Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 30
Helgarblað 10.–13. október 201430 Fólk Viðtal um 10 til 16 ára með fyrrverandi eig- inmanni sínum, Hauki Alberti Eyj- ólfssyni. Þau voru bekkjarfélagar í Verslunarskólanum en urðu ekki par fyrr en þau unnu saman hjá Atlanta í Sádi-Arabíu. Þau voru gift í sjö ár, en saman í fimmtán. „Við giftum okkur við mjög lát- lausa athöfn í kirkju og það var engin veisla. Við áttum engan pen- ing á þessum tíma og komin með tvö börn. Ég sagði við Hauk að það væri ekkert mál að ganga upp að alt- arinu og segja já, en ef við héldum þetta út í tíu ár þá myndum við halda svaka veislu. En okkur tókst það ekki og það var aldrei nein veisla,“ seg- ir Sveinbjörg og hlær, en þau skildu árið 2009. Haukur býr með núver- andi eiginkonu sinni í Sádi-Arab- íu og Sveinbjörg segir það stundum erfitt, enda geti börnin ekki dvalið reglulega hjá honum. Tekur á kærastann Hún er þó ekki akveg ein á báti og hefur átt kærasta um tíma. Sá heppni heitir Gissur Bergsteinsson og að- spurð segist Sveinbjörg vera rosalega ástfangin af honum, en þau búa þó ekki saman. Það fór ekki mikið fyrir Gissuri í kosningabaráttunni og blaðamaður minnist þess ekki að hafa séð hann á neinum myndum með Sveinbjörgu. „Hann er mjög óopinber persóna og við erum alveg eins og svart og hvítt. Það að ég sé opinber persóna tekur miklu meira á hann heldur en mig og hann vill ekki vera hluti af þessu. Ég bara virði það.“ Þrátt fyrir að Svein- björg og Gissur búi ekki saman þá er hún mikið heima hjá honum og börnin hennar líka, enda býr hún sjálf mjög þröngt. Hún hefur staðið oft í flutningum á síðustu árum, en á von á því að komast í framtíðarhús- næði á næstu vikum. „Ég hef svo mikinn netsjarma“ „Ég er svo heppin með Gissur. Hann er svo ógeðslega klár og andlega örvandi. Okkur leiðist held ég aldrei saman. Við höfum hins vegar ekki alveg verið tilbúin að fara að búa saman, enda allir krakkarnir orðn- ir vanir fyrirkomulaginu eins og það er,” segir Sveinbjörg, en Gissur á einnig þrjú börn frá fyrra hjóna- bandi. En hvernig kynntust þau? „Við kynntumst á Einkamál.is,“ segir Sveinbjörg kímin. „Ég hef svo mik- inn netsjarma,“ bætir hún við og tekur bakföll af hlátri. „Þetta var ást við fyrsta orð. Hann á þessa setn- ingu reyndar en ég ætla bara að stela henni.“ Hún segir þau ekki geta not- að setninguna „ást við fyrstu sýn“ enda hafi þau talað saman á netinu í nokkra mánuði áður en þau hittust í fyrsta skipti. „Við vorum orðin alveg ofboðslega ástfangin, en við vissum ekkert um hvort annað, nema að við töluðum bæði ógeðslega mikið.“ Syndir ekki í seðlum Sveinbjörg segist ekki bara vera heppin með kærastann heldur líka með börnin sín, hvað þau hafa ver- ið sveigjanleg og átt auðvelt með að vera á þvælingi með mömmu sinni. Hún bendir blaðamanni á mynd af börnunum sem hangir á vegg á skrif- stofunni og telur upp hvaða skóla þau sækja og tómstundir þau iðka. Það er nokkuð ljóst að að hún er að springa úr stolti af þeim. Áður en blaðamaður veit af er Sveinbjörg staðin upp frá skrif- borðinu og farin að gramsa í stórum kistli sem stendur á gólfinu. „Þetta er gullkistillinn minn sem ég keypti í Pakistan,“ segir hún og dregur á sama tíma upp tvö myndaalbúm. „Hérna geymi ég öll gullin mín, göm- ul jólakort og svona, en þetta er nú bara hér því ég hef ekki pláss heima hjá mér,“ segir hún og hlær innilega. Svo sest hún aftur við skrifborðið og flettir með blaðamanni í gegnum albúmin sem innihalda fleiri myndir af börnunum. Myndirnar bera það með sér að fjölskyldan hafi ferðast víða og Sveinbjörg segir svo vera. „Við höfum verið heppin með að hafa getað það, en á móti kemur að ég hef til dæm- is ekki enn þá keypt mér sófasett. Ég á ekki flatskjá, en ég keypti mér samt í fyrsta skipti borðstofuborð núna í vor. Við höfum frekar viljað fjárfesta í minningum með börnunum og ferðast eins og efni hafa leyft hverju sinni. Mig langar alveg að eiga fallegt heimili og dúllerí, en það er alltaf nóg af dýnum til heima hjá mér og það gista oft mjög margir.“ Sveinbjörg segir þó marga hafa þá mynd af henni að hún búi ríkmann- lega og syndi í seðlum, en ástæð- an sé líklega sú að hún sé lögmað- ur. Hún segist þó alltaf hafa þurft að hafa vinnutíma sinn sveigjanlegan til að geta sinnt börnunum sem skyldi, vegna þess að maðurinn fyrrverandi býr svo fjarri. „Þegar maður er sjálf- stætt starfandi þá kostar líka bara að taka sér frí, þá fellur innkoman niður á meðan,“ útskýrir hún. Alltaf fullt hús af börnum Sveinbjörg hefði gjarnan viljað eign- ast fleiri börn og íhugar að gerast stuðningsforeldri. „Sú löngun hefur aukist eftir að ég fór að setja mig inn í velferðarmálin í Reykjavík. Ástandið er skelfilegt. Mér finnst ég verða að gera eitthvað til að létta undir og ég tel mig hafa eitthvað fram að færa. Ég hef mjög gaman af börnum og þó ég búi þröngt þá er oft fullt hús af börn- um hjá mér, sem jafnvel gista. Það eru allir alltaf velkomnir inn á mitt heimili. Vinkonum dóttur minnar, sem er 16 ára, finnst til dæmis mjög gaman að koma í heimsókn og tala við mig,“ segir hún hlæjandi, en það fer ekki á milli mála að hún er mjög hláturmild kona. Ofkeyrði sig og grét stanslaust Sveinbjörg segist hafa fengið jákvæðni í vöggugjöf og hún eigi því auðvelt með að sjá jákvæðar hliðar á erfið- leikum sem hún tekst á við. Hún lítur á erfiðleika í lífinu sem áskoranir. En hefur hún þá aldrei upplifað aðstæður sem henni fannst hún ekki ráða við? „Það gerðist reyndar í desember árið 2006 að ég vann eiginlega yfir mig. Ég var komin með þrjú börn og að reka fyrirtæki sem ég var búin að selja, en var þó framkvæmdastjóri yfir því. Ég var búin að vera að vinna eins og brjálæðingur og það liðu tvær, þrjár vikur í nóvember þar sem ég sá börnin mín aldrei vakandi. Í desember ákvað ég að vera alltaf komin heim klukkan fimm á daginn, en það gekk ekki. 21. desember hafði ég ekki verið heima hjá mér eitt kvöld. Það kvöld tók tók ég eitt erfitt símtal en í miðju símtali gjörsamlega þyrmdi yfir mig og ég fór að gráta. Ég grét og grét og gat ekki hætt að gráta þannig ég fór upp á spítala þar sem ég talaði við sálfræðing.“ Sveinbjörgu var tjáð að hún þjáðist af ofþreytu og að hún þyrfti að taka sér hvíld. „Þetta fékk mig til að fara í al- gjöra endurskoðun á sjálfri mér og fór í mikla innri vinnu. Ég hætti í vinnunni, tók mér fjögurra mánaða frí og flutti í kjölfarið til Lúxem- borgar.“ Sveinbjörg segist hafa dreg- ið þann lærdóm af ofkeyrslunni að þekkja sín takmörk. En hún á það engu að síður enn þá til að taka að sér of mikið af verkefnum. „Eins og núna. Nú þarf ég aðeins að fara að draga úr einhvers staðar. Ég get til dæmis eiginlega ekki bæði verið á þingi og sem borgarfulltrúi á sama tíma, en þá kemur bara inn fyrir mig varamaður í borginni.“ Var feiminn einfari Út á við virkar Sveinbjörg frekar of- virk týpa, en þegar blaðamaður ber það upp á hana segist hún vera frekar róleg og yfirveguð heima hjá sér. „Mér líður best þegar ég er að lesa góða bók eða tala við krakkana. Ég stressa mig til dæmis ekki mik- ið á því að taka til. Ég er haldin ryk- blindu.“ Frítímanum eyðir hún að mestu leyti með fjölskyldunni, og þar til síðasta vor æfði hún blak en útilokar ekki að taka það upp aftur, þegar tími gefst. Sveinbjörg er fædd í Reykjavík en fluttist þriggja ára vestur á Ísafjörð og bjó þar til níu ára aldurs. Hún segist hafa verið mjög rólegt barn og feim- ið og hálfgerður einfari. Það var ekki fyrr en hún flutti aftur til Reykjavíkur og hóf nám í Álftamýrarskóla, að það breyttist. Þar kynnti einn kennar- anna hana fyrir ræðumennsku og þá opnaðist nýr heimur fyrir Svein- björgu. „Ég fór að átta mig á því að fólk hefði áhuga á því sem ég var að hugsa og ég gæti því kannski talað meira. Fram að gaggó þá talaði ég eiginlega rosalega lítið.“ Út frá ræðumennsku þá hellti hún sér út í félagsmál og hefur varla stoppað síðan. Hún segist þó ekki hafa stundað félagslífið mikið í laga- deildinni og aðeins mætt í tvo kokk- teila. Að vísu var hún í fullri vinnu hjá Atlanta með náminu fyrstu tvö árin, tók sólóflugmannspróf og eignaðist svo barn, þannig það gæti hafa spil- að inn í að hún hafði einfaldlega ekki tíma. „Mamma hafði alltaf svo mikl- ar áhyggjur af því að ég myndi ekki klára lögfræðina, en ég skildi aldrei þær áhyggjur. Ef ég byrja á einhverju þá klára ég það,“ segir hún ákveðin. Trúði ekki að hún hefði fallið Það byrjaði þó ekki vel hjá Svein- björgu í lögfræðinni og hún varð fyr- ir hálfgerðu áfalli þegar einkunnirn- ar komu. „Ég féll í lögfræðinni í fyrsta skipti og þess vegna fór ég að vinna hjá Atlanta. Ég hugsaði með mér að annaðhvort yrði ég að fara til sjálf- ræðings, eða fara út, því ég bara trúði þessu ekki, að ég hefði fallið. Þetta hafði aldrei gerst og ég skildi ekki hvernig þetta var hægt. Ég gerði Sig- urð Líndal að mínum erkióvini þang- að til ég var komin inn í deildina,“ segir hún í gríni. Sveinbjörg náði þó hinni al- ræmdu almennu lögfræði árið eft- ir. „Þetta er bara eitthvað sem mað- ur þarf að læra, að falla. Eins og ég segi alltaf, það er ekkert mál að vera sigurvegari, ala upp sigurvegara og kenna fólki að fagna, en að geta tekið tapi og ósigri með reisn, það er list.“ Letin er kostur Að lokum leikur blaðamann forvitni á að vita hvernig Sveinbjörg myndi lýsa sjálfri sér. Hún hikar við spurn- inguna og hugsar sig um áður en svarið kemur. „Ég er mjög einbeitt, ákveðin og fylgin mér, en inn á milli er ég rosalega löt.“ Sveinbjörg vill þó ekki endilega meina að letin sé galli. „Kosturinn við letina er að þú finn- ur alltaf leiðir til að gera hlutina á auðveldari hátt. Þess vegna kemst ég kannski yfir að gera svona mikið. Ég er líka mjög áhugasöm um að stytta verkferla, en mér finnst samt gaman að vinna,“ segir Sveinbjörg að lokum. Áður en leiðir skilja kveður hún svo blaðamann með þéttu faðmlagi. n „Ég er svo heppin með Gissur. Hann er svo ógeðslega klár og and- lega örvandi Heppin með kærastann Sveinbjörg er í sambandi með Gissuri Bergsteins- syni og segir hann mjög kláran og andlega örvandi. Mynd SigTryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.