjað ferilinn sem ungur og efnilegur leikmað- ur (e. player career) og bætt þig með tímanum. Þetta er gaman í ákveðinn tíma en verður þreytandi og einhæft til lengdar. Ultimate Team er á sínum stað og auðvitað eru möguleikarnir í netspiluninni margir og góðir. Þegar allt kemur til alls er FIFA 15 mjög fín skemmtun, sérstaklega ef þú hefur aðeins áhuga á að spila með félögunum heima eða á netinu. Breytingarnar á leiknum milli ára eru ekki miklar og það þarf alls ekki að vera neikvætt. FIFA-leikirnir eru sönnun þess að góðir hlutir ger- ast hægt. n Góðir hlutir gerast hægt Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is FIFA 15 Spilast á: PS4, PS3, PS Vita, 3DS, PC, Xbox 360 og Xbox One Einkun: Metacritic 81 Tölvuleikur Lítur vel út Englandsmeistarar Manchester City eru flottir í FIFA 15. Leikurinn hefur aldrei verið flottari þó að breytingarnar milli ára séu ekki ýkja miklar. Danskt klám og grátandi Svíar Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs verða veitt í lok október H ver vinnur kvikmyndaverð- laun Norðurlandaráðs í ár? Fyrir þá sem fylgjast að jafn- aði ekki með íþróttum geta kvikmyndaverðlaun Norð- urlandaráðs verið góð skemmtun. Á þetta ekki síst við í ár, þar sem löndin fimm tefla fram feiknasterkum liðum og eiga sum heima í meist- aradeild. Danir unnu þó í fyrra fyr- ir Jagten og voru vel að því komnir. Þó ég haldi jafnan með Finn- um í því sem þeir taka sér fyrir hendur verður að segjast eins og er að þeir eru með slappara móti í ár. Myndin Concrete Night fjall- ar um tilvistarlegt ferðalag drengs um Helsinki að nóttu til. Er hún afar hæg og stundum áferðarfalleg fram- an af, en bregst sjálfri sér undir lokin þegar allt þarf að enda með morði og sjálfsmorði og vinnur gegn hinu lág- stemmda raunsæi sem svo haganlega var búið að byggja upp. Hross í oss er með skemmtilegri íslenskum myndum undanfarið og fylgir í kjölfar Djúpsins til að vera til- nefnd fyrir Íslands hönd. Þrátt fyrir gott gengi á kvikmyndahátíðum eru Hrossin þó varla mjög sigurstrang- leg, enda hafa kvikmyndaþjóðirn- ar miklu, Danir og Svíar, skipt verð- laununum á milli sín frá því þau voru fyrst veitt árið 2005. Norðmenn koma á óvart Þó að ég hafi haft hálft ár til að melta hana er ég enn ekki viss um hvað mér á að finnast um Nymphomaniac Lars Von Triers. Eins og alltaf kann hann að spila á rétta strengi og maður hlær og grætur á víxl, fyllist samúð eða hryllingi eftir því sem við á. Þó hefði vel verið hægt að sinna þessu efni með einni mynd fremur en tveimur, enda bætir hin mikla lengd litlu við það sem kemur fram á fyrstu klukku- tímunum. Eins og Trier er líkt gengur hann alltaf aðeins of langt, átta menn á viku hefði verið raunsærra en átta á nóttu, en vafalaust er þetta gert til að láta mann efast um sögumann eins og mjög er í tísku í norrænum bók- menntum þessa dagana. Von Trier vann síðast árið 2009 fyrir hina um- deildu Antichrist, en telst þó varla sigurstranglegastur í ár. Sú mynd sem kemur mest á óvart er hin norska Blind. Norðmenn hafa lengi staðið frændþjóðum sínum langt að baki í kvikmyndagerð en eru nú óðum að sækja í sig veðrið. Eskil Vogt er handritshöfundur sem hér leikstýrir sinni fyrstu mynd. Rétt eins og er í tísku þessa dagana er ekki ljóst hvað er skáldskapur og hvað raun- veruleiki, en sögupersónan er blind- ur rithöfundur sem skrifar bók um persónur sem óðum blandast inn í líf hennar sjálfrar. Hugmyndaauðgin er mikil og ótrú- legt hvað höfundur er fljótur að af- greina hin ýmsu minni. Um tíma er eins og maður sé staddur í klámfíkla- mynd á borð við Shame eftir Steve McQueen, en er síðan rifinn út úr þeim pælingum og beint inn í Veröld Soffíu. Einna haganlegast er hvern- ig fjöldamorð Breiviks eru afgreidd. Hin mikla samkennd þjóðarinnar sem brýst út í kjölfarið verður fljót- lega aftur að hversdagsleika, sem þó einkennist af meiri tortryggni en áður. Persónan getur ekki annað en sakn- að eftirmála fjöldamorðanna, sem er hugrökk athugasemd og margt í úrvinnslu fjöldamorðanna minnir reyndar á eftirmál bankahrunsins hér. Erfitt að elska Norðmenn (og Svía) Norðmenn gætu hér hæglega bland- að sér í toppslaginn og ættu ef til vill sigurinn vísan ef ekki væri fyr- ir feiknasterkt framlag Svía, en svo skemmtilega vill til að báðar þessar myndir fjalla öðrum þræði um ástar- sambönd á milli Norðmanna og Svía. Ruben Östlund vann í hittifyrra fyr- ir hina umdeildu mynd Play, en hér mætir hann til leiks með enn sterkara verk, myndina Turist (Force Majeure). Myndin er nánast óaðfinnanleg þegar kemur að kvikmyndatöku, klippingu og tónlist, og þó finnst manni sem hér sé eitthvað á ferðinni sem mað- ur hefur ekki séð áður. Og samt er það söguþráðurinn sjálfur sem er áhuga- verðastur. Östlund segist vilja taka sjálfumgleði Norðurlandabúa háls- taki, en hann gerir í raun meira en það og sker inn að kviku. Rétt eins og Play fjallaði um viðhorf til innflytjenda, þar sem hann sallaði niður pólitískan rétt- trúnað jafnt sem rasisma, er hér röðin komin að samskiptum kynjanna. Karlmenn sem fæddir eru á átt- unda áratugnum vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga og eru jafn ómögulegir í samskiptum sínum við yngri konur og jafnöldrur. Skandin- ava þessa skortir hugrekki og bregð- ast þannig fjölskyldum þar sem þeir eru þrátt fyrir allt settir í hefðbund- in hlutverk, á meðan konurnar eiga erfitt með að takast á við grenjandi karlpening. Enn virðist enginn geta átt samskipti hver við annan, þrátt fyrir 40 ára jafnréttisbaráttu. Kannski er það eina sem hægt er að gera að fara upp á fjöll og öskra til að spara sér sálfræðitímana, eða kannski er kominn tími til að gefast upp á sam- bandsforminu og stunda fjölást eins og myndin gefur í skyn. Eitt af því sem er áhugavert við nor- rænu kvikmyndaverðlaunin er hvað þau eru lítið pólitísk. Besta myndin er valin án tillits til þess að allir fái eitt- hvað, og það sama á við um leikstjóra. Ef Thomas Vinterberg (sem hefur unnið tvisvar á undanförnum fjórum árum) og Ruben Östlund gera bestu myndir Norðurlanda, þá einfaldlega vinna þeir oftast. Hlýtur því Östlund að teljast sigurstranglegastur í ár. n Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Ekki sigurstrangleg Valur Gunnarsson telur ekki líklegt að framlag Íslendinga hljóti norrænu kvikmyndaverðlaunin í ár. Gengur of langt Danski leik- stjórinn Lars von Trier vann verð- launin síðast árið 2009, nú er hann tilnefndur fyrir Nymphomaniac. Upprennandi meistari Sænski leikstjórinn Ruben Östlund var í aðalhlutverki á RIFF-kvik- myndahátíðinni á dögunum. Hann gæti vel hlotið kvikmyndaverð- laun Norðurlanda- ráðs í ár. „Östlund segist vilja taka sjálfumgleði Norðurlandabúa hálstaki. Úr vegabréfi Sigmundar Ernis Af amerískum ofsaakstri Ekki vorum við fyrr lent á al- þjóðaflugvellinum utan við Panamaborg að ræðismaður Ís- lands á staðnum var búinn að skófla okkur upp í glæsibifreiðar sínar þrjár, gljáfægðar, rennilegar og rándýrar. Farangurinn kæmi síðar. Aðalatriðið væri að koma okkur á burt. Hratt og örugglega. Eftir engu væri að bíða. Og í sam- ræmi við allt það ofboð fór í hönd ein sú glannalegasta aksturs- ferð sem ævi mín hefur kynnst; himinhátt á öðru hundraðinu var brunað inn að hótelinu okk- ar við aðaltorgið sjálft. Ég hafði á tilfinningunni að bíllinn okkar snerti aldrei strætin sem hann stefndi eftir, slík voru rosaköstin sem hann tók með rykkjum og sveigjum í átt að borginni kviku við Kyrrahaf. Það lá við nærri að skrokkurinn á manni þrykktist svo rækilega inn í sætisbakið að þar mætti um aldur og ævi lesa bakbein manns og nýrnalag. Og syfjulegt andlitið, sem hafði lagað sig að ógnarlangri flugferðinni á undan, var sem snöggvast stirðn- að, steypt og stokki hert. Þarna vorum við þrír fulltrúar íslensku löggjafarsamkundunn- ar ásamt saklausum mökum okk- ar á leiðinni á ársþing alþjóða- þingmannaráðsins sem að þessu sinni var haldið þar sem Ame- ríkubelgirnir heilsast með virkt- um í hafinu heita. Og það vantaði ekki móttökurnar; hinn háaldr- aði ræðismaður Íslands í Panama lét sem hefði hann himin hönd- um tekið; aldrei fyrr hafði hann tekið á móti heilli og herrans þingnefnd frá landinu bláa – og nú skyldi dekrað við hana alla í krók og keng. Loksins, loksins var hægt að nýta ákvæðið um akstur í sjálfu ræðismannaregluverkinu – og aka með háttvirta þingmenn á þeim hraða sem hugnast vildi. Og það þurfti ekki að segja ungu, vel tenntu og vöðvastæltu ökumönn- um karlsins það oftar en einu sinni; af svip þeirra að dæma var sem þeir hefðu verið bænheyrðir af guði almáttugum og mey hans Maríu og dýrlingum öllum; hægri löppin stóð sem stjörf á stæltri bensíngjöfinni – og nú var vélin ærð sem stimplar gátu stunið. Framan við hótelið mátti líta þrjá náhvíta þingmenn stíga út úr jafn mörgum bifreiðum ásamt einhverri taugahrúgu af mökum sínum grænum, þá loks að þessu lauk. Eitthvert sambland af ógleði og örvæntingu gat að lesa upp úr andliti þessa aðkomufólks sem gekk á að giska skjálfandi skref- um inn í anddyri hótelsins, alls óljóst um hvað komið hefði fyr- ir það. Og svona gekk þetta næstu daga, eða öllu heldur keyrði … og það um þverbak. Hinn háaldraði ræðismaður, sem var í meira lagi elskur að bifreiðum sínum öllum, hafði í aðdraganda þessarar þing- mannareisu okkar planlagt öku- ferðir út um allar koppagrund- ir þessa óvenjulega lands sem tengir bæði álfur og úthöf. Aldrei fyrr hef ég verið bílveik- ur af tilhugsuninni einni að þurfa að stíga upp í bíl að morgni dags, eftir allar þær martraðir nætur- innar um útafakstur og afveltur, árekstra og örkumlan, andnauð- ir og endalok. En ég sé ennþá fyrir mér brosið í andliti öku- mannanna; þetta mannaskíts- glott sem fylgir því að þurfa ekki lengur að fara að lögum, heldur vera yfir þau hafin, með löggjaf- ana aftur í.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.