Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Qupperneq 6
Vikublað 14.–16. október 20146 Fréttir
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
Guðjón og Inga
deila um arfinn
n Skiptastjóri settur yfir dánarbúið n Deilt um reikning fyrir vinnu
Þ
etta fór til lögmanns af því
það var ágreiningur um
skiptin um búinu. Málið er
þar enn. Þetta er leiðinda-
mál og mjög sérstakt hvern-
ig fólk beitir sér í þessu,“ segir Guð-
jón Þórðarson knattspyrnuþjálfari
um skipti á dánarbúi móður hans,
Marselíu Guðjónsdóttur. Eignirnar í
búinu nema á milli 35 og 40 milljón-
um króna að sögn Guðjóns.
Skiptastjóri hefur verið fenginn til
að ráðstafa eignum búsins þar sem
Guðjón og hinir erfingjarnir, systur
hans, Inga Jóna og Herdís, og Borgar
Þór Einarsson, sonur Ingu Jónu,
komust ekki að samkomulagi um
það. Systkinin eru alin upp á Akranesi
og eru yfirleitt kennd við þann bæ þó
að Herdís sé sú eina í systkinahópn-
um sem býr þar ennþá.
Deilt um reikning
Guðjón varð landsþekktur sem
knattspyrnuþjálfari á sínum tíma
og þjálfaði þá meðal annars lið ÍA á
Akranesi áður en hann hélt utan til að
þjálfa. Síðastliðin ár hefur hann með-
al annars þjálfað ÍA, Grindavík og BÍ í
Bolungarvík.
Inga Jóna Þórðardóttir er sem
kunnugt er eiginkona Geirs H.
Haarde, fyrrverandi formanns Sjálf-
stæðisflokksins og fyrrverandi for-
sætisráðherra, og Herdís Þórðardóttir
er fyrrverandi þingkona Sjálfstæðis-
flokksins en hún sat á þingi hálft kjör-
tímabilið 2007 til 2009.
Móðir þeirra lést í fyrra en faðir
þeirra, Þórður Guðjónsson, lést árið
2005. Marselía sat í óskiptu búi frá
andláti manns síns þar til í fyrra en
skiptin á búinu hafa dregist eftir frá-
fall hennar. Að sögn Guðjóns út-
skýrist drátturinn á skiptunum af
ósamkomulagi þeirra á milli um
hvernig eigi að skipta því upp.
Með orðum sínum um hvernig
fólk „beitir sér í þessu“ á Guðjón með-
al annars við deilur um reikning upp á
830 þúsund krónur sem hann segir að
hafi verið settur inn í dánarbúið fyrir
vinnu við að taka saman eignir í húsi
foreldra þeirra eftir fráfall Marselíu í
fyrra. Húsið, sem er á Akranesi, hefur
verið selt fyrir 18 milljónir króna.
DV hafði samband við Ingu Jónu
Þórðardóttur til að spyrja hana út í
málið en hún var á fundi þegar blaðið
náði tali af henni og gat ekki talað við
blaðamann. Ekki náðist í Herdísi við
vinnslu fréttarinnar.
Segir enga greiðslu hafa borist
Guðjón segir að hann hafi óskað
eftir að skiptin á dánarbúinu færu
til skiptastjórans og er lögmaður í
Borgar nesi, Ingi Tryggvason: „Ég
óskaði eftir því að þetta færi til
skiptastjóra vegna þess að ekki hefði
verið hægt að sýna fram á að greiðsla
hafi farið inn í búið fyrir bústaðinn,“
segir Guðjón en bústaðurinn sem
um ræðir er einn af fjölmörgum bú-
stöðum sem kenndur er við Ölver og
er staðsettur við Hafnarfjall í Hval-
fjarðarsveit.
Bústaðurinn var í eigu foreldra
þeirra en Inga Jóna og Borgar Þór
hafa átt sumarhúsið síðastliðin ár.
Aðfinnsla Guðjóns snýst um að kaup-
verð bústaðarins – 3 milljónir króna –
hafi ekki verið greitt inn í búið á sín-
um tíma og að þar af leiðandi eigi
bústaðurinn að vera hluti af skiptun-
um. Bústaðurinn skipti hins vegar um
hendur áður en móðir þeirra systkina
féll frá.
Þá er einnig deilt um eyðjörð í
Ólafsfirði sem heitir Hreppsendabú
sem er inni í búinu.
Skiptum á dánarbúinu er ekki lok-
ið og er óvíst hvernig þeim mun ljúka
ef marka má orð Guðjóns. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Þetta er
leiðindamál
Deila um móðurarfinn
Guðjón Þórðarson
knattspyrnuþjálfari, sem
sést hér í úlpu merktri
knattspyrnuliði ÍA, stendur
nú í deilum við systur sínar og
frænda um móðurarf sinn.
Til skiptastjóra Skiptin á
dánarbúi móður Ingu Jónu,
Herdísar og Guðjóns fóru til
skiptastjóra þegar ekki gekk
að skipta upp eignunum.
Hraunavinir
kæra ríkið
Hraunavinir og tveir einstak-
lingar hafa, með stuðningi Land-
verndar, kært íslenska ríkið til
Mannréttindadómstóls Evrópu
vegna Gálgahraunsmálsins.
Kærendur telja Hæstarétt hafa
brotið á rétti Hraunavina til raun-
hæfra úrræða fyrir dómstólum
og réttlátrar málsmeðferðar fyrir
hönd félagsmanna sinna.
Hæstiréttur hafnaði með
dómi í nóvember 2013 beiðni
Hraunavina, Landverndar, Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands og
Náttúruverndarsamtaka Suðvest-
urlands um að fá ráðgefandi álit
EFTA-dómstólsins um hvort um-
hverfisverndarsamtök ættu að-
gang að dómstólum. Krafan var
gerð í lögbannsmáli sem sam-
tökin fjögur höfðuðu gegn Vega-
gerðinni vegna lagningar nýs
Álftanesvegar um Gálgahraun.
Í kærunni til Mannréttinda-
dómstólsins er þess krafist að
viðurkennt verði að íslenska
ríkið hafi með þessu brotið á
rétti Hraunavina fyrir hönd fé-
lagsmanna sinna til réttlátr-
ar málsmeðferðar og til raun-
hæfra úrræða fyrir dómstólum.
Þau réttindi eru varin af Mann-
réttindasáttmála Evrópu, sem Ís-
land er aðili að.
Lögreglan
leitar
árásarmanna
Lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu barst tilkynning um
líkamsárás í austurbæ Reykja-
víkur á fimmta tímanum á
mánudagsmorgun. Árásar-
þoli var fluttur á slysadeild til
skoðunar en hann hafði feng-
ið höfuðhögg, að því er fram
kemur í dagbók lögreglunn-
ar á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan veit hverjir voru að
verki og leitar þeirra.
„Myndi vilja sjá matseðilinn“
Ríkið reiknar með að hver máltíð kosti 248 krónur
É
g myndi gjarnan vilja heyra
uppskrift að þeirri máltíð frá
fjármálaráðuneytinu,“ segir Jó -
hannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, um virðis-
aukaskattsfrumvarp fjármálaráðu-
neytisins en þar er gert ráð fyrir að
hver máltíð kosti fjögurra manna
fjölskyldu 248 krónur á mann. Greint
var frá þessu í Fréttablaðinu á mánu-
dag.
„Þessi tala gengur ekki upp í
huga mér og hún er vanmetin stór-
lega að mínu mati,“ segir Jóhannes
Gunnarsson sem telur að margfalda
megi þessa tölu með tveimur til að
fá rétta tölu. „Það er ágiskun, en mér
finnst það ekki fjarri lagi. Ég held að
það sjái það allir sem kaupa mat fyr-
ir heimili að þetta er tala sem engan
veginn gengur upp. En ég myndi vilja
sjá matseðilinn á bak við þessa tölu,“
segir Jóhannes.
Tölurnar eru byggðar á neyslu-
könnun Hagstofu Íslands þar sem
miðað er við hjón með tvö börn,
annað yngra en sjö ára. n
birgir@dv.is
Jóhannes Gunnarsson Formaður
Neytendasamtakanna.
Bjarni Benediktsson Fer fyrir fjármála-
ráðuneytinu. MynD ReuTeRS