Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Page 32
Guðrún Pálmadóttir iðjuþjálfi
30
MOHO
LÍKANIÐ UM IÐJU MANNSINS
Dagana 12.-13. mars var haldið nám-
skeið fyrir iðjuþjálfa í samvinnu II og
Endurmenntunarstofnunar HI. Fjallað
var um "Model of Human Occupa-
tion" eða "Líkanið um iðju mannsins".
Fyrirlesari á námskeiðinu var Dr.
Gary Kielhofner, en hann er einmitt
höfundur þessa líkans.
Dr. Kielhofner er prófessor og náms-
brautarstjóri við Department of Oc-
cupational Therapy, College of Asso-
siated Health Professions við Univer-
sity of Illinois í Chicago. B.Sc. gráða
hans var í sálarfræði, mastersgráðan í
iðjuþjálfun og doktorsgráðan í "Public
Health" Dr. Kielhofner hefur fyrst og
fremst helgað sig kenningasmíð innan
iðjuþjálfunar og hefur hann skrifað 7
bækur og yfir 50 greinar í ýmis fag-
tímarit.
Upphafið að þróun "Model of Human
Occupation" (MOHO) hófst 1975 með
mastersritgerð Kielhofners; The Evo-
lution of knowledge in occupational
therapy: Understanding adaptation of
the chronically disabled. Árið 1980 var
líkanið sjálft orðið að veruleika, en þá
birti Kielhofner ásamt samstarfsmönn-
um sínum greinaröð (4 greinar) í
American Journal of Occupational
Therapy um líkanið og notkun þess
innan iðjuþjálfunar. Þróun líkansins
hélt svo áfram og 1985 gaf Kielhofner
út bók um það undir titlinum "A
Model of Human Occupation".
Fræði Kielhofners hafa náð gífurlegri
útbreiðslu innan iðjuþjálfunar. Hann
hefur ferðast víða um lieim og haldið
námskeið fyrir iðjuþjálfa og bækur
hans hafa verið þýddar á fleiri tungu-
mál, m.a. þýsku og japönsku. Sem
dæmi um vinsældir hans má geta þess
að það er búið að vera að vinna að
því í 5 ár að fá hann til að koma til
Islands. Innan líkansins hafa verið
þróuð fjöldamörg meðferðar-
"prógröm", spurningalistar, stöðluð
próf og stöðluð viðtöl innan ýmissa