Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2014, Qupperneq 38
Vikublað 14.–16. október 201438 Fólk
„Ekki hægt
að hálf-elska“
Tónlistafólkið og systkinin Emmsjé Gauti og Karin Sveins eru miklir vinir og vilja vinna saman
T
ónlistafólkið Gauti Þeyr Más-
son og Karin Sveinsdóttir
eru ungt fólk á framabraut.
Gauti, sem betur er þekktur
sem Emmsjé Gauti, hefur
verið að fikra sig hægt en örugglega
upp metorðastiga rapplistarinn-
ar á meðan Karin hefur vakið mikla
athygli sem annar helmingur raf-
poppdúósins Young Karin.
Færri vita að Karin og Gauti eru
afar náin systkini úr stórri fjölskyldu
í Breiðholti. Systkinin eiga ekki sama
blóðföður en Karin útskýrir að það
hafi aldrei þvælst fyrir þeim og tek-
ur Gauti undir það. „Ég er alinn upp
með þessari manneskju og hún er
systir mín þrátt fyrir að hafa ekki
sama föðurnafn. Það gerir mig mjög
pirraðan þegar fólk spyr mig hvort
við séum ekki bara hálfsyst kini,
svona eins og ég hálf-elski hana bara
þá.“
Hættulegur býfluguleikur
Það er áhugavert að setjast niður með
systkinunum. Allt fas þeirra er aug-
ljóslega mótað af áralangri sambúð
og þau virðast hafa gengið í gegn-
um súrt og sætt í sínum samskiptum.
Eins og kannski gengur á stóru heim-
ili fullu af börnum. Þau eru þó perlu-
vinir í dag. Spurð um eftirminni-
leg atvik úr uppvexti sínum stendur
ekki á svörum Karinar megin. „Svona
eins og býfluguleikurinn,“ segir hún
með háðstóni og horfir á bróður sinn
sem verður afar flóttalegur. „Þá hljóp
Gauti á eftir okkur öllum með eldhús-
hníf og þóttist vera býfluga og ætla að
stinga okkur með broddinum. Hann
var mjög uppátækjasamur,“ segir
Karin og hlær hátt. „En ég leit mik-
ið upp til hans.“ „Þú átt ekki að segja
frá þessu Karin, þetta er svo hræði-
legt,“ bætir Gauti við og kveðst oft
hafa verið „bully“ við yngri systkini
sín. „Svona eins og stór systkini vilja
oft vera. En það var samt alltaf mikill
kærleikur líka.“
Lifandi „sjóv“ heima alla daga
Systkinin hafa verið söngvin alla
tíð en tóku sinn tíma í að finna sinn
farveg í tónlistinni. „Ég hafði alltaf
áhuga á tónlist. Það eru til myndir af
mér fimm ára að tromma á Mackin-
tosh-dollu og jafnvel yngri að reyna
að spila á gítar. Pabbi átti stúdíó og
spilaði mikið á píanó. Ég lærði undir-
stöðuna í svo mörgu fyrir hans til-
stuðlan en svo komu unglingsárin og
uppreisnin og ég hætti að æfa mig. Ég
sé mikið eftir því, eins og pabbi sagði
við mig að myndi gerast. Það væri frá-
bært að hafa þetta í dag í því sem ég
geri,“ segir Gauti. Karin ku hafa sung-
ið alla tíð og rifjar Gauti upp að hún
hafi verið farin að þenja raddböndin
með söng áður en hún lærði að tala.
„Ég var alltaf syngjandi og ég var al-
gjörlega hræðileg í því. En svo kom
þetta smátt og smátt með æfingunni,“
útskýrir Karin kímin og Gauti gríp-
ur orð hennar á lofti. „Það var ein af
ástæðunum fyrir því að ég flutti að
heiman. Við erum að tala um svona
tíu klukkutíma á dag þar sem hún
blastaði tónlist og söng með, mjög
hátt. Þetta gat orðið ansi pirrandi,“
segir Gauti og tekur fram að honum
finnist afrakstur æfinganna þó glæsi-
legur og söngrödd systur sinnar fög-
ur. „Hún er með geðveika rödd.“
Vildi sjá hana dafna á sínum
forsendum
Spurð hvort það hafi aldrei staðið til
að vinna saman að tónlist segir Karin
það nýkomið í umræðuna. Hún hafi
einnig ekki viljað vinna með Gauta
fyrr en hennar eigin ferill væri kom-
inn á skrið og tekur Gauti í sama
streng. Þau útilkoka þó ekki að sam-
starfs sé að vænta fljótlega. „Ég vildi
heldur ekki, þar sem ég hef náð að
skapa mér nafn, þá vildi ég ekki að
hún yrði sett undir þann hatt að vera
bara systir mín og dæmd út frá því. Ég
vildi að hennar tónlistaferill blómstr-
aði og hún kæmist áfram á sínu áður
en við gerðum eitthvað saman,“ segir
Gauti. „Mér hefur alltaf þótt vænt
um þetta viðhorf Gauta og fundist
það frekar fallega hugsað bara,“ bæt-
ir Karin við en segir feril sinn þó ekki
lausan við að fólk tengi hana bróð-
ur hennar. Það sé þó undantekning
frekar en annað.
Vakti athygli dómarans
Hljómsveit Karinar, Young Karin, gaf
út EP-plötu í sumar en er hún þó nú
þegar komin með mikið af nýju efni í
sarpinn fyrir þá næstu. Hljómsveitin
er, þrátt fyrir ungan lífaldur, komin
með stóran aðdáendahóp utan land-
steina sem innan. Karin keppti í
söngvakeppni framhaldsskólanna
fyrir hönd MH í hitteðfyrra. Hún lenti
í öðru sæti og vakti strax athygli eins
dómarans, Loga Pedros Stefánssonar
tónlistamans. „Ég fékk svo Face-
book-skilaboð frá Loga svona viku
seinna og ég fékk sjokk,“ útskýrir
Karin. „Logi spurði hvort ég hefði
áhuga á að gera lag með honum. Ég
fríkaði út, ég var svo skotin í honum
á þessum tíma, án þess að þekkja
hann neitt persónulega,“ segir Karin
og hlær. Þau tóku upp nokkur lög í
kjölfarið og fundu að það var grund-
völlur fyrir samstarfi. Úr varð sveitin
Highlands, sem eftir hótun um mál-
sókn frá annarri Higlands-sveit fékk
nafnið Young Karin. Logi ku hafa hr-
ingt reglulega í Gauta, sem er náinn
vinur hans, til að vita hvort honum
þætti óþægilegt eða óviðeigandi að
hann ynni tónlist með Karin. „Mér
fannst það auðvitað frábært og gott
tækifæri fyrir hana, enda Logi á með-
al okkar allra færustu listamanna. Ég
setti mig alls ekki á móti þeirra sam-
starfi. Svo á ég hana nú ekki og ræð
þannig litlu,“ segir Gauti kíminn.
Stoltur af litlu systur
Fyrstu tónleika Young Karin hlýddi
Gauti á með Unnsteini Manuel, bróð-
ur Loga. „Á einum tímapunkti litum
við á hvor annan og vorum þá báðir
með tár. Geggjað stoltir af litlu systk-
inum okkar,“ segir Gauti og þau systk-
inin hlægja hátt. Karin kveðst einnig
afar stolt af Gauta og segir hann hafa
þroskast mikið sem listamann. „Al-
veg frá því hann keppti í Idolinu,“
segir hún að lokum, stríðin. n
Ungt fólk
heiðrar
Gainsbourg
Í kvöld verða haldnir tónleikar á
Kaffi Rósenberg til heiðurs Serge
Gainsbourg. Leikin verða þekkt
lög Gainsburg í djassútsetning-
um. Það eru systkinin Halldór og
Unnur Sara Eldjárn sem koma
að tónleikahaldinu og munu
þau annast trommuleik og söng
en auk systkinanna koma fram
þau Daníel Helgason á gítar, Al-
exandra Kjeld á kontrabassa og
Hildur Holgersdóttir á píanó.
Athygli vekur að hljómsveitin er
aðeins skipuð ungu tónlistarfólki
og ljóst er að áhrifa Gainsbourg
gætir enn víða. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 21 og kostar 1.500
krónur inn en námsmönnum er
þó boðinn afsláttur.
María Lilja Þrastardóttir
maria@dv.is
Söngkonum
hótað nauðgun
„Auðvitað ertu femínisti þú
ómannlega drasl,“ er á meðal
ummæla sem systurnar í Hljóm-
sveitt hafa fengið á nýjasta lagið
sitt Næs í rassinn.
Myndbandið frumsýndu
þær í síðustu viku og hafa þær
vakið sterk viðbrögð netverja.
Sveitin, sem fer ótroðnar slóðir í
ádeilu sinni á samfélagið, fer ekki
varhluta af grófum orðsending-
um nafnlausra aðila á netinu. Í
þættinum Harmageddon í gær
sagðist annar forsprakka sveit-
arinnar, Anna Tara Andrésdóttir,
sérstaklega uggandi yfir hótun-
um um gróft kynferðisofbeldi. Þá
sagðist hún hafa meiri skilning
en áður á vefsíðu Hildar Lilli-
endahl, Karlar sem hata konur,
og kvað ummæli sem þessi eiga
heima á síðunni umdeildu.
Tóku sér tíma
Systkinin hafa
verið söngvin frá
barnæsku en tóku
þó sinn tíma í að
finna sig
Samrýnd
þrátt fyrir
hnökra Eins
og gengur
slettist oft uppá
vinskapinn hjá
þeim systkynum
en þau hafa þó
alltaf verið náin.
Útiloka ekki
samstarf
Systkinin eru bæði
að vinna í nýju efni
og útiloka ekki
samstarf í náinni
framtíð.
„Ég var alltaf
syngjandi
og ég var algjör-
lega hræðileg í því
Íslenski kúrinn
skilgreindur?
„Íslenski kúrinn hefur verið skil-
greindur: Maður má verja 745
kr í mat á dag. Í anda þess verð-
ur hér súpa úr lágvöruverslun,
bragðlítill ostur frá MS og verk-
smiðjubakað, rotvarið brauð til
kvöldverðar,“ sagði þýðandinn og
samfélagsrýnirinn Gísli Ásgeirs-
son á Facebook í gær. Tilefnið
var neysluviðmið úr frumvarpi
fjármálaráðherra um breytingar
á virðisaukaskatti. Mörgum þótti
Gísli þar hitta naglann á höf-
uðið en sem kunnugt er fór for-
sætisráðherra í lífsstílsátak fyrir
nokkru sem hann kallaði „ís-
lenska kúrinn“. Hvort téður kúr
hafi verið sá sami og Gísli gerði
að umtalsefni skal þó ósagt látið.