Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Síða 23
Umræða Stjórnmál 23Vikublað 14.–16. október 2014
Alltaf nokkrir
sem telja sig
jafnari en aðra
Á mánudaginn skaut þingmað-
urinn Brynjar Níelsson, á Face-
book, fast á þá sem telja dóminn
yfir mótmælendum í Gálga-
hrauni vera ósanngjarnan. „Samt
eru alltaf nokkrir sem telja sig
jafnari en aðrir eins og í dýrabæ
Orwells. Eru þeir gjarnan nefnd-
ir aðgerðarsinnar og hegðun-
in borgaraleg óhlýðni,“ skrifaði
hann meðal annars. Brynjar var
í kjölfarið spurður hvort Austur-
Þjóðverjar hefðu betur sleppt
sínum mótmælum svaraði hann:
„Í hverju ríki gilda einhver lög.
Skiptir þá engu máli hvort um er
að ræða Austur-Þýskaland eða Ís-
land, alræðisríki eða lýðræðisríki.
Allir eiga að vera jafnir fyrir lög-
unum, hvað sem okkur kannast
að finnast um einstök lög.“
Sjálfstæðis-
menn drekka
hjá Gísla
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykja-
vík deildi því á samskipta-
miðlum sínum á mánudag að
borgarfulltrúar flokksins hefðu
heimsótt Kaffihús Vesturbæjar
eftir borgar stjórnarfund í síðustu
viku. Flokksbróðir þeirra Gísli
Marteinn Baldursson er einn
þeirra sem standa að kaffihúsinu.
Gísli Marteinn var borgarfull-
trúi flokksins um árabil og náinn
samstarfsmaður margra borgar-
fulltrúa. „Frábærir drykkir. Bíð-
um spennt eftir matseðlinum,“
var svar Twitter-aðgangs flokks-
ins þegar kaffihúsið spurði hvaða
einkunn sjálfstæðismenn gæfu
veitingahúsinu.
Lokun hefur
engin áhrif
Oddviti Pírata í borgarstjórn,
Halldór Auðar Svansson, benti á
Facebook-síðu sinni á mánudag
að full ástæða væri til að árétta
að ákvörðun ISNIC um að loka
á lén Íslamska ríkisins, khilafah.
is, muni engin áhrif hafa. „Síðan
er ennþá til og lítið mál að tengja
hana við annað lén. Hún er hýst
í Þýskalandi og ábyrgðaraðili
hennar er í Nýja-Sjálandi,“ skrif-
aði Halldór. Hann benti enn frem-
ur á að full ástæða sé til að fara
varlega í lokun á lénum. „Ég vona
því að þessi varnaðarorð mín og
annarra sem „dirfast“ að setja
spurningamerki við viðbrögðin
við þessari uppákomu verði ekki
afskrifuð sem óþarfa tuð út í eitt-
hvað sem á að vera alveg sjálfsagt
mál,“ skrifaði Halldór.
Varaþingmaður Sveinbjörg Birna var í þriðja sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykja-
víkurkjördæmi suður í síðustu alþingiskosningum. Mynd Sigtryggur Ari
Sveinbjörg Birna tekur sæti á alþingi
Varaþingmaður í fjarveru Vigdísar Hauksdóttur
S
veinbjörg Birna Sveinbjörns-
dóttir, oddviti Framsóknar og
flugvallarvina í borgarstjórn,
tekur í dag sæti á Alþingi í
fyrsta sinn. Hún kemur inn
sem varaþingmaður fyrir Vigdísi
Hauksdóttur. Í síðustu alþingiskosn-
ingum var Sveinbjörg Birna í þriðja
sæti á lista Framsóknarflokksins í
Reykjavíkurkjördæmi suður og verð-
ur dagurinn í dag hennar fyrsti sem
þingmaður. Í síðasta helgarblaði DV
var viðtal við Sveinbjörgu þar sem
meðal annars kom fram að hún hefði
alltaf haft miklu meiri áhuga á lands-
málunum og stóru heildarmyndinni.
„Mér hefur fundist sveitarfélögin
vera á allt öðru plani, sem ég hafði
aldrei sett mig nákvæmlega inn í. Eft-
ir að ég tók við þessu starfi þá hef ég
samt fundið hvað það er krefjandi að
vera í borgarstjórn. Það er líka miklu
meiri nánd við íbúana og hraði í
breytingum,“ sagði hún.
Frá 16 ára aldri var Sveinbjörg
Birna skráð í Sjálfstæðisflokkinn en
skráði sig formlega í Framsóknar-
flokkinn árið 2012. Eftir að erfiðlega
hafði gengið að koma saman lista
Framsóknar og flugvallarvina í síð-
ustu sveitarstjórnarkosningum tók
hún að sér að leiða listann og vakti
fljótlega mikla athygli og þá sérstak-
lega fyrir ummæli um að á meðan
Þjóðkirkja væri á Íslandi ætti ekki
að úthluta lóðum undir hús eins og
moskur eða kirkjur fyrir grísku rétt-
trúnaðarkirkjuna. Í kjölfarið sögðu
nokkrir framsóknarmenn sig úr
flokknum, fylgið jókst og fékk flokk-
urinn tvo borgarfulltrúa kjörna. n
dagny@dv.is
Stríðið gegn undan-
skotum í skattaskjólum
E
nn er allt á huldu um það hvort
embætti skattrannsóknarstjóra
fær heimild eða fé til þess að
kaupa upplýsingar um eignir
skattgreiðenda í skattaskjólum
erlendis. Reynsla þjóða, sem lengst
hafa gengið í þessum efnum er góð,
því margfalt meira kemur inn í ríkis-
sjóð en sem nemur útgjöldum vegna
misjafnlega fenginna upplýsinga.
Hertar aðgerðir
Síðustu tíu árin hafa skattayfirvöld
margra landa leitast við að herða
leitina að þeim sem skjóta undan fé
í skattaskjólum erlendis og komast
þannig hjá því að greiða af því lög-
bundna skatta. Ein leiðin sem farin
hefur verið er að gefa þeim upp sak-
ir sem koma með fé sitt heim og telja
það fram til skatts. Ítölsk stjórnvöld
hafa til dæmis beitt þessari aðferð
með góðum árangri.
Fimm lönd taka öðrum fram í
þeirri viðleitni að komast yfir gögn
um eignir manna í skattaskjólum.
Þetta eru Kanada, Þýskaland, Frakk-
land, Bretland og Bandaríkin.
Kanadísk skattayfirvöld fóru árið
2008 í tvígang fyrir dóm með mál
verðbréfamiðlunar í eigu banka.
Reynt var að knýja fyrirtækið til þess
að láta af hendi upplýsingar um við-
skiptavini sem áttu inneignir á reikn-
ingum í Liechtenstein. Beiðni um
dómsúrskurð var ítrekuð af hálfu
skattayfirvalda snemma árs 2010.
Árið 2010 fóru kanadísk skattayfir-
völd fram á aðgang að gögnum sem
frönsk skattayfirvöld höfðu í fórum
sínum um bankainnstæður í HSBC-
bankanum í Sviss.
Umrædd gögn höfðu frönsk
skattayfirvöld komist yfir árið 2009
hjá starfsmanni HSBC í Genf og vís-
uðu þau á innstæður sem námu alls
um 840 milljörðum króna hjá um 79
þúsund einstaklingum. Þar af voru
um 8.200 frá Frakklandi. Þessi af-
hjúpun hratt af stað bylgju í Frakk-
landi þar sem fjöldi skattborgara gaf
sig fram við skattayfirvöld.
Þýska fyrirmyndin
Mjög hefur verið rætt um skatta-
gögnin sem tekin voru ófrjálsri
hendi af starfsmanni LTG-bank-
ans í Liechtenstein og komið var í
hendur þýskra skattayfirvalda gegn
þóknun. Þegar gögnin voru skoðuð
mátti finna í þeim upplýsingar um
1.400 þýska skattgreiðendur sem
freistast höfðu til þess að geyma fé
sitt í skattaskjóli. Talið er að þýsk yfir-
völd hafi greitt allt að einum milljarði
króna fyrir upplýsingarnar og séð til
þess einnig að uppljóstrarinn fengi
skjól undir nýju nafni.
Í marsmánuði árið 2010 keyptu yf-
irvöld í Norður Rín - Vestfalíu gögn
um 1.500 Þjóðverja í skattaskjóli í
Sviss. Rannsókn sem hófst í kjölfar-
ið beindist einnig að starfsmönn-
um Credit Suisse-bankans. Fregn-
ir voru einnig um það síðar sama ár
að þýsk yfirvöld hefðu keypt harðan
disk með upplýsingum um 20 þús-
und bankareikninga í Sviss.
Árið 2006 fóru bresk skattayfir-
völd fram á það við fimm stóra banka
að þeir afhentu gögn um innistæður
breskra þegna í skattaskjólum. Bank-
arnir þráuðust við en svo fór að dóm-
stólar dæmdu skattayfirvöldum í hag.
Gögn um 400 þúsund breska skatt-
borgara voru afhent og boðin var
sakaruppgjöf gegn því að menn gæfu
sig fram og teldu eignir sínar fram til
skatts. Að minnsta kosti tvisvar eftir
þetta hafa bresk skattayfirvöld leikið
sama leikinn, annars vegar gangvart
skattundanskotum í Liechtenstein.
Þess má geta að bresk skattayfirvöld
(HMCR) hækkuðu árið 2009 sekt-
ir við skattaundanskotum upp í tvö-
falda þá upphæð sem annars hefði
þurft að borga í skatt af því fé sem
skotið hafði verið undan.
dregur úr undanskotum
Bandarísk yfirvöld hafa einnig skor-
ið upp herör gegn skattaundanskot-
um en yfirleitt farið dómstólaleið
með sín mál. Mikið er í húfi en ætlað
er að árlega sé 10 til 15 þúsund millj-
örðum króna skotið undan skatti í
skattaskjólum. Bandarísk skattayf-
irvöld fengu aðgang að gögnunum
sem þýsk skattayfirvöld komust yfir
frá Liechtenstein á sínum tíma og á
grundvelli þeirra voru höfðuð yfir 100
mál vegna skattalagabrota. Á undan-
förnum árum hefur bandarískum yf-
irvöldum orðið talsvert ágengt í stríði
sínu við skattaskjólin og undanskot.
Í heildina tekið hafa hertar aðgerðir
gegn undanskotum í skattaskjólum
leitt til þess að fjöldi skattgreiðenda
hefur gefið sig fram og greitt skatta af
leynilegum eignum sínum gegn því
að fá sakaruppgjöf. n
„ Í heildina tekið
hafa hertar að-
gerðir gegn undanskotum í
skattaskjólum leitt til þess
að fjöldi skattgreiðenda
hefur gefið sig fram…
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
n Gott fordæmi stjórþjóða n Útgjöld smávægileg en tekjur miklar
Biðstaða? Ekki er ljóst
hvort Bryndís Kristjáns-
dóttir skattrannsóknar-
stjóri og hennar fólk
fái heimild eða fé til að
kaupa gögn um eignir
manna í skattaskjólum.
Mynd Sigtryggur Ari