Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Side 19
Vikublað 14.–16. október 2014 Skrýtið 19
H
inn 24. nóvember 1967 birt
ist þessi frétt á forsíðu Tím
ans: „Á þriðjudagskvöldið
sáu tveir Húsvíkingar
lýsandi hlut á lofti skammt
frá Laufási í Kelduhverfi. Var hann
í lögun svipaður barðastórum hatti
og gekk kollurinn á undan, en leift
urstrókar stóðu marga metra aftur úr
hlut þessum. Fór hann frá norðaustri
til suð vesturs, en hraðinn virtist ekki
mikill. Þar um slóðir hafa menn að
sjálfsögðu ekki hugmynd um, hvaða
hlutur er hér á ferðinni. Leiða menn
helzt getum að að hér sé um ein
hvern hlut að ræða, sem Rússar eða
Bandaríkjamenn hafa sent á loft, en
þar sem hæð hans frá jörðu virtist
lítill, eða 80–100 metrar, verður sú
kenning nokkuð ósennileg.“
Hvað gerðist í Kelduhverfi?
Tíminn gerði frekari grein fyrir
þessum atburði á næstu síðum.
Þormóður Jónsson, fréttaritari
blaðsins á Húsavík, ræddi við annað
vitnið, Jónas Egilsson, forstöðumann
Olíusölu Kaupfélags Þingeyinga á
Húsavík:
„Þriðjudaginn 21. nóv. fór hann
við annan mann á bifreið austur í
Kelduhverfi. Klukkan 21:15 eru þeir
staddir skammt frá bænum Lauf
ási í Kelduhverfi. Þá sjá þeir á lofti
lýsandi hlut, því líkast sem glamp
aði á málm. Stærð og lögun virt
ist þeim ekki ósvipuð barðastórum
hatti, og fór kollurinn á undan. Aftur
úr gengu leifturstrókar margir metrar
á lengd. Þeim virtist hluturinn aðeins
vera í 2–3 hundruð metra fjarlægð frá
þeim, þegar hann var næst þeim, og
í 80–100 metra hæð frá jörðu. Stefna
hlutarins var frá norðaustri til suð
vesturs, og hraðinn virtist ekki ýkja
mikill.“
Fljúgandi diskur yfir Esjunni
Morgunblaðið prentaði þessa frétt
á forsíðu blaðsins í byrjun nóvem
ber 1954: „Fljúgandi diskur var á
ferðinni hér við Reykjavík í gær
kvöldi. – Kona að nafni Elísabet
Þórarinsdóttir, Hátröð 9, í Kópavogi,
sá þetta furðulega geimfar, er hún
var stödd á Laugaveginum. Önnur
kona var með henni og sá þessa sýn
líka. Fór þetta geimfar, sem var spor
öskju eða hellulagað, á mikilli ferð
frá austri til vesturs og lýsti í myrkr
inu. Bar diskinn yfir Esjuna er kon
urnar sáu hann. Þetta var á milli kl. 7
og 7:15 í gærkvöldi.“
Dularfull ljós þekkst lengi
Fljúgandi furðuhlutir, FFH, eða UFO
á ensku, er heiti sem notað er um
fyrirbæri á himninum sem ekki er
unnt að skilgreina. Kannski fljúgandi
plastpoki eða sérvitur máfur. Jú, eða
fljúgandi diskar og aðrir slíkir furðu
hlutir, sem fjölmargir segjast sjá. Og
þetta er reyndar ekki alveg nýtt fyrir
bæri. Til eru ýmsar sögur frá fyrri
öldum um dularfull ljós á himninum
og óþekkt farartæki.
Ein elsta heimildin um slíkar
sýnir er bók Kínverjans Shen Kuo,
Draumahylur, frá árinu 1088. Í henni
er talað um hraðskreitt perlulaga
farartæki sem opnaðist og blindandi
ljós flæddi út. Getið er um álíka ljós
glæringar í íslenskum annálum frá
öldum áður.
Í takt við tíðaranda
Áhugi á slíkum furðuhlutum og far
þegum þeirra varð hins vegar ekki al
mennur fyrrr en um miðja 20. öldina
og sérstaklega í Bandaríkjunum.
Fyrsta málið af þessu tagi sem náði
athygli almennings var árið 1947.
Dagblöðin fluttu fregnir af ótrú
legu atviki. Flugmaðurinn Kenneth
Arnold flaug einn yfir fjallgarði í
Wash ingtonríki þegar hann sá níu
fljúgandi furðuhluti skjótast framhjá
á ógnarhraða. Milljónir manna fylgd
ust með spenntar með gangi mála í
fjölmiðlum. Úti um allar trissur stigu
fram vitni sem sögðust hafa séð fljúg
andi diska, en hugtakið komst í al
menna notkun við þetta tækifæri.
Æði fyrir fljúgandi diskum
Áhugamenn um fljúgandi diska
stofnuðu tímarit og fjölmargar bæk
ur komu út um efnið. Margir töldu
að stjórnvöld í Bandaríkjunum hefði
hylmt yfir slys geimvera í Roswell í
NýjuMexíkó árið 1947. Sagt var að
fljúgandi diskur hefði brotlent á her
stöð flughersins í Roswell í fárviðri
og að hermenn hefðu skóflað braki
geimfarsins á vörubíl og flutt í her
stöðina. Embættismenn Bandaríkja
hers vísuðu fregninni á bug og sögð
ust ekki hafa orðið varir við neinar
geimverur. Herinn hefði sett nýja
gerð veðurloftbelgs á loft sem hrap
að hefði til jarðar eftir að elding hafði
eyðilagt hann. Þessi atburður er einn
sá frægasti í sögu geimveruvísinda
og hefur gert herstöðvarnar Roswell
og Area 51 í Nevada að goðsagna
kenndum stöðum þar sem sumir
telja að Bandaríkjastjórn stundi alls
kyns leynikukl með geimverum.
Og á sama tíma var geimferða
kapphlaup stórveldanna hafið.
Mannkynið virtist í þann mund að
ferðast til fjarlægra pláneta. Ótal
kvikmyndir um geimverur og geim
inn litu dagsins ljós. Þegar íslensk
um dagblöðum frá 1950–1970 er flett
má greinilega sjá að Ísland fór ekki
varhluta af þessu „æði “.
Nýtt æði upp úr 1990
Á níunda og sérstaklega tíunda ára
tugnum fóru geimverur að birtast
aftur í stórum stíl í kvikmyndum.
Það nýja æði náði kannski hátindi
sínum með hinum geysivinsælu
þáttum XFiles, þar sem Fox Mulder
og Dana Scully rannsökuðu háleyni
legt ráðabrugg stjórnvalda um geim
verur. Á Íslandi varð mikið blaða
fár árið 1993 þegar því var spáð að
geimverur myndu í fyrsta sinn í ver
aldarsögunni birtast mönnum opin
berlega. Þetta átti að gerast við Snæ
fellsjökul hinn 5. nóvember 1993
klukkan 21.07. Og um 500 manns frá
ýmsum löndum biðu í kulda og élja
gangi talsvert lengi þetta kvöld. Sum
ir sögðust sjá einhver ljós á himnum
en ekkert geimfar kom á áætluð
um tíma klukkan 21.07 og ekki síð
ar heldur. Hjá hópnum var mikið
húllumhæ, flugeldum var skotið á
loft og flestir skemmtu sér vel þrátt
fyrir þessi vonbrigði. Nokkrir urðu
þó fúlir og töldu að fjölmiðlafár og
ljósagangur hafi valdið því að engin
geimför lentu á jöklinum þetta hroll
kalda kvöld.
Geimverur líklegar
Nú á dögum telja vísindamenn
nokkuð líklegt að líf geti þrifist á
öðrum hnöttum. Á síðustu áratug
um hefur mönnum tekist að upp
götva plánetur í öðrum sólkerfum
vetrarbrautarinnar og sumar þeirra
virðast nógu huggulegar til að þar
geti þrifist líf. En spurningin um líf
í alheiminum er flókin. Það er ekki
gott að segja hvort líf hafi kviknað á
jörðinni fyrir tilviljun, sé einangrað
fyrirbæri hér á þessum hnetti, eða
hvort það fyrirfinnist á ýmsum stöð
um í geimnum. En eitt er víst, eins
og bandaríski stjörnufræðingurinn
Carl Sagan benti ítrekað á: „Stór
fenglegar staðhæfingar þarfnast
stórfenglegra sönnunargagna“. Ef
það er líf á öðrum hnetti verðum við
að sanna það. n
Fljúgandi diskur
í Kelduhverfi 1967
n Dagblöð birtu forsíðufréttir um málið n Fljúgandi diskur sást líka yfir Reykjavík 1954
Helgi Hrafn Guðmundsson
helgihrafn@dv.is
Furðuför FFH víða um heim. Bresk skýr-
ingarmynd frá 1969 sýnir ýmis furðuför sem
sjónarvottar sögðu frá.
Óteljandi myndir FFH í bíó. Óteljandi
kvikmyndir hafa verið gerðar um fljúgandi
diska. Hér er ein eftirminnileg frá 1959, Plan
9 From Outer Space eftir Ed Wood.
Ekki réttur diskur Tíminn
1967. Dagblaðið birti þessa
mynd sem var reyndar ekki af
umræddum fljúgandi diski.
Dularfullt
Talsverð umræða
skapaðist um
fyrirbærið sem sást í
Kelduhverfi.
MyND sHuttErstocK