Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Qupperneq 17
Fréttir 17Vikublað 14.–16. október 2014
Frá Pol Pot til ISIS: „Allt sem flýgur á allt sem hreyfist“
eftirsjá. „Ég skammast mín,“ sagði
hann. Í dag er hann sjaldgæfur
maður sem segir sannleikann um
hvernig ríkis stjórnir blekkja og
hvernig auðsveipir fjölmiðlar leika
mikilvægt hlutverk í að breiða út
og viðhalda blekkingunni. „Við
fóðruðum [fréttamenn] á ósann
reyndum, dauðhreinsuðum upp
lýsingum,“ sagði hann, „eða úti
lokuðum þá.“
Þann 25. september birtist fyrir
sögn í Guardian: „Frammi fyrir
hryllingi ISIS verðum við að grípa
til aðgerða.“ „Verðum við að grípa
til aðgerða“ er upprisinn draug
ur, viðvörun um niðurbælda, upp
lýsta minningu, staðreyndir, lærð
ar lexíur og iðrun eða skömm.
Höfundur greinarinnar var Peter
Hain, fyrrverandi utanríkisráð
herra og ábyrgur fyrir málefnum
Íraks í ríkisstjórn Blairs. Árið 1998,
þegar Halliday opinberaði um
fang þjáninga í Írak, sem stjórn
Blairs bar að hluta ábyrgð á, atyrti
Hain hann í Newsnightþættin
um á BBC, og kallaði hann „verj
anda Saddams“. Árið 2003 studdi
Hain innrás Blairs í magnvana Írak
á grundvelli augljósra ósanninda.
Síðar á ráðstefnu Verkamanna
flokksins hundsaði hann umræður
um innrásina, sagði hana „auka
atriði“.
Núna heimtar Hain „loftárásir,
dróna, hergögn og annan stuðn
ing“ við þá sem „standa frammi
fyrir þjóðarmorði“ í Írak og Sýr
landi. Þetta mun ýta undir „mikil
vægi pólitískrar lausnar.“ Obama
hefur það sama í huga þegar hann
afléttir því sem hann nefnir „höml
ur“ á sprengju og drónaárásum
Bandaríkjamanna. Þetta merkir að
skotflaugar og 500 punda sprengj
ur geta rústað heimilum sveita
fólks, líkt og þær gera hömlulaust
í Jemen, Pakistan, Afganistan
og Sómalíu – eins og þær gerðu í
Kambódíu, Víetnam og Laos. Hinn
23. september lenti Tomahawk
skeyti í þorpi í Idlibhéraði í Sýr
landi og varð allt að tylft borgara
að aldurtila, þar á meðal konum
og börnum. Ekkert þeirra sveiflaði
svörtu flaggi.
Þannig vildi til, að daginn sem
grein Hains birtist, voru Denis
Halliday og Hans Von Sponeck
staddir í Lundúnum og sóttu mig
heim. Banvæn hræsni stjórnmála
manns kom þeim ekki á óvart,
en þeir hörmuðu langlífi nánast
óútskýranlegs skorts á vitrænni
diplómasíu í að semja um eitt
hvað sem nálgaðist vopnahlé. Um
alla veröld, frá NorðurÍrlandi til
Nepal, hafa þeir sem telja hverj
ir aðra vera hryðjuverkamenn og
trúvillinga sest niður við sama
borð. Af hverju ekki núna, í Írak og
Sýrlandi?
Líkt og ebóla frá VesturAfríku,
hefur baktería nefnd „eilífðarstríð“
borist yfir Atlantshafið. Richards
lávarður, sem var þar til nýlega
yfir maður breska hersins, vill núna
„stígvél á jörðina“ (landgönguliða
í viðbragsstöðu?). Það er bragð
dauf, nánast siðblind fámælgi,
sem berst frá Cameron, Obama og
þeirra á „lista hinna viljugu“ – sér
staklega hinum ástralska, undar
lega árásarhneigða Tony Abbott –
þegar þeir fyrirskipa meira ofbeldi,
sent úr 30.000 feta hæð á staði þar
sem blóð fyrri ævintýra hefur ekki
náð að þorna. Þeir hafa aldrei upp
lifað loftárásir og ljóst að þeim líka
þær svo mjög að þeir vilja þær til
að umturna eina raunverulega
mikilvæga bandamanni sínum,
Sýrlandi. Þetta er engin nýlunda
eins og eftirfarandi leyniskjal
Bandaríkjanna og Bretlands, sem
lekið var, sýnir: „Til að undirbyggja
aðgerðir frelsisherjanna… ætti að
setja sérstakan kraft í að útrýma
ákveðnum lykilpersónum [og] að
halda áfram að skapa óróa inn
an Sýrlands. CIA er reiðubúin, og
SIS (MI6) mun reyna að standa
að minni háttar skemmdarverk
um og skyndiárásum innan Sýr
lands, vinna með einstaklingum í
gegnum tengiliði… nauðsynlegu
umfangi ótta… sviðsettir árekstrar
við landamæri [munu] gefa átyllu
til íhlutunar… CIA og SIS ættu að
nota… möguleika á sviði hvort
tveggja sálfræðihernaðar og að
gerða á átakasvæðum til að auka á
spennu.“
Þetta var ritað 1957, en gæti í
reynd hafa verið skrifað í gær. Í
heimsveldisveröld breytist í raun
ekkert. Í fyrra opinberaði Roland
Dumas, fyrrverandi utanríkis
ráðherra Frakklands, að „tveim
ur árum fyrir arabíska vorið“ hefði
honum verið sagt að í bígerð væri
stríð við Sýrland. „Ég ætla að segja
ykkur svolítið,“ sagði hann í við
tali við frönsku sjónvarpsstöðina
LPC, „ég var á Englandi, í óskyld
um erindagjörðum, tveimur árum
áður en skálmöldin hófst í Sýr
landi. Ég hitti háttsetta embættis
menn sem viðurkenndu fyrir mér
að þeir væru að undirbúa svolítið
í Sýrlandi… Bretland var að undir
búa innrás uppreisnarmanna inn
í Sýrland. Þeir jafnvel spurðu mig,
þótt ég væri ekki lengur utanríkis
ráðherra, hvort ég vildi vera með…
Þessa aðgerð má rekja langt aftur.
Hún var undirbúin, úthugsuð og
skipulögð.“
Einu andstæðingar ISIS, sem
eitthvað kveður að, eru Íran, Sýr
land og Hisbolla – árar í augum
vestrænna ríkja. Hindrunin er
Tyrkland, „bandamaður“ og að
ildarríki NATO, sem hefur unnið
að því með CIA, MI6 og miðalda
sinnum við Flóann að veita sýr
lenskum „uppreisnarmönnum“
aðstoð, þar á meðal þeim sem nú
kalla sig ISIS. Stuðningur við Tyrk
land í því langtíma markmiði að
koma ríkisstjórn Assads frá og öðl
ast þannig yfirráð í heimshlutan
um kallar á hefðbundið stríð og
sundurhlutun þess ríkis í Mið
Austurlöndum sem hýsir hvað
flest þjóðarbrotin.
Vopnahlé – hversu erfitt sem
það yrði að semja um það – er
eina leiðin út úr þessu völundar
húsi heimsvaldapólitíkur; annars
munu höfuðin fjúka áfram. Það að
alvöru samningaviðræður við Sýr
land teldust „vafasamar siðferð
islega“ (Guardian) gefur til kynna
að ályktun um æðra siðferði þeirra
sem studdu stríðsglæpamanninn
Blair sé ekki aðeins fáránleg, held
ur hættuleg að auki.
Samhliða vopnahléi ætti að
stöðva tafarlaust allar skipa
sendingar hergagna til Ísraels og
viðurkenna ríki Palestínu. Mál
efni Palestínu er stærsta, opna sár
ið í heimshlutanum og það grefur í
því, og það oft sagt réttlæting fyrir
uppgangi öfgaíslamisma. Osama
bin Laden gerði það ljóst. Í Palest
ínu er einnig fólgin von. Veitið
Palestínumönnum réttlæti og þá
farið þið að breyta heiminum í
kringum þá.
Fyrir meira en 40 árum settu
NixonKissingersprengjuárásirn
ar í Kambódíu af stað bylgju þján
inga sem landið hefur aldrei jafnað
sig á. Hið sama á við um Blair
Bushglæpina í Írak. Með full
kominni tímasetningu hefur síð
asti sjálfhverfi doðrantur Henrys
Kissinger, með þeim kaldhæðnis
lega titli World Order (Heimsskip
an), verið gefinn út. Í einni fleðu
legri umsögn er Kissinger lýst sem
„lykilmanni við mótun heims
skipulags sem hélt stöðugleika í
aldarfjórðung“. Segið það fólki í
Kambódíu, Víetnam, Laos, Chile,
AusturTímor og öllum öðrum
fórnarlömbum „stjórnkænsku“
hans. Aðeins er „við“ berum kennsl
á stríðsglæpamennina meðal vor
mun blóðið fara að þorna. n
Þýtt með leyfi höfundar
Afsprengi ISIS er afsprengi manna í Washington og Lundúnum sem, með því að eyðileggja Írak sem hvort tveggja ríki og samfélag, lögðu á ráðin um að fremja stórkostlegan glæp gegn
mannkyni, segir Pilger.
www.3frakkar.com | sími: 552 3939
Sjálfstæðismenn
borða plokkfisk
Njótið lífsins
Baldursgötu 14 | sími: 552 3939 | www.3frakkar.com