Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Blaðsíða 18
Lilja Ingvarsson iðjuþjálfi
16
HVAÐA PRÓFANIR GERA IÐJUÞJÁLFAR
Á ÖLDRUÐUM?
Mat iðjuþjálfa á öldruðum er í raun
ekkert öðruvísi en mat iðjuþjálfa á
hverjum öðrum þar sem tekið er tillit
til heildaraðstæðna einstaklingsins.
Það sem þarf þó að gæta vel að og
hafa í huga er að vitræn skerðing -
elliglöp - eru oft dulin fötlun, því
daglegur vani og þekkt umhverfi -
kunnátta og venjuminni - hafa stuðlað
að því að dagarnir ganga stórslysalaust
fyrir sig hjá fólki með væga vitræna
skerðingu. Einnig þarf að hafa í huga
að fólk getur virst vera með vitræna
skerðingu og sýnt öll einkenni þess,
en síðar komið í ljós að um bráðarugl
var að ræða. Bráðarugl er tímabundin
truflun á vitrænni starfsemi, t.d. vegna
hita, sýkinga, rangrar töku lyfja eða
heilablæðingar. Ahnenntgeðslag getur
einnig haft mikil áhrif á hvort fólk
virðist "ruglað" eða ekki og þetta þarf
að hafa sérstaklega í huga þegar próf-
anir eru framkvæmdar því niðurstöður
þeirra geta gefið alranga mynd af
ástandinu ef ekki er hugað að þessum
þætti.
Tilgangurinn með mati iðjuþjálfa á
öldruðum er:
- að fá raunhæfa mynd af getu/færni
einstaklingsins í daglegu lífi,
- átta sig á hvort einstaklingurinn sé
öruggur í sínu umhverfi, t.d. athugi
að skilja ekki eftir pott á eldavélinni
með fullum straumi á, rati um,
- Skýrgreina þörf og skipuleggja
stuðningskerfí,
- gera greinarmun á bráðarugli og
varanlegri heilabilun.
✓
Ymis próf eru til sem meta vitræna
starfsemi (cognitiv próf) og eru þau
misjöfn að gæðum og misvel til þess
fallin að meta aldraða. Til að vera
"góð" þurfa þau að vera fljótleg, skýr
og ekki barnaleg, en margir kvarta yfír
því að þurfa að raða kubbum í sum-
um prófunum.
Almennt samtal getur gefíð góðar
upplýsingar ef vel er að gáð. Inn í það
má flétta spurningum sem gefa góða
hugmynd um vitræna starfsemi. Hægt
er að nota staðlað skimpróf, eins og
goldfarbs Mental Status Questionaire
- MSQ. Þetta próf samanstendur af 10
spurningum, sem gefa eitt stig hver.
Það gefur fyrst og fremst upplýsingar
um áttun:
a) á stað og stund,
b) á upplýsingum um eigin persónu,
c) á upplýsingum úr þjóðlífí.
Mjög einfalt er að koma þessum
spurningum við 1 eðlilegu spjalli.
Stigagjöfín er einföld:
0-2 villur: engin eða byrjandi heila-
bilun
3-8 villur: væg til töluverð heilabilun