Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 8
Helgarblað 10.–13. október 20148 Fréttir Hugo Boss söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Úra- o skartgripaversl n Heide Glæsibæ - s: 581 36 5 Setja ekki nafn sitt við áróður Deloitte telur að lækka þurfi veiðigjöld útgerðarinnar J ónas Gestur Jónasson, endur- skoðandi hjá Deloitte, segir að Deloitte hafi ekki fengið greitt frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna fyrir vinnu sína við sjávarútvegsdaginn sem haldinn var í Hörpu á miðvikudaginn. Í skýrslunni kom fram að arð- greiðslur út úr útgerðarfyrirtækjun- um námu 11,8 milljörðum í fyrra samanborið við 6,3 milljarða árið 2012. Þá kom einnig fram að hagn- aður sjávarútvegsfyrirtækja færi minnkandi. Í fréttum RÚV á mið- vikudaginn kom fram það mat Jónasar Gests að vegna þess að hagnaðurinn hefði lækkað þyrfti að lækka veiðigjöld útgerðarfyrirtækja sem voru álíka há og arðgreiðslurn- ar í fyrra. Jónas Gestur segir að Deloitte kosti vinnu sína um sjávarútvegsmál sjálft, meðal annars gagnagrunn um íslenska sjávarútveginn. „Öll þessi vinna er kostuð af Deloitte. Við erum búnir að halda þessum gagna- grunni úti í nokkur ár.“ Aðspurður um hvort Deloitte hafi ekki unnið mikið fyrir Deloitte í gegnum árin jánkar Jónas Gestur því. Spurður hvort Deloitte hafi ver- ið að vinna fyrir Deloitte á sjávar- útvegsdaginn segir Jónas Gestur að svo hafi ekki verið: „Alls ekki á þess- um degi, alls ekki á þessum degi. Við vildum bara setja fram tölurn- ar úr gagnagrunninum okkar og svo getur bara hver og einn myndað sér sína skoðun á þessu. […] Við mynd- um aldrei setja nafn okkar við ein- hvern áróður.“ n ingi@dv.is 300 milljónir í betri hverfi Reykjavíkurborg biður nú borgar- búa í fjórða sinn um að leggja til hugmyndir að verkefnum í hverf- um borgarinnar. Íbúar geta farið inn á samráðsvefinn betrireykja- vik.is og lagt þar inn hugmynd- ir sem fegra umhverfið og bæta ýmsa aðstöðu í hverfunum. Opið verður fyrir innsetningu hug- mynda til 7. nóvember næstkom- andi. Reykjavíkurborg mun leggja 300 milljónir króna til hverfa- potta á næsta ári. Þessir peningar fara í að framkvæma hugmynd- ir sem borgarbúar leggja sjálfir til. Ráðuneytið þegir enn út af kostnaðinum Hefur ekki svarað fyrirspurn DV um útlagðan kostnað vegna forræðisdeilu Hjördísar Svan I nnanríkisráðuneytið hefur ekki enn veitt DV svör við fyrirspurn blaðsins um kostnað ráðuneyt- isins vegna forræðisdeilu Hjör- dísar Svan Aðalheiðardóttur og Kims Gram Laursen. DV sendi inn- anríkisráðuneytinu fimm spurn- ingar vegna þessa kostnaðar í lok september síðastliðinn en hef- ur enn ekki fengið svör við þeim. Spurði blaðið meðal annars að því hvort ráðuneytið kunni að hafa greitt lögfræðikostnað fyrir Hjördísi Svan en forræðisdeilan hefur staðið yfir árum saman. Sjaldgæft er að ráðuneyti taki svo langan tíma í að svara fyrirspurn- um fjölmiðla. Ekki liggur fyrir af hverju innanríkisráðuneytið hefur tekið sér svo langan tíma í að svara þessari tilteknu fyrirspurn þar sem spurningarnar eru frekar einfaldar. Dæturnar fluttar Hjördís Svan dvelur nú í fangelsi í Danmörku fyrir að hafa flutt dætur sínar þrjár ólöglega frá Danmörku og til Íslands sumarið 2013. Hjördís var dæmd fyrr á árinu og hlaut hún 18 mánaða dóm. Hafði Hjördís Svan ekki leyfi til að flytja stúlkurnar úr landi þar sem Kim Gram hafði verið dæmt forræði þeim. Tímaritið Nýtt Líf fylgdi Hjör- dísi Svan frá Danmörku til Íslands og skrifaði þekkta forsíðuumfjöll- un um málið sem bar yfirskriftina Flótti Hjördísar. Hjördís Svan hefur haldið því fram að stúlkunum kunni að stafa ógn af Kim Gram þar sem hann sé meintur ofbeldismaður að henn- ar sögn. Þau Hjördís Svan og Kim Gram voru búsett í Danmörku þegar slitnaði upp úr sambandi og við tók forræðisdeila um dætur þeirra. Samkvæmt frásögn hennar sjálfrar var hún því að bjarga stúlk- unum frá Kim Gram þegar flutn- ingurinn frá Danmörku átti sér stað. Faðir stúlknanna hefur reynt að fá þær aftur til sín til Danmerk- ur en í júní synjaði Hæstiréttur Ís- lands beiðni hans þar að lútandi. Forræðismálinu er því hvergi nærri lokið. Búin að ákveða sig Í viðtalinu í Nýju Lífi lýsti Hjördís Svan því að hún hefði verið búin að ákveða að nema dætur sínar á brott frá Dan- mörku þegar hún fór aftur þangað út til að hitta þær sumarið 2013. Hún fór með þær frá Danmörku og fór huldu höfði í Skandinavíu um hríð áður en þær flugu heim með leiguflugvél. Í viðtalinu sagði Hjördís Svan: „Þegar ég kom út aftur var ég búin að ákveða að taka stelpurnar. Enginn tók því alvarlega þegar þær kvört- uðu undan ofbeldi. Enginn hlustaði á þær í Danmörku, hvorki dómstól- ar, sveitarfélagið og sýslumannsemb- ættið. Þess vegna ákvað ég að fara með þær úr landi.“ Það var svo á grundvelli þessa brottnáms sem Hjördís var dæmd í fangelsi fyrr á árinu þar sem hún var talin hafa brotið gegn umgengisrétti Kims Gram Laursen. DV heldur enn í vonina um að fá svör við spurningum sínum um kostnað ráðuneytisins vegna máls Hjördísar Svan Aðalheiðardóttur. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Þegar ég kom út aftur var ég búin að ákveða að taka stelpurnar. Beðið um svör DV hefur sent innanríkisráðuneyti Hönnu Birnu Krist- jánsdóttur spurn- ingar um kostnað ráðuneytisins vegna forræðisdeilu Hjördísar Svan Að- alheiðardóttur. Svör hafa ekki borist. MynD SIgtryggur ArI unnu ekki fyrir LÍu Endurskoðandi hjá Deloitte segir að endurskoðendafyrirtækið hafi ekki verið í vinnu hjá LÍU á sjávarútvegs- daginn. MynD reuterS Safnað fyrir börnin Söfnun er hafin fyrir börnum konunnar sem lést á heimili sínu í Breiðholti 28. september síðast- liðinn. Eiginmaður hennar er nú í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa orðið henni að bana.Börn- in, sem eru þriggja og fimm ára, verða send til ömmu sinnar og afa í Póllandi. Ættmenni barnanna biðla nú til þeirra sem geta að styrkja börnin. Aðstandendur segja börnin hafa það gott. Móðurafi barnanna vinnur nú að því að klára pappírs- vinnuna í sambandi við að flytja börnin til Póllands. Börnin höfðu áður aðeins heimsótt Pólland stuttlega í sumarfríum og enginn aðbúnaður er fyrir þau þar í landi. Safnað er fyrir klæðnaði, skóla- dóti, fötum og rúmum. Þeir sem vilja styrkja börnin geta millifært á reikning Mariusz Dziegelewski, kt. 111086-3629, reikningsnúmer 0111-05-261988.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.