Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 27
Helgarblað 10.–13. október 2014 Umræða Stjórnmál 27 E itt sinn héldum við að Guðni Ágústsson væri seinheppinn sveitamað­ ur sem vildi Ísland fyrir Ís­ lendinga og konuna á bak­ við eldavélina. En þar höfðum við rangt fyrir okkur. Því Guðni reyndist miklu klárari en við héld­ um og varð á endanum „darling of the nation“, ástkær skemmtikraft­ ur og sjarmatröll, konungur eigin kjördæmis á Kanarí. Og lengi vel höfðum við þá mynd af mannin­ um. „Léttur í lund“ hét enda bókin hans. En einnig í þessu höfðum við rangt fyrir okkur, því nú birtist okk­ ur glænýr Guðni: Mjólkurmafíós­ inn, guðfaðir kerfisins, brosandi grimmur og miskunnarlaus. Marlon Brando „Það er bullandi samkeppni í þess­ um bransa.“ Svona talaði hann í liðinni viku, af ísmeygilega mafískri kaldhæðni, en fyrirtækið sem hann frontar er með 99 prósent mark­ aðshlutdeild. „Það er bullandi samkeppni og allir velkomnir í mjólkuriðnaðinn.” Marlon Brando hefði ekki getað orðað þetta bet­ ur, í sínu frægasta hlutverki. Í ein­ feldni minni hélt ég eitt sinn að nýtt starf Guðna Ágústssonar, „framkvæmdastjóri afurðastöðva í mjólkuriðnaði“, ætti við öll fyrir­ tæki í þeim bransa. Líka Mjólku, líka Kú, líka Biobú, og líka Örnu, öll litlu fyrirtækin sem reyndu sig og reyna enn í samkeppni við ris­ ann MS. En það var auðvitað fjarri sanni. Auðvitað starfar Guðni ekki fyrir allar afurðastöðvar, heldur bara fyrir sínar, fyrir MS og KS og fyrirtækin sem tengjast þeim. Fyrir þá sem borga launin hans. Og talar samkvæmt því. Spillingarfrí mjólk Stundum erum við nefnilega aðeins of auðtrúa og ómeð­ vituð. Líkt og þegar okkur bauðst allt í einu laktósafrí mjólk og gátum aftur farið að borða morgunkorn án ónota í maga. Það var fyr­ ir ári síðan sem við upp­ götvuðum þessa nýjung á markaði. Hún var reynd­ ar ekki alltaf til í búðinni, en stundum til frá öðru fyrirtæki sem við þekkt­ um ekki og heitir Arna. Við tókum bláu fern­ una frá þeim ef sú gula fannst ekki en hugs­ uðum annars ekkert út í það frekar. Nú er sagan okkur ljós: Það var litla fyrirtækið, Arna í Bolungarvík, sem fékk þessa hug­ mynd: Að framleiða laktósafría mjólk, fyr­ ir fólk með mjólkur­ óþol, vara sem ekki hafði áður verið fá­ anleg á íslenskum markaði. Hvað gerði mjólkurrisinn MS þá? Hann hóf sjálfur að framleiða sömu vöru, og varð jafnvel fyrri til að koma henni á markað! Hann gat ekki unnt þessum litla mjólk­ ursprota að eiga þá sérstöðu á markaði. Líkt og mafíósi sagði risinn með hásri röddu og lúmsku glotti: Það eru all­ ir velkomnir í mjólkuriðnaðinn! En hvarf síðan í símann og fyrirskip­ aði framleiðslu á sömu vöru, til að reyna að drepa sprotann í fæðingu. En það hefur ekki alveg tekist enn. Enn má kaupa spillingarfría mjólk frá Bolungarvík í betri búð­ um landsins. Hún fer enn betur í maga en laktósafría mjólkin frá MS. Enginn Einskisson Kastjós mánudagsins rúllaði yfir sams konar sögur sem hafa endurtekið sig allt frá því að Thor Jensen skor­ aði Framsókn á hólm fyrir næstum því hundrað árum. Hið kommúníska einok­ unarkerfi flokksins hefur staðið af sér allar slíkar tilraun­ ir, þrátt fyrir hrun SÍS og Íslands, bú­ sáhaldabyltingu og almennar þjóð­ félagsbreytingar, frá kreppu til kana­ sjónvarps til iPads. Landbúnaðarkerf­ ið er lífseigasti fast­ inn í samfélagi okkar og rammasta lögmálið í íslenskri pólitík er þetta: Á stóli landbúnaðarráðherra skal ævin­ lega sitja forhertur karldurgur með framsóknarsál, ótölvuvæddur bindisberi sem ekkert getur og ekk­ ert gerir, en er geymdur inní þeim skáp sem ráðuneytið er og kallaður þaðan út þrisvar á ári til að klippa á borða íklæddur hæfilega kauðs­ legum jakkafötum með nafnspjaldi sem á stendur: Hr. Enginn Einsk­ isson. Það er einmitt af þessum sökum sem maður eins og Ólaf­ ur Friðriksson hefur áratugum saman getað setið á vegum þessa ráðuneytis í öllum nefndum sem tengjast mjólkuriðnaðinum, sam­ tímis því að sitja í S­hópnum, KS­ hópnum og MS­hópnum. Af því að Enginn er og hefur alltaf verið landbúnaðarráðherra. Jafnvel fyrstu hreinu vinstrist­ jórn sögunnar tókst ekki að brjóta þessa reglu, því þá gegndu emb­ ættinu tveir ósvíkjandi sveitamenn úr VG. Laumuframsóknarflokk­ urinn sá greiddi enda at­ kvæði gegn afnámi á undanþágu MS frá samkeppn­ islögum síð­ ast þegar sú tillaga var borin fram. Jafn­ vel ungt, nútíma­ legt og lítt karlað fólk eins og Katrín Jak­ obsdóttir, Svandís Svavars­ dóttir og Auður Lilja Erlings­ dóttir gengu þar í kerfisbjörgin með hinum lurunum. Framsókn er víða, svo vitnað sé í Engla alheimsins. „Við drápum hann ekki“ Það er hins vegar alþjóðlegt lög­ mál að sá sem býr við einokunar­ aðstöðu mun alltaf misnota hana, mun alltaf nota sér hana til hins ýtrasta. Aðstaðan hreinlega breytir mönnum í mafíósa og lætur þá tala eins og harðsvíruðustu guðfeður, jafnvel svona: „Ólafur í Mjólku hef­ ur ekki verið drepinn.“ Þessi ótrú­ legu orð mælti guðfaðirinn Guðni á Bylgjunni og var víst að hrósa sér og sínum fyrir tillitssemina. Semsagt: Það var gert allt við þann mann nema að drepa hann. Í sjónvarps­ þætti gaspraði Guðni síðan um gamlar skuldir Mjólku, og vitnaði í einkasamtöl sín við bankastjóra um fjárreiður einkafyrirtækis, og gerði svo lítið úr nýju fyrirtæki hins ódrepandi Ólafs, sagði hann tala „út úr Kú.“ Þessi eru viðbrögðin þegar sam­ stæðurisinn hefur verið sektaður og gerður uppvís að markaðsmis­ notkun. Engin auðmýkt, enginn lærdómur, hvað þá kurteisi, bara haldið áfram að berja á minni máttar. Ófyrirgefanlegur amatörismi Guð hjálpi þeim sem reyna sig í samkeppni við þetta kerfi, hugs­ aði fólkið sem heima sat. Mann­ orði hans er rústað um leið og tæki­ færi gefst. Hinn grimmi guðfaðir er sendur fram á vígvöllinn, eftir að prúðleitur og gustlítill forstjórinn hafði fyrst verið settur í Kastljós til að sitja þar stífur og fullæfður af neyðarteymi almannatengla – „aldrei lyfta höndunum, aldrei æsa sig, aldrei segja nafn spyrjandans, og svona já, láttu sjást aðeins betur í ermahnappana …“ Sú litlausa og lygum prýdda framkoma leiddi strax hugann að amatörisman­ um sem forstjór­ inn ríkir yfir, hinu almenna getuleysi þessa geril­ sneydda fyrir­ tækis sem fengið hefur 100 ár til að æfa sig í framleiðslu mjólkurafurða með þeim ágæta árangri að hérlend­ is er nú hvorki hægt að fá keypt almennilegan ost né almenni­ legt jógúrt. Af þeim óteljandi osta­ tegundum sem MS framleiðir er aðeins einn sem kemst hænufet í átt að einhvers konar bragði, í átt að Gruyere eða Emmentaler, og það er Tindur. Allir hinir bragð­ ast nákvæmlega eins. Og langi menn í gamla góða skyrið sem þeir muna úr bernsku er besta leiðin til þess núorðið að kaupa „grískt jógúrt“! Fyrirtæki Framsókn­ ar, þessa mikla Íslands­ og lands­ byggðarvinar, hefur jafnvel glutr­ að niður sjálfri skyr­uppskriftinni, stolti íslenskrar matarhefðar, eins og Gunnar Smári Egilsson benti á í mögnuðum matarpistli fyrir margt löngu. „Þegar við lítum yfir hvern­ ig Mjólkursamsalan hefur far­ ið með íslenska mjólkurhefð get­ um við þakkað fyrir að fyrirtækinu væri ekki treyst fyrir útgáfu forn­ ritanna. Þau væru þá öll komin á teiknimyndaform,“ skrifaði Gunn­ ar Smári í Fréttatímann, ásamt Þóri Bergssyni, 2. september 2011. Sem betur fer er nú hægt að fá lífrænt skyr, sem maður heldur að sé eins og íslenskt skyr á að vera, frá fyrirtækinu Biobú, sem guð­ faðirinn uppnefndi einmitt í einum þættinum: „lítið sætt mjólkurbú í Reykjavík“. Yfirlætið lak af hverj­ um samhljóða. Það rímar við orðin sem hann, þá verandi einn af þeim tuttugu tilgangslausu landbúnað­ arráðherrum sem Íslandssagan geymir, lét falla við Ólaf í Mjólku er hann hóf sinn rekstur: „Þú ert með fallegt lítið blóm í höndun­ um. Farðu vel með það.“ (Og láttu það ekki vaxa um of, því þá drepum við það. Blómið sko, en þú sleppur kannski sjálfur.) „Umferðarlagabrot“ Nýlegan úrskurð Samkeppnis­ stofnunar kallaði guðfaðirinn „um­ ferðarlagabrot“ í öllum þeim þátt­ um sem hann var sendur í. Hann hefði vart getað valið ósvífnari samlíkingu. Þegar risinn stígur á „fallega litla blómið“, sem er eina „ógn“ hans á öllum akrinum, öll­ um markaðnum, skref sem verður til þess að blómið deyr, þá er það eins langt frá því að vera umferð­ arlagabrot og hugsast getur. Mark­ aðslegt morð væri nærri lagi. Og síðan fylgdi guðföðurlegt sjálfs­ hólið (ó, vér góðmennin!) er Guðni sagði um Ólaf og Mjólku: „Svo kemur Kaupfélag Skagfirðinga og bjargar honum. Og hann slepp­ ur við sitt eigið gjaldþrot!“ Fyrst knésetjum við hann, svo björg­ um við honum, og þá á hann að koma skríðandi og kyssa okkur á tærnar. Starfsaðferðir mafí­ unnar eru alls staðar eins, nema hvað hérlendis eru menn kannski ekki drepnir. n Guðfaðirinn Guðni Hallgrímur Helgason rithöfundur Kjallari „Það er bullandi samkeppni og allir velkomnir í mjólkuriðnaðinn. „Auðvitað starfar Guðni ekki fyrir allar afurðastöðvar, held- ur bara fyrir sínar, fyrir MS og KS og fyrirtækin sem tengjast þeim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.