Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 29
Helgarblað 10.–13. október 2014 Fólk Viðtal 29 hefta mig. Ég kýs fólk sem fylgir sinni sannfæringu og hef trú á að ætli að láta gott af sér leiða.” Sveinbjörg varð fljótt mjög virk í Framsóknarflokkn- um og tók þriðja sæti á lista í Reykja- víkurkjördæmi suður í síðustu al- þingiskosningum. Hún er því ekki bara borgarfulltrúi, heldur einnig varaþingmaður og næsta mánudag mun hún setjast í fyrsta skipti á þing. Hafði meiri áhuga á landsmálum „Ég hef verið pólitísk mjög lengi og þegar ég var í lögfræðinni þá áttaði ég mig á því að allt snerist um póli- tík. Eftir hrun hef ég svo mikið ver- ið að vinna í skuldamálum fyrir einstaklinga og mér finnst ýmislegt ábatavant í neytendagjöfinni, hvað varðar stöðu einstaklinga gagnvart bankastofnunum. Ég hugsaði því með mér að ég yrði bara að komast í þá stöðu að geta breytt þessu sjálf,“ segir Sveinbjörg og heldur áfram: „En svo ég viðurkenni það bara þá hef ég alltaf haft miklu meiri áhuga á landsmálunum og stóru heildar- myndinni. Mér hefur fundist sveitar- félögin vera á allt öðru plani, sem ég hafði aldrei sett mig nákvæmlega inn í. Eftir að ég tók við þessu starfi þá hef ég samt fundið hvað það er krefjandi að vera í borgarstjórn. Það er líka miklu meiri nánd við íbúana og hraði í breytingum.“ „Hvar er kosningamaskína Framsóknarflokksins?“ Það er óhætt að segja að Sveinbjörg hafi á einni nóttu orðið bæði opinber og umdeild persóna eftir að hún tók að sér að leiða lista Framsóknar og flugvallarvina í sveitarstjórnarkosn- ingum í vor. En erfitt hafði gengið að koma saman lista eftir að Óskar Bergsson sagði sig frá oddvitasætinu. „Ég sat á úlfalda í Marokkó þegar ég las fréttir af því að Guðni Ágústsson væri að fara að leiða listann. Hann er auðvitað fyrrverandi formaður flokksins og ráðherra og búinn að vera lengi í pólitík. Hann er mikill reynslubolti, en ég hugsaði með mér að hann endurspeglaði kannski ekki alveg þessa nýju sýn sem við vild- um fá á flokkinn. Ég treysti auðvitað Guðna og hef alltaf sagt það og hann kom framboðinu á flug með þessari umræðu. Ég ákvað engu að síður að senda sms og sagðist vera tilbúin að setja nafnið mitt í pottinn. Ég bauð fram krafta mína og aðrir tóku svo ákvörðun um framhaldið.“ Sveinbjörg viðurkennir þó að hafa ekki verið búin að hugsa hlutina alveg til enda. Hún var ekki búin að kynna sér launamál eða verk- efni borgarfulltrúa að neinu ráði, en vissi svona nokkurn veginn út á hvað starfið gengi. Þá var fylgi flokks- ins ekki til að hrópa húrra fyrir. „Mér finnst mjög gaman að taka að mér verkefni alveg frá grunni og þetta var mikil áskorun. Ég hefði örugglega ekki sett nafnið mitt í pottinn ef það hefðu verið fleiri einstaklingar til að spila úr og ef flokkurinn hefði verið í tíu prósentum.” Eftir að hún hafði stigið niður af úlfaldanum í Marokkó og odd- vitasætið var orðið hennar, tók alvar- an við. „Við mættum á kosningaskrif- stofuna fyrsta daginn, eftir að við vorum búin að koma þessum bless- aða lista saman, og þá var enginn mættur. Ég spurði bara: „hvar er kosningamaskína Framsóknar- flokksins?““ Sveinbjörg skellir upp úr þegar hún rifjar þetta upp. „Þá var hún víst ekki til. Það var alveg rosa- lega mikil deyfð yfir þessu.“ Hin frægu ummæli um moskur Það sem kom Sveinbjörgu á kortið var þó ekki endilega þor hennar og áhugi á því að reyna að hnoða lífi í framboð í andarslitrunum, held- ur voru það ummæli sem hún lét falla í viðtali við Vísi um lóðaút- hlutun undir mosku í Reykjavík. En hún sagði orðrétt: „Á meðan við erum með þjóðkirkju eigum við ekki að úthluta lóðum undir hús eins og moskur eða kirkjur fyrir grísku rétt- trúnaðarkirkjuna.“ Sagði hún þessa skoðun sína ekki vera byggða á for- dómum, heldur reynslu, enda hefði hún búið í Sádi-Arabíu. Sveinbjörg hefur margoft verið spurð út í þessi ummæli sín og þau höfðu töluverð eftirmál, enda fór kosningabaráttan í kjölfarið að snú- ast meira og minna um lóðaúthlut- anir til trúfélaga. Harðir framsóknar- menn sögðu skilið við flokkinn og andstæðingar múslima á Íslandi hömpuðu Sveinbjörgu sem hetju. Og það sem meira var, fylgi flokksins rauk strax upp og fór svo að Fram- sókn og flugvallarvinir náðu tveimur mönnum inn í borgarstjórn. Eitthvað sem engan hafði grunað nokkrum mánuðum áður. „Ég sé ekki eftir þessu“ Blaðamann leikur hins vegar forvitni á að vita, nú þegar smá fjarlægð er komin á málið, hvort Sveinbjörg sjái á einhvern hátt eftir þessum um- mælum, sem og fleirum sem látin voru falla í kosningabaráttunni? „Ég er búin að fara yfir þetta samtal hundrað sinnum í hausnum á mér. Ég man að ég var að sækja strákinn minn í skólann og sat því fyrir utan Ísaksskóla. Ég og blaðamaðurinn spjölluðum um fullt af öðrum hlut- um en þetta var það sem kom upp, og það er alveg eðlilegt.“ Eftir samtalið við blaðamanninn fór hún heim og lagði sig, því hún var hálf lasin, en ekki niður á kosn- ingaskrifstofu þar sem hún var vön að eyða dögunum á þessum tíma. Skömmu síðar vaknaði hún hins vegar við símann, sem ætlaði aldrei að hætta að hringja og pípa. Þá var henni ljóst að fréttin hafði verið birt. „Ég sé ekki eftir þessu. Það var ekkert af þessu sem ég meinti ekki,“ segir Sveinbjörg sem viðurkennir þó að hún hefði líklega breytt orða- laginu eitthvað hefði hún fengið að lesa ummæli sín yfir. „Mér finnst að Reykjavíkurborg eigi ekki að út- hluta ókeypis lóðum til annarra en Þjóðkirkjunnar, á meðan við erum með lög um Kristnisjóð,“ ítrekar hún og vísar þar til 5. greinar laga um Kristnisjóð þar sem segir að sveitar- félögum sé skylt að leggja til ókeyp- is lóðir undir kirkjur. „Ég er bara al- mennt á móti gjafagjörningum,“ bætir Sveinbjörg við. Viðbrögðin komu á óvart „Ég vissi auðvitað að það yrðu við- brögð við ummælunum, en að þau myndu fara í þessar áttir sem þau fóru, það hefði ekki hvarflað að mér.“ Það hvarflaði til að mynda ekki að henni að andstæðingar múslima á Íslandi myndu hampa henni, líkt og þeir gerðu. „Ég bjóst nú heldur ekki við því að múslimarnir sjálfir færu sjálfviljugir í viðtöl þar sem þeir vitn- uðu í ritninguna, sögðust vilja láta höggva hendur af fólki og innleiða sharíalög á Íslandi, sem espti þetta upp aftur.“ Sveinbjörg bendir á að sharíalög feli meðal annars í sér skertan erfða- rétt kvenna og óskilgetinna barna. Þá snúist þau einnig um stöðu karla og kvenna inni á heimilinu. London og París karakterlausar Að því sögðu finnst blaðamanni ekki úr vegi að spyrja hvaða afstöðu hún hafi almennt til fjölmenningarsam- félaga. „Fjölmenning á alveg rétt á sér og er óumflýjanleg. Mér finnst samt sem áður að við eigum að vera stolt af okkar landi. Stolt af því að vera Íslendingar. Fólk sækir hingað því það vill vera með okkur, ekki af því að það vill flytja sína heimsmynd til okkar.“ Sveinbjörg segist sjálf hafa búið í fjölmenningarsamfélögum, til að mynda í Frakklandi, Sádi-Arabíu og Lúxemborg og hafi kynnst því af eig- in raun að vera útlendingur í ókunn- ugu landi. „Ég er ekkert á móti þessu, en ég geri þá kröfu að þeir sem koma hingað til okkar og vilja vera Ís- lendingar, þeir aðlagi sig okkar sið- um og venjum. Við eigum að halda í það sem við höfum og við eigum að vera stolt af því. Ef við höfum sér- stakan áhuga á að breyta því hvern- ig við erum þá höfum við tækifæri til þess að flytja og vera partur af öðru stærra menningarsamfélagi.“ Sjálfri finnst Sveinbjörgu meira gaman að heimsækja borgir og bæi þar sem hún upplifir raunverulega menningu þeirra landa sem hún er að heimsækja. Ekki borgir eins og London og París sem henni þyk- ir hálf karakterlausar. „Viljum við að Reykjavík verði karakterlaus borg? Eins og mér finnst þær borgir vera.“ Aðspurð segist hún þó ekki óttast að innflytjendur komi til með að breyta ásýnd Íslands. „Ég hef hins vegar áhyggjur af minnimáttarkennd okk- ar. Við eigum að að viðurkenna okk- ar sögu, hver við erum og fyrir hvað við stöndum. Ég hef áhyggjur af því að við missum það.“ Finnst ekki þörf á mosku Sveinbjörg vill taka það fram að hún hafi í raun ekkert sérstaklega ver- ið að spá í múslima í vor þegar hún talaði um moskumálið. Þetta hafi eingöngu snúist um lóðina. Eftir á hafi hún hins vegar farið að kynna sér málin aðeins betur. „Við þurf- um svolítið að skoða af hverju það er talað um uppgang múslima í ná- grannalöndum okkar. Hvað hefur gerst sem hefur valdið því að þetta er farið að ná undirtökum, sérstaklega með tilliti til réttinda eins og kven- frelsis sem barist hefur verið fyrir? Mér finnst við þurfa að skoða hvern- ig breyta hefur þurft löggjöf í öðrum löndum til að koma í veg fyrir þau vandamál sem upp geta komið. Við þurfum bara að taka þessa umræðu,“ segir Sveinbjörg og heldur áfram. „Samkvæmt stjórnarskrá þá erum við með okkar kirkjur og mér finnst að það þurfi ekkert að reisa hérna mosku. Það eru hérna tvö bæna- hús,“ segir Sveinbjörg og vísar þar til bænahúss Félags múslima á Íslandi í Ármúla og bænahúss Menningar- seturs múslima í Ýmishúsinu við Skógarhlíð. „Það virðist vera þannig að þegar moskur rísa þá er farið að tala um þessi undirtök. Hvernig sam- félag ætlum við að sjá þá? Það getur vel verið að þá verði Ísland breytt og við verðum búin að gefa eftir okkar gildi og þetta verður allt orðið flatt. Þá er mitt einkenni sem Íslendingur ekki lengur niðurnjörvað.” Lifir ekki lífinu til að allir elski hana En hvernig líður henni með að vera allt í einu orðin ein umdeildasta kon- an í íslenskri pólitík? „Ég vissi alveg að ef þetta myndi ganga upp þá yrði ég opinber persóna. Ég var búin að tala við börnin mín og stjúpbörnin mín. Sagði þeim að ef einhver talaði illa um mig þá þyrftu þau ekki að verja mig. Að þau þyrftu ekki að hafa sömu skoðanir og ég, bara aldrei. Ég er ekkert sár þó að fólki finnist ég ekki æðisleg eða frábær. Ég er ekki að lifa þessu lífi til þess að allir elski mig. Það skiptir mig bara máli að þeir sem standa mér næst finnist ég standa mig gagnvart þeim, hitt er bara aukaat- riði.” Sveinbjörg segist bara vera hún sjálf og koma til dyranna eins og hún er klædd. Hún ætli ekki að breyta því hvernig hún hagar sér eða kemur fram þótt hún sé orðin opinber persóna. Gengur oft með slæðu Þegar við erum komin inn á þessa braut þá finnst blaðamanni viðeig- andi að rifja upp myndband sem birtist nýlega á samfélagsmiðlum og tekið var upp þegar Sveinbjörg kíkti við í gleðskap hjá stjórnmála- og hagfræðinemum ásamt þeim Guð- finnu Jóhönnu Guðmundsdóttur borgarfulltrúa og Vigdísi Hauks- dóttur þingmanni. Guðfinna gant- aðist með að Sveinbjörg væri konan sem væri á móti moskum í Reykjavík. Hún spilaði með og sveipaði slæðu um höfuð sér. Aðspurð segist Svein- björg hafa verið bláedrú þetta kvöld, enda smakki hún varla áfengi, og hún sjái ekki eftir að hafa tekið þátt í gríninu. „Ég reyndar set trefilinn oft svona á mig og það var rigning þetta kvöld. Þetta var engin vanvirðing gagn- vart múslimum, þetta er bara eins og múslimar eru. Ég hef mjög beitt- an húmor og ég hef oft sagt að ég ætti bara að fara að ganga með slæðu. Nunnur ganga með slæðu, það eru ekki bara múslimar,” segir Svein- björg. Með hælaskó í veskinu Þrátt fyrir að hafa ekki ætlað að breyta sér neitt þá viðurkennir hún að hafa þurft að gera smávægilegar breytingar á venjum sínum eftir að hún hellti sér út í pólitíkina. „Ég ætlaði til dæmis aldrei að mála mig nema þegar ég þyrfti þess og ég ætl- aði ekki að fara að ganga í háum hæl- um heldur.“ Í þeim töluðu orðum teygir Sveinbjörg sig skyndilega í átt að töskunni sinni. „Ég geng sko með háhælaða skó núna í tösku,“ seg- ir hún og dregur upp svarta hæla- skó sem hún sýnir blaðamanni. „Ég myndi helst vilja vera í lopapeysu og joggingbuxum í vinnunni og það er kannski það sem ég hef þurft að breyta. Annars fannst mér ég reynd- ar oft koma bara vel út ómáluð í við- tölum,“ segir hún og skellir upp úr. „Þetta er helst það sem fólk vill að maður breyti.“ Vill hvorki ráðgjafa né stílista Þá segist Sveinbjörg ekki almenni- lega gera sér grein fyrir því hvað fólk ætlist til af henni eða hvern- ig framkoma er pólitískt rétt. „Á ég alltaf að vera með svuntu í eldhús- inu eða láta taka myndir af mér með börnunum mínum? Láta birtast af mér einhverja ljúfa og góða mynd, og ég er sosum alveg þannig. En ég er bara ég. Ég er stundum ofboðs- lega ofvirk og stundum löt. Stund- um nenni ég varla fram úr á morgn- ana, stundum sef ég lítið og stundum mikið. Ég vil ekki þurfa að lifa í ein- hverri flatneskju. Þegar sá tími kem- ur að mér finnst ég þurfa á stílista að halda eða ráðgjafa sem segir mér hvernig ég á að orða hlutina þá held ég að tími minn í pólitík sé búinn.“ Náðu ekki tíu árum Sveinbjörg er fædd árið 1973 og því 41 árs. Hún á þrjú börn á aldrin- „Ég er ekkert sár þó að fólki finnist ég ekki æðisleg eða frábær „Þegar sá tími kemur að mér finnst ég þurfa á stílista að halda eða ráðgjafa sem segir mér hvernig ég á að orða hlutina þá held ég að tími minn í pólitík sé búinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.