Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Síða 24
Vikublað 14.–16. október 201424 Neytendur
Bestu kaupin í Galaxy s4 MiniVerðmerkingar í ólagi í laugumVerðmerkingum í Árbæjarlaug og
Vesturbæjarlaug var enn ábóta
vant í eftirfylgniskoðun Neyt
endastofu í sundlaugum á höfuð
borgarsvæðinu. Fyrri athugunin
var gerð í september síðastliðnum
til að kanna hvort verðmerkingar
væru í samræmi við lög. Fimm
sundlaugar sem stofnunin þurfti
að áminna eftir fyrri könnun voru
svo heimsóttar aftur til að athuga
hvort bætt hafi verið úr því sem að
finnslur stofnunarinnar vörðuðu.
Farið var í Laugardalslaug, Grafar
vogslaug, Lágafellslaug, Árbæjar
laug og Vesturbæjarlaug. Þrjár
sundlaugar höfðu komið verð
merkingum sínum í lag en verð
merkingum var enn ábótavant í
tveimur síðastnefndu laugunum.
Samkvæmt upplýsingum frá Neyt
endastofu verður ákvörðun tekin í
framhaldinu hvort laugarnar tvær
verði beittar sektum fyrir að virða
að vettugi fyrirmæli og ábendingar
Neytendastofu um úrbætur. Eru
neytendur hvattir til að vera ávallt
vel á verði og koma ábendum á
framfæri til Neytendastofu.
Önnur innköllun
á Suzuki Swift
Neytendastofu hefur borist til
kynning frá Suzuki um innköll
un á 163 Suzuki Swiftbifreiðum
framleiddum árið 2013 og 2014.
Ástæða innköllunarinnar er sú að
hlífðarhosa á framdempurum er
ekki úr réttum efnivið og gæti rifn
að við daglega notkun ökutækisins.
Samkvæmt upplýsingum frá Neyt
endastofu gætu leifar úr henni, í
versta tilfelli, rifið þéttingu fram
dempara og þeir því farið að leka
og akstur ökutækis orðið óþægileg
ur. Neytendastofa hvetur bifreiða
eigendur til að verða við innköll
uninni og leita til Suzuki bíla hf.
varðandi frekari upplýsingar. Þetta
er í annað skipti á skömmum tíma
sem Suzuki bílar hf. neyðast til
að innkalla Swiftbíla. Í septem
ber síðastliðnum var tilkynnt um
innköllun á 85 Swiftbílum, árgerð
2013. Ástæðan var að hemlarör
geta farið utan í vélarfestingu þar
sem bilið þar á milli var of lítið og
sökum titrings frá vél. Í versta til
felli getur komið leki að hemlaröri.
Húðfita skemmir fatnað Hér má sjá hvernig kápan slitnaði í innanverðu hálsmálinu við
það að komast í óumflýjanlega snertingu við húðfitu. Vandamálið er að sögn 66°Norður að
hún var ekki þvegin nógu oft. Mynd Aðsend
Útivistarfatnaður viðkvæmur fyrir húðfitu
66°Norður brýnir fyrir viðskiptavinum að þvo fatnaðinn reglulega
M
ikilvægt er að þvo sérstakan
þriggja laga útivistarfatnað
sem framleiddur er með
al annars úr svokölluðu
öndunarefni oft, því hann er við
kvæmur fyrir húðfitu sem getur
valdið því að efnið tærist og glatar
eiginleikum sínum. Meðfylgjandi
mynd er af þriggja laga regnkáp
unni Heiðmörk frá 66°Norður sem
kostar 29.800 krónur. Eigandi henn
ar varð fyrir því að innanvert háls
mál hennar eyddist og slitnaði með
þeim afleiðingum að kápan er ekki
lengur vatnsheld. Tæringin er í
hálsmálinu þar sem kápan kemst í
snertingu við húð. DV leitaði skýr
inga hjá fyrirtækinu og segir Aldís
Arnardóttir, rekstrar og sölustjóri
verslanasviðs hjá 66°Norður, að
ástæðan fyrir því að efnið fari svona
sé að flíkin er ekki þvegin nógu oft.
„Við erum með miða inni í flíkun
um sem á stendur „Wash Me Often“
auk þess sem við mælum alltaf með
því þegar við seljum flíkina í versl
unum að fólk þrífi hana oft. Þetta
er eitthvað sem á við um allt tækni
legt efni, allar öndunarflíkur. Í raun
inni er þetta ekki einsdæmi. Það er
bara þannig með svona regnkápu
að þegar þú ert fullorðinn þá ertu
ekki að leika þér í sandkassanum
og því ekki alltaf að setja flíkina í
vélina, eins og hjá börnum, þannig
að með tímanum getur filman far
ið að skemmast. En það er bara alls
ekki algengt að það gerist. Það er
ekki nema fólk þrífi hana ekki reglu
lega. Þetta á ekkert sérstaklega við
um þessa flík, heldur allar flíkur
sem þessar hjá öllum fyrirtækjum.
Í gegnum tíðina höfum við fundið
fyrir því að viðskiptavinir almennt
vita kannski ekki nógu mikið um
flíkur sem þessar og að það þurfi að
þrífa þær oftar, halda kannski frekar
að það sé öfugt,“ segir Aldís. Hún
segir að fyrirtækið reyni þar að auki
að koma til móts við viðskiptavin
inn ef svona nokkuð gerist.
„Það er auðvitað leiðinlegt þegar
þetta gerist en það er sem betur fer í
undantekningartilvikum. “
Hún segir að ekki sé um galla né
vandamál að ræða.
„Frá okkar hlið séð er þetta ekki
vandamál, þetta er bara eitthvað
sem er til staðar og hefur alltaf ver
ið hjá fyrirtækjum með þriggja laga
flíkur. Þetta er bara eitthvað sem
gerist þegar flíkin er ekki með
höndluð sem skyldi. Eins og áður
segir þá er þetta eitthvað sem við
leggjum áherslu á að upplýsa okk
ar viðskiptavini um og þykir mjög
leiðinlegt ef það hefur misfarist í
einhverjum tilfellum.“ n
mikael@dv.is
n Þetta eru bestu snjallsímarnir undir 60 þúsundum í gæðaprófi ICRT n Sparaðu og kauptu eldri týpur n Fá ekki síðri einkunn en nýju og dýru símarnir
S
amsung Galaxy S4 Mini eru
bestu kaupin ef þú ert að
leita þér að ódýrari snjall
síma og færð það ekki af
þér að spreða peningum
í nýjustu týpurnar sem kosta um
og yfir 100 þúsund krónum. DV
rýndi í niðurstöður gæðakönnunar
International Consumer Reasearch
& Testing (ICRT) sem greint er
ítarlega frá í nýjasta tölublaði Neyt
endablaðsins, sem Neytendasam
tökin gefa út hér á landi. Út frá
bestu niðurstöðunum voru ódýr
ustu símarnir teknir út og reynt að
leggja mat á það hvar þú færð mest
fyrir peninginn. Snjallsímar frá
Samsung voru áberandi í efri hluta
gæðaprófsins en oft voru nýju og
dýrari símarnir ekki að skora mik
ið hærra en eldri og ódýrari símar.
Ítarlegt gæðapróf
Í Neytendablaðinu, sem kom út í
lok síðasta mánaðar, er að finna
niðurstöður um yfir 76 síma sem
ICRT gæðaprófaði og fáanlegir
voru hér á landi, með verðupplýs
ingum frá því í lok júlí síðastliðinn.
Úttekt DV nær aðeins yfir þá síma
sem kosta undir 60 þúsundum
króna og sem fengu 4,2 eða hærra
í einkunn af 5,5 mögulegum í próf
inu. Þess ber að geta að enginn
sími fékk hærra en 4,6 í einkunn í
prófi ICRT, og voru það þrír Sam
sungsímar sem röðuðu sér í efstu
sætin með hæstu einkunn eins og
sjá má hér á síðunni. DV uppfærði
einnig uppgefin verð fyrir hvern
síma þar sem breytingar höfðu
einstaka sinnum orðið þar á frá því
að könnunin var gerð. Gæðapróf
ICRT virðist ansi umfangsmikið og
ítarlegt en einkunnagjöf byggist á
níu þáttum sem hver um sig hefur
mismunandi vægi eins og lesa má í
auk aefni hér á síðunni.
Góð kaup í eldri símum
Það er ágætis sparnaðarráð fyrir
fólk sem vill eignast fína snjallsíma
fyrir minna fé að kaupa ekki nýju
stu útgáfuna af þeim tiltekna síma.
Þegar nýjar týpur koma á mark
að hríðfalla eldri týpurnar vana
lega í verði og hægt er að gera góð
kaup. Eins og sjá má þá fær Sam
sung Galaxy Note II síminn hæstu
einkunn í prófi ICRT en hann kostar
79.900 krónur á tilboði í Samsung
setrinu þessa dagana, þar sem fullt
verð er 99.900 krónur. Þessi sími
fékk 4,6 í einkunn í prófi ICRT en
hann kom á markað síðla árs 2012.
Bestu kaupin í s4 Mini
Til samanburðar þá kostar Sam
sung Galaxy S4 Mini aðeins 54.900
krónur á emobi.is en hann fékk 4,3 í
einkunn í prófi ICRT. Síminn kom á
markað í júlí 2013 og myndi því enn
flokkast sem tiltölulega ný týpa,
gæddur öllum helstu nýjungum,
öflugum örgjörva, fínni rafhlöðu
og góðri myndavél. Síminn ræður
auðveldlega við að keyra öll helstu
smáforrit sem líklegt er að þú not
ir, á borð við Facebook, Instagram,
Twitter, Snapchat sem og leiki. Þó
ber að hafa í huga að skjárinn á
S4 Mini er, eins og nafnið gefur til
kynna, minni en á hefðbundnum
Galaxysímum en til samanburð
ar þá er síminn sjálfur álíka stór og
iPhone 5. Skjáupplausnin í S4 Mini
er ekki sú besta en skilar þó sínu og
þá er staðlaða 8GBminnið helst
til of lítið en hafa ber í huga að það
má stækka það með upp í allt að 64
GB með Micro SDminniskorti. Þó
að tveir símar skori örlítið hærra og
einn sé örlítið ódýrari af þeim sem
hér eru nefndir þá er það niður
staðan að út frá verði, gæðum,
einkunn í prófi ICRT og því hversu
nýlegur hann er þá þú fáir mest fyr
ir peninginn með S4 Mini í þessum
verðflokki. Síðan er auðvitað mis
munandi hvað hentar hverjum og
einum svo þú verður að finna út
hvað hentar þér.
DV birtir hér aðeins brot úr prófi
ICRT sem birtist sem fyrr segir í
Neytendablaðinu og veittu Neyt
endasamtökin DV leyfi til að vitna
í prófið. Hægt er að sjá töflu með
frammistöðu 76 snjallsíma í Neyt
endablaðinu, sem félagsmenn
Neytendasamtakanna geta einnig
nálgast á vef þeirra www.ns.is. n
Úr mörgu að velja Það er nánast hver einasti maður með
snjallsíma í dag en þeir nýjustu og dýrustu geta kostað vel á
annað hundrað þúsund krónur. Það má spara tugþúsundir króna
með að kaupa eldri týpur og nú hafa rannsóknir sýnt að þær eru
síður en svo eftirbátar nýju og dýru símanna. Af ódýrari símun-
um í boði stendur Samsung Galaxy S4 Mini upp úr. Mynd sHutterstock
sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Bestu símarnir undir 60 þúsundum króna
sími Verð einkunn í gæðaprófi kom á markað
Samsung Galaxy S4 mini 54.900 kr. á emobi.is 4,3 Júlí 2013
Samsung Galaxy SIII 4G 54.900 kr. í Símanum 4,5 September 2012
Samsung Galaxy Grand Duos 49.900 kr. á emobi.is 4,2 Janúar 2013
Samsung Galaxy S3 59.900 kr. á emobi.is 4,5 Maí 2012
Nokia Lumia 925 59.900 kr. á emobi.is 4,2 Júní 2013
Apple iPhone 4S 8GB 59.990 kr. í Símanum 4,3 Október 2011
Upplýsingar úr Neytendablaðinu birtar með góðfúslegu leyfi Neytendasamtakanna
Samsung trónir
á toppnum
Þessir símar fengu hæstu
einkunn í gæðaprófi ICRT
1. samsung Galaxy note II
Verð: 79.900 ( Tilboð: Samsung Setrið)
Heildareinkunn í gæðaprófi: 4,6
2. samsung Galaxy s4
Verð: 69.900
Heildareinkunn í gæðaprófi: 4,6
3. samsung Galaxy s5
Verð: 99.900
Heildareinkunn í gæðaprófi: 4,6