Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Side 18
Vikublað 14.–16. október 201418 Fréttir Erlent
Lífstíðardómur
fyrir dauðakLám
n Filippseysk hjón framleiddu myndbönd af pyntingu dýra n Vestrænir kaupendur
Í
lok september voru filipps
eysku hjónin Vicente og Dorma
Ridon dæmd í lífstíðarfangelsi
fyrir barnamisnotkun, dýraníð,
mansal, ásamt ýmsum minni
glæpum. Öll brotin voru framin við
vinnslu á svokölluðum „Crush“
myndböndum sem hjónin voru sök
uð um að hafa selt á internetinu.
Myndböndin sýndu hrottafengna
pyntingu og aflífun ýmissa dýra og
voru kaupendur myndbandanna í
langflestum tilvikum Vesturlanda
búar – með ógeðfellt blæti. Hjónin
neyddu í einu tilviki tólf ára berfætta
stúlku til að kremja dýr til dauða og
varð það veigamikið í því að dómur
þeirra var jafn þungur og raun ber
vitni.
Hvolpar kramdir
Efni myndbandanna er hvert öðru
óhugnanlegra. Í nær öllum tilvik
um sáu fáklæddar unglingsstúlkur
um pyntingu dýranna. Eitt mynd
band sýndi hvernig hundur var
fláður lifandi, annað myndband
sýndi konu brenna hund með
straujárni. Þriðja myndbandið
sýndi hvernig eyru voru skorin af
kanínu og hún því næst brennd
lifandi. Fjórða myndbandið sýndi
konu stinga út auga apa með odd
hvössum skóhæl. Í flestum tilvik
um voru myndböndin þó, líkt og
nafnið gefur til kynna, af konum að
kremja dýr, með þeim afleiðingum
að líffæri fóru út um kjaft þeirra.
Oftar en ekki var um að ræða
hvolpa.
Rannsókn í samstarfi við PETA
Ridonhjónin voru handtekin
árið 2011 í kjölfar sameiginlegrar
rannsóknar filippseysku alríkis
lögreglunnar og Asíudeildar dýra
verndunarsamtakanna PETA.
Raunar hafði PETA merkilega mik
il áhrif á málið, samtökin þrýstu á
yfir völd í Filippseyjum að líta mál
ið alvarlegum augum og unnu stór
an hluta rannsóknarvinnu. „Dóm
ur Ridonhjónanna er viðvörun til
allra þeirra sem taka þátt í hinum
viðbjóðslega „Crush“kvikmynda
iðnaði. Að skaða dýr getur haft
alvarlegar afleiðingar,“ sagði Jason
Baker, varaforseti Asíudeildar
PETA, við fjölmiðla í kjölfar dóms
ins.
Kynntust á netinu
Við réttarhöldin hélt Vicente því
fram að hans eini viðskiptavinur og
„leikstjóri“ væri ástralskur maður
sem hann kynntist við tölvuleikja
spil á netinu árið 2007. Vicente hélt
því fram að maðurinn hafi ýmist
kynnt sig sem Mick Tanks eða
Michael Clark. Leitað er að Ástral
anum nú en það gæti reynst erfitt
að hafa hendur í hári hans þar sem
hann huldi slóð sína vel. Raunar er
hefur tilvist hans ekki verið stað
fest og ekki útilokað að hann hafi
verið skáldaður upp af Vicente.
Kaupendur dauðaklámsins eru
þó tvímælalaust raunverulegir og
samkvæmt yfirlýsingu PETA er nú
unnið að því að rekja slóð þeirra.
Samkvæmt sömu yfirlýsingu er vit
að um kaupendur frá Bandaríkjun
um, Frakklandi, Bretlandi, Ástralíu
og SuðurKóreu.
Stigmagnandi viðbjóður
að ósk huldumanns
Samkvæmt Vicente hófst mynd
bandaserían á fremur saklausan
hátt, Clark bað hann um að taka
myndband af einhverjum á baki
vatnavísunds. Sendi Clark mynd
bandsvél og pening til Vicente,
sem tók upp myndband af þernu
sinni á baki vísunds. Í kjölfar þess
bárust Vicente ný „handrit“ reglu
lega sem urðu stigmagnandi í við
bjóði. Í einu „handriti“ var þess
óskað að kona slátraði hundi, í
öðru að snákur yrði rifinn í tvennt.
Vicente sagði að fyrir hvert mynd
band hafi hann fengið á bilinu
hundrað til tvö hundruð Banda
ríkjadala. n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„Dómur Ridon-
hjónanna er við-
vörun til allra þeirra sem
taka þátt í hinum við-
bjóðslega „Crush“-kvik-
myndaiðnaði.
Skjáskot Hér má sjá eitt vægara atriði í „Crush“-myndabandaþáttaröðinni.
Eftirlýst Asíudeild PETA lagði mikla áherslu á að draga hjónin fyrir dómstóla og hétu um
tíma verðlaunum fyrir upplýsingar um þau.
Fannst föst undir látnum föður
T
íu mánaða stúlka fannst nær
dauða en lífi í Shreveport í
Louisiana eftir að hún hafði
legið föst svo dögum skipti
undir líki föður síns. Lögreglan fann
litlu stúlkuna, Betty Jean Fields, þar
sem hún lá uppi í rúmi föst milli
veggjarins og föður síns. Að sögn
dánardómstjóra virðist sem faðirinn
hafi setið í rúminu og verið í tölvunni
þegar hann fékk skyndilega hjartaá
fall og féll aftur fyrir sig á stúlkuna.
Lögreglan var kölluð á vettvang
á föstudagskvöld eftir að fimm ára
bróðir Betty leitaði til nágranna þar
sem hann sagði þeim að hann héldi
að faðir hans væri látinn.
„Það að hann hafi lent á henni og
ekki gert neina tilraun til að hreyfa
sig segir mér að hann hafi látist sam
stundis,“ segir dánardómstjórinn.
Betty Jean þjáðist af miklum
vökvaskorti þegar hún fannst og en
engin loftkæling er á heimilinu svo
hún var brennheit þegar lögreglu
menn bar að garði. Hún gat þó and
að og þykir mikil mildi að stúlkan
hafi hreinlega lifað þetta af. Áætlar
dánardómstjóri að faðirinn, sem var
43 ára og hafði lengi glímt við hjarta
sjúkdóma, hafi dáið þremur dögum
áður en hann fannst.
Búist er við að stúlkan nái sér að
fullu. Móðir hennar, sem sat í fang
elsi fyrir minniháttar afbrot, var látin
laus fyrr til að geta séð um Betty Jean
og bróður hennar. n
mikael@dv.is
n Faðir hennar hafði fengið hjartaáfall n Lá undir líkinu í þrjá daga
Sjö drepnir í
nornaveiðum
Lögreglan í Tansaníu hefur hand
tekið 23 þorpsbúa í Murufiti sem
grunaðir eru um að hafa ráðist á
sjö manns vopnaðir sveðjum og
brennt hluta þeirra lifandi. Voru
þeir sannfærðir um að fórnarlömb
in væru nornir og seiðskrattar.
Fimm hinna látnu, flest konur
en einnig karlar, voru á sjötugsaldri
en hinir á fimmtugsaldri. Mann
réttindasamtök í Tansaníu áætla
að allt að 500 manns séu drepin ár
lega grunuð um fjölkynngi.
„Þegar ég kom heim þá fann
ég lík móður minnar í um 10
metra fjarlægð við heimilið en
faðir minn hafði verið brennd
ur inni í húsinu,“ segir Josephat
John, sonur hjóna sem myrt voru,
í samtali við tansaníska dagblað
ið Mwananchi. BBC greinir frá.
Í samtali við BBC segir Hamisi
Richard, leiðtogi þorpsins, að fjöl
margir hafi flúið þorpið af ótta við
árásirnar og áhlaup lögreglu. Einn
hinna handteknu nú er sagður
vera helsti andalæknir Murufiti en
þeir eru sagðir taka reglulega þátt
í árásum sem þessum.
Galdratrú er ríkjandi víða í
Tansaníu en áætlað er að á ár
unum 2005 til 2011 hafi um þrjú
þúsund manns verið drepin
grunuð um að vera nornir sam
kvæmt frétt BBC.
Vændiskonur
mótmæla
Mikill fjöldi vændiskvenna safn
aðist saman fyrir utan byggingu
öldungadeildar franska þings
ins á sunnudag til þess að þrýsta
á frönsk stjórnvöld um að gera
kaup á vændi refsiverð. Laga
frumvarp um að að sekta megi
vændiskaupendur voru felld nið
ur í júlí en mótmælendur kröfð
ust aðgerða.
Rosen Hicher, 57 ára göm ul
fyrrverandi vænd is kona, var ein
þeirra sem talaði á fundinum, en
hún sagði engan hafa rétt til þess
að kaupa eða selja konu.
Hrollvekjandi Tíu
mánaða stúlka fannst
föst undir líki föður síns í
Shreveport á föstudag.
Hafði setið þar föst upp
við vegg í minnst þrjá
daga. Myndin tengist
efni fréttar ekki.