Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Qupperneq 21
Umræða 21Vikublað 14.–16. október 2014
Brotthvarf nemenda
Í
Hvítbók mennta- og menn-
ingarmálaráðherra eru sett skýr
markmið um námsframvindu
í framhaldsskólum. Þau mark-
mið hafa fengið nokkra umfjöll-
un þar sem ýmsum þykir að sér
vegið í þeirri bók. Bent hefur verið
á misvísandi talnagögn og fleira en
staðreyndin er sú að það er mikið
sóknarfæri á þessu sviði.
Hvers vegna hætta þau?
Í nýútkominni skýrslu Rannsókna
og greiningar (Ungt fólk 2013,
framhaldsskólar) er t.d. fróðlegt
að fletta upp á mynd nr. 68 en þar
má sjá að um þrjátíu prósent fram-
haldsskólanema sem könnuninni
svöruðu telja námið tilgangslaust
og að sú staða hefur verið það sem
af er þessari öld með minnihátt-
ar sveiflum. Að sama skapi kemur
fram í Brotthvarfsskýrslum ráðu-
neytis mennta- og menningarmála
að skólaárið 2013–2014 hættu inn-
an við 40% nemenda í framhalds-
skólum vegna þátta sem eru á
valdi skólanna. Hér er átt við að
þegar nemanda er vísað frá námi
t.d. vegna brota á umgengnis- eða
skólasóknarreglum, margfalls á
prófum o.fl.
Á sama tíma hættu liðlega 60%
vegna félagslegra aðstæðna, fjár-
hagslegra mála eða heilsufars. Það
sem bæta má við er að baki þeim
þáttum sem snerta skólann (aga-
mál o.s.frv.) eru án efa félagslegar,
fjárhagslegar eða heilsufarslegar
ástæður sem ekki koma endilega
fram.
Spurningar vakna því um eitt og
annað í þessu samhengi.
Ekki allir í sömu þörf
Eitt er að skoða hvort ekki þurfi
að brjóta upp starfsramma skól-
anna, t.d. námsgreinaskipan sem
er að stofni til frá þar síðustu öld
og almenna uppbyggingu náms-
brauta sem er í grunninn frá lok-
um 19. aldar. Fleira mætti skoða
s.s. skipan starfstíma en það er
frekar óraunhæft að skólar megi
ekki sinna t.d. kennslu í desember
eða frá maí til loka ágúst. Í tíðarfari
þar sem þröngt er á vinnumark-
aði þá er slíkt frekar slæmt fyrir
unga fólkið. Einnig kann að vera
ráð að skólarnir, sem helst reyna
að sinna nemendum sem eru að
fást við vandamál eins og nefnd
voru að framan, sem og nemend-
um með námsörðugleika, fái úr-
ræði og fjármagn til þess. Það gæti
þýtt sálfræðiþjónustu, heilbrigðis-
þjónustu og fleiri þætti sem snerta
stoðkerfi skólanna. Athuga ber að
það eru ekki allir skólar í sömu
þörf eða með sama metnað í þess-
um efnum. Þeir sem ganga fremst
á þessu sviði eru einnig illa settir
rekstrarlega.
Að auki mætti líta til nærliggj-
andi landa sem t.d. útvega nem-
endum námsgögn og jafnvel greiða
þeim námsstyrki sem stunda skól-
ann.
Metnaðarfullar lausnir
Markmið Hvítbókarinnar eru
metnaðarfull. Einhverjum þeirra
má ná með hagræðingu. Líklegt er
þó að það þurfi djarfar og metnað-
arfullar lausnir líka. Og til að í þær
hilli þarf að opna skólunum leið-
ir sem nú eru lokaðar vegna fjár-
skorts. n
Magnús Þorkelsson
skólameistari Flensborgarskóla
Kjallari
Hallgrímur Helgason trúir á skáldskapinn
H
allgrímur Helgason rithöf-
undur og er bæði pennafær
og magnað skáld og fjölhæf-
ur listamaður, sem mér hef-
ur þótt vænt um hvort sem
hann leggur til mín eða umfaðmar af
einstökum kærleika. Enginn nútíma
Íslendingur er jafn líkur í háttum
kappanum Þorgeiri Hávarssyni sem
sagt er frá í Fóstbræðra sögu. Hann
hefur skipað sér í þá sérkennilegu
stöðu að oft er hann landamæra-
laus og virðist þá stundina löðrunga
fósturjörðina og ýfast við öllu sem ís-
lenskt er. Hina stundina verður hann
eins og jökull eða stormur sem þýtur
um grund, eða rigningin, íslenskari
en allt.
Í pólitískri umræðu heldur hann
á penna Jónasar frá Hriflu, óvæginn
og miskunnarlaus við andstæðinga
sína, nema Jónas vissi hvert hann
var að fara og er eini alvöru stjórn-
málamaðurinn sem Ísland hefur átt
og eins og Albert Guðmundsson sá
merki stjórnmálamaður sagði við
mig í París forðum: „Í rauninni miklu
merkilegri en Jón Sigurðsson forseti.“
Jónas bjó til vopnin
Jónas bjó til vopnin til að sækja fram
og bæta hag alþýðunnar og þar voru
flokkar okkar Hallgríms merkileg-
astir því Jónas var guðfaðir bæði
Alþýðuflokksins og Framsóknar-
flokksins sem fóru gegn auðvaldinu
og stóðu að alþýðumenntuninni og
samvinnuhugsjóninni. Svo er það
merkilegt með Hallgrím að hann vel-
ur sér oft af miklum trúarhita stöðu
með þeim sem vilja ryðja því þjóð-
lega úr vegi.
Tvífari Hallgríms Þorgeir Hávars-
son fóstbróðir Þormóðs Kolbrúnar-
skálds var vígamaður og heillaður
af vopnaburði. Eitt sinn kom hann í
hóp manna þar sem stóð sauðamað-
ur yfir fé sínu og studdist fram á staf
sinn og talaði við aðra menn. Stafur-
inn var lágur en maðurinn móður og
var hann nokkuð bjúgur, steyldur á
hæli og lengdi hálsinn. En er Þorgeir
sá það reiddi hann fram öxina og lét
detta á hálsinn. Öxin beit vel og fauk
af höfuðið og kom víðs fjarri niður.
Þegar menn spurðu hvers vegna
hann hefði unnið þetta óhæfuverk
svaraði hann: „Ég mátti eigi við bind-
ast er hann stóð svo vel til höggsins.“
Eitt sinn sá ég skáldið berja bíl for-
sætisráðherra með kylfu af því að
bíllinn lá svo vel við höggi. Guði sé
lof að Geir H. Haarde var í bílnum
en ekki utan dyra. Þegar Hallgrímur
barði bílinn speglaðist rosabaugur á
skallanum á honum enda var hann
verkamaður Baugskeðjunnar á þess-
um tíma en ekki litla mannsins. Svo
er hann auðvitað líkur Þormóði að
því leyti að hann er flókin persóna,
vígamaður, kvennamaður og skáld.
Trúir kviksögum
En málflutningur Hallgríms í grein-
inni í DV um helgina er rangur og
í meginatriðum byggður á kvik-
sögum. Hann trúir gagnrýnislaust
þeirri mynd sem DV og Kastljós hafa
dregið upp. Það er af því að hann er
sjálfur skáldsagnabóndi og líkar vel
þegar menn skálda í fjölmiðlum. Það
er skáldskapur að Mjólkursamsalan
hafi brugðið fæti fyrir Mjólku. Hún
keypti ekki mjólk af MS fyrstu starfs-
ár sín heldur safnaði henni sjálf frá
bændum. Það var á þeim árum sem
„litla blómið“ safnaði um sig illgresi
óviðráðanlegra skulda sem ollu því
að það visnaði. Viðskiptin við MS
sem fylgdu í kjölfarið skiptu þar engu
til eða frá.
MS bakkaði út af lífræna mjólkur-
markaðnum og þar er nú Biobú í
hægum en öruggum vexti frá 2006 og
í góðum viðskiptum við MS. Mjólk-
ursamsalan safnar lífrænni mjólk
fyrir það frá þremur lífrænum búum
á Norðurlandi, öðru á Suðurlandi og
svo frá Neðra Hálsi í Kjós þar sem
búið á sínar rætur. Mjólkusamsalan
seldi frá sér ísgerðina Emmess árið
2007 til Sólar ehf. og hefur Emmess-
ís haslað sér völl sem sjálfstætt fyrir-
tæki óskylt MS. Mjólkursamsalan hef-
ur notað laktósaskerðingu í vörum
sínum um langt árabil, allt frá árinu
2002, til þess að auka sætubragð í því
skyni að minnka sykurmagn. Og það
svaraði kröfum um laktósafría mjólk
áður en Arna kom til í Bolungarvík
og lætur því ágæta fyrirtæki eftir sér-
vörumarkaðinn á þessu sviði. Þetta
er því allt meira og minna skáldskap-
ur að kúabændur hafi gegnum MS
beitt valdi sínu til þess að drepa af sér
samkeppni ef við lítum til þeirrar ald-
ar sem við lifum nú á. Látum sagn-
fræðingana um tuttugustu öldina og
ég trúi að þeir muni draga upp litrík-
ari mynd en þá svarthvítu sem brugð-
ið var upp í lituðu Kastljósi.
Landsnet kúabænda
Mjólkursamsalan er landsnet 650
kúabænda undir strangri löggjöf og
má ekki græða eða borga eigendum
sínum beinan arð. Allur hagnaður
skal fara annars vegar til neytenda
í lægra vöruverði og hins vegar til
bænda til að bæta afurðaverð þeirra.
Rannsóknir sýna að opin ber verð-
lagning og lög um hagræðingu hafa
skilað neytendum 2 milljörðum og
bændum 1 milljarði árlega frá 2004
eða yfir 30 milljörðum. Allir kaup-
menn, bæði sá sem hefur 50% hlut-
deild í smásölu og hinn sem hefur
1% eða 10% hlutdeild fá vörur MS á
svipuðu verði til sín. Þetta voru því
lög sem snerust um samkeppni, að
hjálpa þeim litla til að lifa og standa
gegn ofríki þess stóra á markaði.
Þess vegna fær fólkið ákveðnar dag-
vörur á svipuðu verði hvar sem það
býr í landinu. Þetta er jafnaðar-
mannamál Hallgrímur minn, enda
var opinber verðlagning vel studd
á Alþingi í ljósi þessa á sínum tíma.
Hvar sem tveir menn koma
saman á Íslandi, þar er mafía. Við
getum kallað hvert annað mafíufor-
ingja en það hjálpar ekki nokkrum
manni til þess að átta sig á hlutun-
um. Hallgrímur Helgason reiddi
hátt til höggs af því hann taldi að
háls minn lægi vel við höggi en að
þessu sinni geigaði öxin. n
„En málflutningur
Hallgríms í grein-
inni í DV um helgina er
rangur og í meginatriðum
byggður á kviksögum.
Guðni Ágústsson
skrifar
Aðsent
10. október 2014
Helgarblað 10.–13. október 2014
Umræða Stjórnmál 27
E
itt sinn héldum við að
Guðni Ágústsson væri
seinheppinn sveitamað
ur sem vildi Ísland fyrir Ís
lendinga og konuna á bak
við eldavélina. En þar höfðum
við rangt fyrir okkur. Því Guðni
reyndist miklu klárari en við héld
um og varð á endanum „darling of
the nation“, ástkær skemmtikraft
ur og sjarmatröll, konungur eigin
kjördæmis á Kanarí. Og lengi vel
höfðum við þá mynd af mannin
um. „Léttur í lund“ hét enda bókin
hans. En einnig í þessu höfðum við
rangt fyrir okkur, því nú birtist okk
ur glænýr Guðni: Mjólkurmafíós
inn, guðfaðir kerfisins, brosandi
grimmur og miskunnarlaus.
Marlon Brando
„Það er bullandi samkeppni í þess
um bransa.“ Svona talaði hann í
liðinni viku, af ísmeygilega mafískri
kaldhæðni, en fyrirtækið sem hann
frontar er með 99 prósent mark
aðshlutdeild. „Það er bullandi
samkeppni og allir velkomnir í
mjólkuriðnaðinn.” Marlon Brando
hefði ekki getað orðað þetta bet
ur, í sínu frægasta hlutverki. Í ein
feldni minni hélt ég eitt sinn að
nýtt starf Guðna Ágústssonar,
„framkvæmdastjóri afurðastöðva
í mjólkuriðnaði“, ætti við öll fyrir
tæki í þeim bransa. Líka Mjólku,
líka Kú, líka Biobú, og líka Örnu,
öll litlu fyrirtækin sem reyndu sig
og reyna enn í samkeppni við ris
ann MS. En það var auðvitað fjarri
sanni. Auðvitað starfar Guðni ekki
fyrir allar afurðastöðvar, heldur
bara fyrir sínar, fyrir MS og KS og
fyrirtækin sem tengjast þeim. Fyrir
þá sem borga launin hans. Og talar
samkvæmt því.
Spillingarfrí mjólk
Stundum erum við nefnilega
aðeins of auðtrúa og ómeð
vituð. Líkt og þegar okkur
bauðst allt í einu laktósafrí
mjólk og gátum aftur farið
að borða morgunkorn án
ónota í maga. Það var fyr
ir ári síðan sem við upp
götvuðum þessa nýjung á
markaði. Hún var reynd
ar ekki alltaf til í búðinni,
en stundum til frá öðru
fyrirtæki sem við þekkt
um ekki og heitir Arna.
Við tókum bláu fern
una frá þeim ef sú gula
fannst ekki en hugs
uðum annars ekkert
út í það frekar. Nú er
sagan okkur ljós: Það
var litla fyrirtækið,
Arna í Bolungarvík,
sem fékk þessa hug
mynd: Að framleiða
laktósafría mjólk, fyr
ir fólk með mjólkur
óþol, vara sem ekki
hafði áður verið fá
anleg á íslenskum
markaði. Hvað gerði
mjólkurrisinn MS þá?
Hann hóf sjálfur að
framleiða sömu vöru,
og varð jafnvel fyrri
til að koma henni á
markað! Hann gat ekki
unnt þessum litla mjólk
ursprota að
eiga þá sérstöðu á markaði. Líkt
og mafíósi sagði risinn með hásri
röddu og lúmsku glotti: Það eru all
ir velkomnir í mjólkuriðnaðinn! En
hvarf síðan í símann og fyrirskip
aði framleiðslu á sömu vöru, til að
reyna að drepa sprotann í fæðingu.
En það hefur ekki alveg tekist
enn. Enn má kaupa spillingarfría
mjólk frá Bolungarvík í betri búð
um landsins. Hún fer enn betur í
maga en laktósafría mjólkin frá MS.
Enginn Einskisson
Kastjós mánudagsins rúllaði yfir
sams konar sögur sem hafa
endurtekið sig allt frá því
að Thor Jensen skor
aði Framsókn á hólm
fyrir næstum því
hundrað árum. Hið
kommúníska einok
unarkerfi flokksins
hefur staðið af sér
allar slíkar tilraun
ir, þrátt fyrir hrun
SÍS og Íslands, bú
sáhaldabyltingu
og almennar þjóð
félagsbreytingar,
frá kreppu til kana
sjónvarps til iPads.
Landbúnaðarkerf
ið er lífseigasti fast
inn í samfélagi okkar og
rammasta lögmálið í
íslenskri pólitík
er þetta: Á
stóli
landbúnaðarráðherra skal ævin
lega sitja forhertur karldurgur
með framsóknarsál, ótölvuvæddur
bindisberi sem ekkert getur og ekk
ert gerir, en er geymdur inní þeim
skáp sem ráðuneytið er og kallaður
þaðan út þrisvar á ári til að klippa
á borða íklæddur hæfilega kauðs
legum jakkafötum með nafnspjaldi
sem á stendur: Hr. Enginn Einsk
isson. Það er einmitt af þessum
sökum sem maður eins og Ólaf
ur Friðriksson hefur áratugum
saman getað setið á vegum þessa
ráðuneytis í öllum nefndum sem
tengjast mjólkuriðnaðinum, sam
tímis því að sitja í Shópnum, KS
hópnum og MShópnum. Af því
að Enginn er og hefur alltaf verið
landbúnaðarráðherra.
Jafnvel fyrstu hreinu vinstrist
jórn sögunnar tókst ekki að brjóta
þessa reglu, því þá gegndu emb
ættinu tveir ósvíkjandi sveitamenn
úr VG. Laumuframsóknarflokk
urinn sá greiddi enda at
kvæði gegn afnámi
á undanþágu MS
frá samkeppn
islögum síð
ast þegar
sú tillaga
var borin
fram. Jafn
vel ungt,
nútíma
legt og lítt
karlað fólk
eins og
Katrín Jak
obsdóttir,
Svandís
Svavars
dóttir og
Auður Lilja
Erlings
dóttir gengu
þar í
kerfisbjörgin með hinum lurunum.
Framsókn er víða, svo vitnað sé í
Engla alheimsins.
„Við drápum hann ekki“
Það er hins vegar alþjóðlegt lög
mál að sá sem býr við einokunar
aðstöðu mun alltaf misnota hana,
mun alltaf nota sér hana til hins
ýtrasta. Aðstaðan hreinlega breytir
mönnum í mafíósa og lætur þá tala
eins og harðsvíruðustu guðfeður,
jafnvel svona: „Ólafur í Mjólku hef
ur ekki verið drepinn.“ Þessi ótrú
legu orð mælti guðfaðirinn Guðni á
Bylgjunni og var víst að hrósa sér og
sínum fyrir tillitssemina. Semsagt:
Það var gert allt við þann mann
nema að drepa hann. Í sjónvarps
þætti gaspraði Guðni síðan um
gamlar skuldir Mjólku, og vitnaði
í einkasamtöl sín við bankastjóra
um fjárreiður einkafyrirtækis, og
gerði svo lítið úr nýju fyrirtæki hins
ódrepandi Ólafs, sagði hann tala
„út úr Kú.“
Þessi eru viðbrögðin þegar sam
stæðurisinn hefur verið sektaður
og gerður uppvís að markaðsmis
notkun. Engin auðmýkt, enginn
lærdómur, hvað þá kurteisi, bara
haldið áfram að berja á minni
máttar.
Ófyrirgefanlegur amatörismi
Guð hjálpi þeim sem reyna sig í
samkeppni við þetta kerfi, hugs
aði fólkið sem heima sat. Mann
orði hans er rústað um leið og tæki
færi gefst. Hinn grimmi guðfaðir er
sendur fram á vígvöllinn, eftir að
prúðleitur og gustlítill forstjórinn
hafði fyrst verið settur í Kastljós
til að sitja þar stífur og fullæfður
af neyðarteymi almannatengla –
„aldrei lyfta höndunum, aldrei æsa
sig, aldrei segja nafn spyrjandans,
og svona já, láttu sjást aðeins betur
í ermahnappana …“
Sú litlausa og lygum
prýdda framkoma
leiddi strax hugann
að amatörisman
um sem forstjór
inn ríkir yfir,
hinu almenna
getuleysi
þessa
geril
sneydda
fyrir
tækis
sem
fengið hefur 100 ár til að æfa sig í
framleiðslu mjólkurafurða með
þeim ágæta árangri að hérlend
is er nú hvorki hægt að fá keypt
almennilegan ost né almenni
legt jógúrt. Af þeim óteljandi osta
tegundum sem MS framleiðir er
aðeins einn sem kemst hænufet í
átt að einhvers konar bragði, í átt
að Gruyere eða Emmentaler, og
það er Tindur. Allir hinir bragð
ast nákvæmlega eins. Og langi
menn í gamla góða skyrið sem þeir
muna úr bernsku er besta leiðin
til þess núorðið að kaupa „grískt
jógúrt“! Fyrirtæki Framsókn
ar, þessa mikla Íslands og lands
byggðarvinar, hefur jafnvel glutr
að niður sjálfri skyruppskriftinni,
stolti íslenskrar matarhefðar, eins
og Gunnar Smári Egilsson benti á í
mögnuðum matarpistli fyrir margt
löngu. „Þegar við lítum yfir hvern
ig Mjólkursamsalan hefur far
ið með íslenska mjólkurhefð get
um við þakkað fyrir að fyrirtækinu
væri ekki treyst fyrir útgáfu forn
ritanna. Þau væru þá öll komin á
teiknimyndaform,“ skrifaði Gunn
ar Smári í Fréttatímann, ásamt Þóri
Bergssyni, 2. september 2011.
Sem betur fer er nú hægt að fá
lífrænt skyr, sem maður heldur að
sé eins og íslenskt skyr á að vera,
frá fyrirtækinu Biobú, sem guð
faðirinn uppnefndi einmitt í einum
þættinum: „lítið sætt mjólkurbú í
Reykjavík“. Yfirlætið lak af hverj
um samhljóða. Það rímar við orðin
sem hann, þá verandi einn af þeim
tuttugu tilgangslausu landbúnað
arráðherrum sem Íslandssagan
geymir, lét falla við Ólaf í Mjólku
er hann hóf sinn rekstur: „Þú ert
með fallegt lítið blóm í höndun
um. Farðu vel með það.“ (Og láttu
það ekki vaxa um of, því þá drepum
við það. Blómið sko, en þú sleppur
kannski sjálfur.)
„Umferðarlagabrot“
Nýlegan úrskurð Samkeppnis
stofnunar kallaði guðfaðirinn „um
ferðarlagabrot“ í öllum þeim þátt
um sem hann var sendur í. Hann
hefði vart getað valið ósvífnari
samlíkingu. Þegar risinn stígur á
„fallega litla blómið“, sem er eina
„ógn“ hans á öllum akrinum, öll
um markaðnum, skref sem verður
til þess að blómið deyr, þá er það
eins langt frá því að vera umferð
arlagabrot og hugsast getur. Mark
aðslegt morð væri nærri lagi. Og
síðan fylgdi guðföðurlegt sjálfs
hólið (ó, vér góðmennin!) er Guðni
sagði um Ólaf og Mjólku: „Svo
kemur Kaupfélag Skagfirðinga og
bjargar honum. Og hann slepp
ur við sitt eigið gjaldþrot!“ Fyrst
knésetjum við hann, svo björg
um við honum, og þá á hann
að koma skríðandi og kyssa
okkur á tærnar.
Starfsaðferðir mafí
unnar eru alls staðar eins,
nema hvað hérlendis
eru menn kannski ekki
drepnir. n
Guðfaðirinn Guðni
Hallgrímur Helgason
rithöfundur
Kjallari „Það er bullandi
samkeppni og
allir velkomnir í
mjólkuriðnaðinn.
„Auðvitað starfar Guðni ekki fyrir allar afurðastöðvar, held-
ur bara fyrir sínar, fyrir MS og KS og
fyrirtækin sem tengjast þeim.
Deildi á MS Hallgrímur ritaði
grein um Mjólkursamsöluna í
helgarblað DV. MynD SiGTryGGur Ari
Mest lesið
á DV.is
1 „Ég hef svo mikinn netsjarma“ Það fór ekki
mikið fyrir kærasta Sveinbjargar Birnu
Sveinbjörnsdóttur, borgarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins, í kosningabaráttunni í
vor, en í viðtali í helgarblaði DV segir hún
þau vera mjög ástfangin. Þau kynntust á
vefsíðunni Einkamál.is
22.525 hafa lesið
2 „Ég kvaddi hana ekki“ Kvikmyndagerðarmaðurinn
Baldvin Zophoníasson segir frá erfiðum
móðurmissi í helgarblaði DV.
19.847 hafa lesið
3 Amanda Bynes lögð inn á geðdeild Leikkonan Am-
anda Bynes var lögð inn á geðdeild eftir
að hafa sakað föður sinn um kynferðis-
lega misnotkun á Twitter.
18.112 hafa lesið
4 „Aldrei sást neitt svo merkilegt til Geirs“ Agli
Helgasyni þykir ekki mjög mikið til Geirs
H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra,
koma sem stjórnmálamanns. Hann taldi
Geir ekki hafa efni á því að tala niður til
kollega sinna.
16.544 hafa lesið
5 Borðsiðir Angelu Merkel til skammar Helmut Kohl,
fyrrverandi kanslari Þýskalands, sagði
árið 2001 að borðsiðir Angelu Merkel
væru til skammar. Sagði hann hana
„konu sem gæti ekki borðað almenni-
lega með hnífi og gaffli“. Þetta kemur
fram í bók sem skuggaskrifari hans er
að gefa út.
15.584 hafa lesið
6 Google hefur
eytt um 80
tenglum sem
tengjast
Íslandi Google
hefur fengið 282 beiðnir frá fólki tengdu
Íslandi og 119 frá Íslendingum, um að
fjarlægja tengla. Fyrirtækið hefur orðið
við 33 prósentum beiðnanna en rúmlega
80 tenglum hefur verið eytt.
13.304 hafa lesið
Þetta var ást við
fyrsta orð
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir fann ástina á netinu. – DV
Ég er mjög
ánægð
Steinunn Ása hefur hafið störf á Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur. – DV
Það er auðvitað
ótækt
Sigmundur Davíð er ósáttur við að að samtökin Íslamskt ríki noti íslenskt lén. – RÚV